Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1946, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1946, Blaðsíða 10
/ Uppdráttur af vestasta hluta hafnarinnar, með hinni fyrirhuguðu bátahöfn, verhúðunum á Grandagarðinum, fyll- ingunni innan við garðinn og fjórar bátabryggjur. Togarahöfnin verður lengra út með Grandagarðinum. in, þegar Monberg skilaði af sjer verk inu í nóv. 1917. Síðan hefir stöðugt verið unnið að því að endurbæta höfn ina innan hafnargarðanna er upp- runalega voru reistir. Hefir því verki miðað þannig áfram í aðalatriðum: Uppfyllingin við austurbakka hafn- arinnar var gerður á árunum 1918-21 þar fjekkst mikið pláss og 120 m. langt bólvirki. Árið 1926 byggður Faxagarður, 160 m. langur, með bryggju að innanverðu. Björns- bryggja byggð sama ár. Grófar- bryggja byggð 1929—30, og uppfyll- ing vestur af henni með 80 m. ból- verk, ásamt bátabryggju. Árin 1930—’34 gerð vestur-upp- fyllingin með tveim bátabryggjum. Ægisgarður byggður 1930—38, 266 m. langur, með bryggju að vestan 145 m. langa. Austurbryggjan gerð siðar. Uppfylling gerð í hafnarvík- inni 1938—41, milli gamla hafnar- bakkans og austuruppfyllingar. Nú er unnið af kappi að því að fullgera bátahöfnina í vestanverðri höfninni við Grandagarð, gerð breið uppfylling meðfram Grandagarði og bryggjur austur af henni. — Verður þeirri uppfylling haldið áfram alla leið út í Effersey því meðfram Grandagarði utanvið báta bátahöfn- ina kemur athafnasvæði fyrir tog- ara. Verbúðir eru reistar á Granda- garði, sem eru þannig gerðar, að þær eru um leið skjólgarður fyrir athafna svæði bátahafnarinnar, svo stórbrim nái ekki að spilla þar mannvirkjum eða trufla verk manna. I innstavíki bátahafnarinnar' reisir Fiskimálanefnd haðfrystihús, en á- kveðið er, að fisksölumiðstöð verði rekin í sambandi við þetta, fyrir neyslufisk handa bæjarbúum. Lögð er mikil áhersla á, að hraða framkvæmdum við bátahöfnina, svo fiskibátum verði búin hin bestu skil yrði í Reykjavíkurhöfn, og hægt verði sem allra fyrst að fullgera tog- arahöfnina í norðvestanverðri höfn- inni. Þó mikið hafi verið starfað að fram förum Reykjavíkur það sem af er þess ari öld, og skilyrði sjeu hjer orðin' öll önnur á mörgum sviðum en fyrir 40 árum, er víst, að ekkert framtak hefir verið happadrýgra og leitt af sjer meiri blessun fyrir bæjarbúa, en þegar í það var ráðist að gera úr vík Ingólfs nýtísku höfn. í upphafi voru bólvirki hafnarinn ar 250 metrar á lengd, en eru nú

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.