Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1945, Blaðsíða 6
382
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
hverju herát CnJa.J?
Eftir Noel F. Newsome
rt /
FREGNRITARI nokkur á Spáni
skrifaði mjer brjef fyrir skömmu og
komst þar meðal annars svo að orði:
„Svarið, ef þjer getið, þessari spurn-
ingu minni: Fyrir hverja eru Bret-
ar að berjast?"
Vera má, að fregnritarinn hafi
borið þessa spurningu fram í fullri
einlægni, af því að hann vilji fá að
vita hið sanna í þessu efni. Hinsveg-
ar getur einnig vel verið, að hann
sje einn af þeim, sem vilja stinga
því að okkur, að þar sem við getum
ekki gert fulla grein fyrir því, af
hverju við sjeum að berjast, þá fari
liest á því að við leggjum niður
vopnin og leyfum fasismanum að
(lafna í friði.
En ef til vill hefir fregnrltari
])essi litið svo á að mjer mundi
reynast erfitt, að svara ]>essari
spurningu, og er honum þá að því
leyti líkt farið og dr. Göbbels, sem
sí og æ er að klifa á þessari sömu
spurningu, vitanlega með því meiri
gremju sem hernaðaraðstaða Þjóð-
verja fer versnandi, í þeirri von að
við munum að lokum láta sann-
færast um að að við höfum engá
launverulega ástæðu til þess að
halda áfram baráttunni gegn Þýska
landi, og verða því fúsari á að
ganga til friðarsamninga við
,,Þriðja ríkið“.
Yitanlega er okkur bæði rjett og
skylt að svara þessari spurningu,
því að hún er sjálfu sjer afar ein-
föld.
Svarið gæti verið í tveim liðu.m:
3. Hverju viljurn við útrýma með
baráttu okkar, og 2. hvað bvggja.
upp.
Yið viljum fyrst og fremst útrýma
herveldi Þjóðverja, sem tvisvar á
]>essari öld hefir hafið árásarstyrj-
öld gegn Yesturveldunum, Riiss-
landi og Balkanríkjunum, og með
því viljurn við tryggja það að
Þýskaland hefji ekki slíka árás í
þriðja sinn.
Kenningin um drotnunarvald „yf-
irríkisins er upprunnin í Þýska-
landi og þar náði hún einnig hinn
miskunarlausa hámarki sínú. Kenn-
ing þessi hefir ógnað með því að
svifta stoðunum undan hinni fornu
vestrænu menningu okkar og lífs-
háttum og að gera alla frjálsa
þegna hins sjálfstæða og lögbundna
þ.jóðfjelags að þrælum ólöglegrar
og einra^ðiskenndrar harðstjórnar.
Þessum banvænum ógnunum gegn
áframhnldandi þróun mannkynsins
á þeirri braut, er Jiggur svo óra-
langt frá harðstjóra og villimennsku
hinna svörtustu miðalda, verður því
aðeins bægt frá, að Þjóðverjar'
verði gersigraðir og afvopnaðir
með öllu og menning þýsku þjóðar-
innar byggð upp á nýjum grund-
velli.
Þýskaland eitt allra rik.ja hefir
ógnað með því að leggja undir sig
hina vestrænu menningu í heild, og ,
eyðileggja þau andlegu verðmæti,
sem menning þessi er reist á. Þ.jóð-
verjar einir hafa notfært sjer kenn-
inguna um alræði „yfirríkisins",
sem í sjálfu sjer er andstæð hags-
munum Evrópu, — til þess samtím-
is að breyta sjálfum sjer í hernaðar-
vjel með það fyrir augurn að legg.ja
undir sig alla Evrópu og reyndar
heim allan og br.jóta á bak aftur
andstöðu þeirra þ.jóða, sem frelsinu
unna, og til þess að koma á og við-
halda með ofbeldi þeim lífsháttum,
sem því nær allar þjóðir hafa varp-
að frá sjer með andstygð, er þær
hafa reynt þær í veruleikanum.
Yera má að einhver önnur þjóð
reyni, er fram líða stundir að ná því
takmarki, sem brugðist hefir Þjóð-
verjum tvisvar á*einni öld, sem sje,
að snúa til öfugrar áttar stefnum
sögunnar með kúgun, vopnavaldi
og áróðri og að reyna að hindra
mannkynið í því að rækja hlutverk
sitt í samræmi við meginreglur
laga og rjettar, sem reist er á göfgi
og frelsi einstaklingsins, samvisku-
frelsi, hugsana — og málfrelsi og
öðrum andlegum verðmætum, sem
nú eru svo almennt viðurkend af
meginþorra allra karla og kvenna,
sem komist hafa í kynni við þau,
að jafnvel þeir, sem reyna að tor-
tíma þeim, eru til þess neyddir að'
viðurkenna þau og fara eftir þeim
í orði og leyna hinum glæpsamlegu
áformum sínum undir því yfirskyni,
að það sjeu þeir sem leitast við
að framkvæma að fullu þessar hug-
sjónir og meginreglur, sem ennþá
hafa aðeins að litlu leyti orðið að
veruleika í frjálsum þjóðfjelögum.
Ef þessi ógnun um að koma með
ofbeldi einræðistjórn á með þjóðum.
sem eru því andvígar, og mundu
rísa gegn því ef þær hefðu tií þess
bolmagn, skyldi gera vart við sig
þá er jeg í engum vafa um að Eng-
land mundi aftur grípa til vopna
til þess að bæla niður slílca lcúgun-
artilraun og njóta í því efni full-
tingis svo að segja allra þ.jóða'
heims.
England hefir jafnan barist með
‘góðuni árangri gegn harðstjórum
meginlandsins/hverrar þjóðar, sem
þeir hafa verið, og tilraunum þeirra
til þess að hneppa þjóðir Evrópu,