Vísir - 29.12.1975, Side 14
14
Kvikmyndin um Watergatemálið vœntanleg innan skamms!
RepúbGkanar reyna að
stöðva töku myndarínnar
Kvikmyndin All The Presi-
dents Men sem fjallar um upp-
ljóstrun Watergate-málsins nýt-
ur litilla vinsælda framámanna
repúblikanaflokksins og gerðar
hafa verið itrekaöar tilraunir til
að koma i veg fyrir töku mynd-
arinnar.
Meðal þeirra manna sem vilja
koma i veg fyrir að myndin
komi fram i dagsljósið cr Ger-
ald Ford forseti ásamt fleirum
áhrifaaðilum. En Robert Red-
ford og Dustin Hoffman láta
Cari Bernstein (t.v.) og Bob Woodward, blaðamennirnir sem koinu
Watergatemálinu á skrið.
ekkert aftra sér, og verður
myndin frumsýnd eftir nokkra
mánuði i Bandarikjunum.
Þegar blaðamennirnir Carl
Bernstein og Bob Woodward
sem komu Watergate-skriðunni
afstað, gáfu bókina All The
Prededents Men út, fyrir ári,
var Redford ekki seinn á sér að
kaupa kvikmyndaréttinn að
bókinni.
Hann ætlaði sjálfur að leika
Bob Woodward og hafði Dustin
Hoffman strax i huga i hlaut-
verk Carl Bernstein. Hoffman
var sjálfvalinn til að leika litla
ákafa dökkhærða blaðamann-
inn.
Robert Redford lét sér ekki til
hugar koma fyrir ári að hann
yrði óvinsæll meðal heldra
fólksins vegna kvikmyndarinn-
ar. Allir töluðu um Watergate
og sýndu blaðamönnunum
tveimur mikinn áhuga. En tim-
arnir breytast og mennirnir
með.
Þegar Ford forseti ákvað að
íelldar skyldu niður allar ákær-
ur á hendur Nixon, vildu
republikanar þagga málið nið-
ur. Það kæmi sér vel fyrir þá að
enginn myndi eftir Watergate-
málinu i forsetakosningunum
1976.
Vegna þessa lögðu þeir fast að
kvikmyndafélaginu að gleyma
myndinni sem kynni að koma
Watergatemálinu á forsiður
blaðanna aftur.
Mánudagur 29. desember 1975. VISIR
Robert Redford og Dustin Hoffman leika Bob Woodward og Carl
Bernstein.
Fjöldi efnaðra manna drógu
fjárframlög sin til myndarinnar
til baka og ölium ráðum var
beitt til að kippa fótunum undan
þeim Redford og Hoffman.
Þeir létu ekki bugast við
þessa erfiðleika og hlutu stuðn-
ing kollega sinna, þar á meðal
þeirra Paul Newman og Steve
McQueen.
— Nixon iyrrum forseti er
ekki heldur ýkjahrifinn af mynd
þeirra félaga. Halda mætti að
honum væri illa við að banda-
riska þjóðin sé minnt á þennan
hátt á afbrot hans, en svo er þó
ekki. Orsökin er sú að hann ótt-
ast að All The Presidents Men
kunni að skyggja á kvikmynd
byggðri á endurminningum
hans.
10 sölustaðir í Reykjavík:
Skátabúðin Snorrabraut - Volvosalurinn Suðurlands- Hraunbær 102E - Burstafell, Réttarholtsvegi ■
braut - Alaska Breiðholti - Við Úlfarsfell Hagamel - Bílaborg Borgartúni 29 - Við verslunina Víði
Seglagerðin Ægir Grandagarði - Austurstræti 12 Starmýri.
Þú færð alltfyrirgamlárskvöld hjá
okkur ,opið til kl. 10 daglega
sve/yi
+
Hjálparsveit skáta
Reykjavík
Ef þú
Flugeldar - sólir - blys - gos - tívolíbombur - stjörnu-
Ijós og margt fleira - allt traustar vörur.
3 gerðir af fjölskyldupökkum. 10% ódýrari.
1200 kr. 2000 kr. 3000 kr.
m þú þarft fyrir gamlárskvöld.
Reykvíkingar, Flugeldasalan er fjáröflunarleið til
tækjakaupa og reksturs hjálparsveitarinnar.
Hjálpið okkur til þess að við getum hjálpað ykkur
sem best.