Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1946, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1946, Blaðsíða 2
o LESBOK MORGUNBLAÐSINS - VESTMANNAEYJAR - Um aflastöð og atorkumenn ÞAÐ átti í raun og veru vel við, þegar hafist var handa fyrir sköumiu og byrjað á byggingu flug vallar 1 Vestmaimaeyjum — flug- vallar, sem líta má á seni upphaf þeirra tímabærustu og gagnlegustu framkvæmda, sem Islendingar hafa enn ráðist í. Aflastöðin og útvörð- urinn í suðri, hafði haft forustuna um svo margt um dagana, að segja mátti, að þar byrjað, væri vel byrj- að, að fyrsta stórátaki landsinanna í þessum efnum, væri vel koinið í Vestmannaeyjum. Eítir Gísla J. Ástþórsson Saga Vestmannaeyja og Vest- Jnannaeyinga er saga þróunar og framkvæmda. Hún er saga einok- unarkaupmanna og fátæktar, fram- Jvvæmdamanna og góðæris, forustu- manna og frainíara. Saga Vest- mannaeyja er saga íslands, uokkuð stytt að vísu en þó skýr og áhrifa- rík. Uún hefir inni að halda hu^- rekki og heiftúðugan mátt fyrstu landnemanna, og má þar benda á þræladráp Ingólfs. Hún sýnir á aumkunarverðan hátt gæfuleysi landsmanna og smæð, er Tyrkir smala saman eyjarskeggjum eins og kvikfjenaði og sigla með þá á brott; og húu sýnir endurreisnina, 'ef svo mætti að orði komast, bar- iáttu landsmanna fyrir. bættum lífs- skilyrðum og andlegu og eignalegu frjálsræði. 1 opnu bátunum, þilskip- unum og vjelskipunum má með raun rjettu lesa skapfestu og ósjerhlífni þeirra Islendinga, sem í ræðu eða riti, á sjó eða landi, við verslunar- störf eða daglaunavinnu hófu land ókkar úr niðurlægingu undirokun- arinnar í það, sem við eigum við að búa í dag. Frá höfninni í Vestmannaeyjum. Einokun og' ánauð. ÞEGAR maður siglir inn höfn- ina í Vestmannaeyjum og lítur yfir ‘húsaþyrpinguna, sein teygir sig til austurs og vesturs og upp undir rætur Helgafells, á maður bágt með að triia því, að fyrir einum (30 ár- um, bjó þarna 500 manna hópur, sem átti svo að segja alla*lífsafkomu sína undir tveim eða þrem* erlend- um kaupmönúum. Maður sjer á myndum frá þeim dögum torf- þæina og timburhúsin, lítil og ó- ásjáleg hús. Það er eins og þau drjúpi höfði af blygðunarsemi. — Þetta eru myndir frá tímuni ein- okunarkaupmanna, þegar skipastóll eyjamanna var 5 áttæririgar, 10 sex- æringar og rúmlega 30 f jögra manna för, og enn var talað um ánauð ein- okunarinnar og sagðar sögur af þrældómi þeim, sem kallaður var konungsútg’erð. Illt þætti Vest- jnannaeyingum í dag, yrðu þeir að róa konungsbátum á vetrurn, en fengju fyrir náð og miskunnsemi drotnarans að íleyta kænum skium á sumrin, til að afla matar fyrir sig og fjölskyldur sínar. En talið er, að í lok sextándu aldar, liafi kon- ungur gert út frá Eyjuni sextán skip, þar af 5 tólfæringa. Um aldamótin 1800 er svo komið í Vestmannaeyjum, að tala íbúa þar er komin undir 200. En upp úr miðri öldinni fer að bera á einum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.