Vísir - 29.12.1975, Side 24

Vísir - 29.12.1975, Side 24
VÍSIR Mánudagur 29. desember 1975. Hafnarfjörður: Þrír stór- þjófnaðir upplýstir Rannsóknarlögreglan i Hafnarfiröi hefur nú upplýst þrjú stór inn- brot. Tvö af þeim voru framiná Þorláksmessu. Brotist var inn i Hafnarkaffi og Biðskýlið við Strandgötu 50. Af báðum stöðum var stolið öllu tóbaki sem til var og pip- um. Þjófnaðurinn i biðskýlinu nam 300 þúsundum króna. Þá hefur þjófnaðurinn hjá bæjarfógeta i Hafnarfirði einnig verið upplýstur. Þar var farið inn um þakglugga og i skrifstofur og stolið um 80 þúsundum króna. Einn af þeim sem stal tóbakinu reyndist einnig hafa verið með i þjófnaðinum hjá bæjarfógeta. — EA Reykingar bannaðar Flugleiðir hf. hafa nú ákveðið að frá og með 1. janúar nk. verði farþegarými þota skipt I tvennt þannig að i framhluta veröi sæti fyrir þá sem ekki rcykja en afturi verði rými fyrir reykingafólk. Þessi skipting hefur um nokk- urt skeið verið i Norður-Atlants- hafsflugi Lofleiða og verður þvi með þessum ráðstöfunum skipt- ing milli reykingamanna og reyk- lausra i öllum þotum Flugleiða. VS Dínamiti og hvellhett- um stolið Oinamiti og hvellhettum var stoliö úr vélaverkstæði Ingólfs Tryggvasonar er brotist var þar inn. Sjálfsagt vita menn hversu hættuleg þessi efni geta verið, en samt er full ástæða til þess að vara fólk við. Ekki lá alveg ljóst fyrir i morgun um hversu mikið magn væri að ræða, en rannsóknarlögreglan i Kópa- vogi vinnur að rannsókn máls- ins. ' —EA Jólagleði MR. frestað Jólagleði MR., sem vera átti i kvöld i Sigtúni hefur verið frestað til þriðjudagsins 6. janúar. Jólagleðin verður að þessu sinni tileinkuð jólunum og verða skreytingar i samræmi við það. Ýmiss konar skemmtiatriði verða á jólagleðinni og siðan stig- inn dans. Hljómsveitin Paradis leikur fyrir dansi en hljómsveit úr skólanum mun einnig koma fram. Undirbúningsframkvæmdir standa nú yfir og vinna nemendur að gerð skreytinga sem verða geysistórar og miklar. —VS Skátar og íþróttamenn deila um flugeldasölu Mikill slagur stendur nú milli skáta og iþróttafélaga um sölu flugelda fyrir gamlárs- kvöld. Sakar hvor aðil- inn hinn um óheiðar- legar aðferðir og er hit- inn i sumum mönnum litlu minni en i sölu- varningnum um ára- mót. Þarna er enda verið að berjast um tugmilljón króna markað. Harkan hefur verið hvað mest i viðskiptum skáta og iþróttafé- lagsins Fylkis i Árbæjarhverfi. Þar eru báðir aðilarnir með út- sölustaði i 4800 manna hverfi. Skátarnireru með „markað” og telja Fylkismenn að þar sé selt á undirboðsverði til þess eins að drepa þá. Þeir benda á að þeir hafi verið einir um söluna þarna siðastlið- in þrjú ár, en nú séu skátarnir allt i einu komnir og hafi haft i hótunum um að „drepa” þá. Dreifibréf hafa gengið og fundir verið haldnir með deilu- aðilum, en ekki tekist að ná samkomulagi. Skátarnir viðurkenna að þeir liti það óhýru auga að önnur fé- lög fáist við flugeldasölu. Þeir benda á að þeir hafi fyrstir byrjað að nota þetta sem fjar- öflunaraðferð, fyrir einum átta árum. Áttatiu til niutiu prósent af veltu hjálparsveitarinnar komi af þessari sölu. Skátarnir telja að þegar eitt- hvert félag hafi fundið sér sér- staka fjáröflunarleið eigi það að fá frið með hana. Annars endi það með þvi að alfir sitji að kök- unni og allir tapi. Þeir saka iþróttafélögin um „húsasölu” sem sé óleyfileg. t fyrra var veltan hjá þeim um tiu milljónir og af þvi yrðu um tvær milljónir hreinar tekj- ur. _ÓT f.v. Hjónin á Liiularbrekku i Kelduhverfi og dóttir þeirra —þau hafa staðið i ströngu undanfarna daga — Kristveig Arnadóttir, Gunnar Indriðason og Illédis Gunnarsdóttir. Ljósm. Visis: BG Lík konunnar fannst í Viðey Lik konunnar sem livarf að heitnan frá sér fyrir hálfum mánuði fannst i gær. Likið hafði rekið i Viðey, og fannst þar skömmu fyrir hádegið i gær. Konan hét Ragnhildur Er- lingsdóttir til heimilis að Há- túni 10. Hún var 59 ára göm- ul, einhleyp og gekk ekki heil til skógar. Hún hvarf að heiman frá sér 15. desember og spurðist ekkert til hennar eftfr það. Það voru menn úr björgun- arsveitum Slysavarnarfé- lagsins úr Reykjavik og ná- grenni sem fundu likið. —EA Keli M iverfi h ef . r ^ ur siai ð ii im 30 c m engin takmörk fyrir hvað jarðsigsd getur haldið lengi ófram o Miðbik Kelduhverfis hefur sigið um allt að 30 sentimetra i jarð- hræringunum undanfarið. Á cin- staka stað er sigið meira. Mesta sigið i veginum i Gjástykki vcstan við Asbyrgi er t.d. 80«entimetrar. „Jarðhræringarnar i Keldu- hverfi liggja á sprungubelti frá Mývatni norður á Kópasker. Sig- hreyfingin er þannig að miðjan á sveimnum sfgur niður,” sagði Páll Einarsson, jarðeðlisfræðing- ur hjá Raunvisindastofnun Há- skólans, er Visir ræddi við hann i morgun. ■ Páll sagði að i rauninni væru engin takmörk fyrir hversu mikið sigið gæti orðið. ,'En það er út i bláinn að spá um framhaldið. Þetta er i fyrsta sinn sem við erum vitni að viðburðum af þess- ari tegund, og getum fylgst með þeim á mælitækjum,” sagði Páll. Páll sagði að sigið i Kelduhverfi væru sambærilegt við jarðsig það sem hefði orðið á Þingvöllum. Þingvaliavatn er t.d. sigdæld. Að sögn Páls er landrekið or- sökin fyrir þessu. Landið klofnar, og hreyfist bæði i austur og vest- ur. Ekki myndast þó ein allsherj- ar sprunga, heldur fyllist i eyð- urnar. Island er þvi alltaf að stækka. Jarðskjálftum fækkar í Kelduhverfi 1 Kelduhverfi finnst ibúunum jarðskjálftum hafa fækkað. „Það er aðeins að draga úr þeim,” sagði Gunnar Indriðason, sim- stöðvarstjóri i Lindarbrekku i Kelduhverfi i morgun, „en þeir eru hérna ennþá. Milli klukkan 21 og 24 i gærkvöldi kom hrina með stöðugum skjálftum, en siðan er litið meira en að maður finni jarðhræringar,” sagði Gunnar. Hann sagðist þó hafa frétt frá bæjunum á Austursandi i Axar- firði, að þar væri ástandið litlu betra, og jarðskjálftar harðir. Við Lindarbrekku hafa sprung- ur myndast i jörðina, frá 3 til 6 sentimetra breiðar. Hjörtur Tryggvason, sem sér um jarð- skjálftamælinn á Húsavik, fór um Kelduhverfi I gær. Hann sagði i samtali við Visi i morgun að hann teldi landið þarna vera að brotna. „Frá Lindarbrekku og i austur sigur landið. Sprungurnar við Lindarbrekku tel ég vera brota- liðinn,” sagði Hjörtur. —ÓH „Gjöfin höfðingleg" „Gjöfin er höfðingleg, og ber að fagna henni,” sagði Jónas Aðalsteinsson lögfræðingur eigenda Svartsengis í samtali við Visi I morgun. Landcigendur Svartsengis fengu óvæntan keppi- naut á Þorláksmessu um framboð á heitu vatni til að ylja Suöurnesjabúum. Eigendur Stóru- og Minni- Vatnsleysu tilkynntu að þeir væru reiðubúnir að af- henda öll hitaréttindi jarða sinna tii notkunar vegna hitaveitu Suöurnesja. Undanfarið hefur nokkur styr staðið um fyrirhug- aða sölu eigenda Svartsengis á hitaréttindum til Hitaveitu Suðurnesja. Ýmsar svimháar tölur hafa verið nefndar. En nú gæti svo farið, ef tilboð Vatns- leysueigenda er hagkvæmt, að Svartsengi yrði ýtt út i „kuldann”, og eigendurnir fengju ekki krónu. „Ég hef ekki heyrt frá landeigendum ennþá um þessa gjöf,” sagði Jónas Aðalsteinsson. Hann sagðist búast við að gerðardómur lyki störf- um sinum við að ákvarða hvað Hitaveitu Suður- nesja bæri að greiða fyrir hitann frá Svartsengi. „Gerðardómur hefur dregist, og eru landeigend- ur Svartsengis sakaðir um tafir. Það er ekki rétt. Mestar tafir hafa orðið vegna seinagangs hjá Orku- stofnun á að afhenda gögn,” sagði Jónas. —ÓH Bílstjóri bróðkvadd- ur í starfi Leigubilstjóri varð bráðkvaddur i Breið- holti eftir að hafa skilað af sér farþega. Farþeginn var nýfarinn út úr bilnum, þegar ibúi i næsta húsi heyrði að leigubilnum vár gefið mikið bensin, án þess að hann færi.af stað. Hann fór út tii þess að vita hverju sætti, og kom þá að bil- stjóranum meðvitundarlausum.. —EA/VS Bilvelta varö á Reykjanes- brautinni aðfaranótt sunnu- dagsins. Stúlka slasaðist Iitil- lega. Billinn var að koma úr Grindavik rétt fyrir klukkan þrjú i fyrrinótt. Billinn fór út af veginum og mun hafa farið tvær veltur. Hann er sennilega ónýtur. Fjórir voru i bilnum. - EA Viðrœður um sam- starf Reykjaprents og Alþýðublaðsins Að undanförnu hafa farið fram viðræður milli Reykja- prents hf„ sem cr útgáfufélag Visis, og Alþýðuflokksins um aukið samstarf við rekstur Al- þýðublaðsins, sem átt hefur við mikla fjárhagserfiðleika að etja að undanförnu. 1 samningaviðræðum þess- um hefur verið gengið út frá þvi, að Alþýðuflokkurinn haldi áfram að gefa út Alþýðublað- ið, en Reykjaprent hf. taki við rekstri þess. Enn á eftir að ganga frá nokkrum atriðum áður en samstarf þetta getur komið til framkvæmda. —ÞP

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.