Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1946, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1946, Blaðsíða 8
84 ' ■ ^jqp LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - S V I s s. - HIÐ dimmbláa Bodenvatn, sem skolar græriar fætur Alpanna, skilur tvo hluta hinnar þýsku þjóð ar, og er jafnframt takmörk milli örbirgðar annars vegar og velfarn- aðar hins vegar. Öðrum megin vatnsins búa þegn ar þriðja þýska ríkisins. Æsku- mennirnir þar hafa verið drepnir eða limlestir, o^ borgirnar lagðar í auðn. Nú er landið hernumið. Nútíðin er þjáning og framtðin vonlaus. Hinum megin búa norður-Sviss- ar, sem einnig eru Þjóðverjar, tala þýsku og hafa mörg erfðaeinkenni Þjóðverja. En þeir hafa lifað í friði í hundrað ár. Þar er almenn vel- megun. Og það sem best er .,þeir eru frjálsir menn undir frjálsum himni“: Af hverju stafar þessi mikli munur? Fyrir sex hundruð árum áttu Svissar um tvær leiðir að velja. Þeir völdu veginn til lýðræðis. Og síðan hafa þeir aldrei farið út af þeirri braut. Nýlega var je^ viðstaddur þar sem svissneska lýðræðið birtist mjer eins og það er. í staðnum Appenzell átti fram að fara hin árlega kosning undir berum himni. Torg staðarins hafði verið afgirt og fengu þar ekki inn að ganga aðrir cn þeir. sem höfðu kosning- arrjctt. Utan við girðingriana stóðu allir aðrir til að horfa á og læra. Öðrum megin á torginu var ræðu- pallur. Á borðinu lá gömul biblía og tvö stór sverð. Allir kjörmenn- irnir voru með svcrð við lilið til merkis um að þeir væru fúsir til að berjast ^yrir lýðræðið. Hinn fráfarandi ‘fylkisstjóri gaf ýtarlega skýrslu um störf sín árið sem leið cg hvernig íje skattgreið- Síðari grein enda hefði verið varið. Margar fyrirspurnir voru gerðar og hann reyndi að svara þeim eins vel og unt var. Síðan heldu frambjóðend- ur ræður sínar og drógu sig svo í hlje, en kosning fór fram með handaupprjettingu. Engin læti. — Þetta var næstum eins og fundur í bankaráði. Maður fann, að þetta fólk. sem gaf sjer tíma til þess að hugsa um hagsmuni ríkisins, var ríkið sjálft. Til er líka svissneskur málsháttur, sem segir: ,-Vjer er- um ríkið“. Hver einasti maður veit það, að hann ber ábyrgð á stjórn- inni. Árið 1891 voru í Sviss samþykt lög um frumkvæði og endursam- þykt. Með frumkvæði er átt við það að sendinefndir geta lagt fram lagafrumvarp á þingi, ef 50.000 kjósendur hafa skrifað undir það. Með endursamþykt er átt við það, að lög frá þinginu skuli borin undir þjóðaratkvæði, ef 30.000 kjósendur óska þess. Á þessu tvennu byg^ist öryggi svissneska lýðræðisins. Þeir, sem sömdu stjórnarskrá Bandaríkjanna, þorði ekki að gefa þjóðinni svona mikið íhlutunarvald Þeir sögðu að það yrði skrílræði og þeir voru sannfærðir um, að af því mundi liljótast misjöfn löggjöf, þar sem eignarjetli væri miðboðið og hlutdeild minni hlutans algerlega fyrir borð bofin. Nokkrir svissnesk ir stjórnmálamenn vantreystu þjóð inni á sama hátt, cn hrakspár þcirra hafa ekki ræst. Kjörmanna- ráðin Iiafa verið færari um þaó cn uokkurt lög^jaíarþing, að hindra íramgang óhugsaðra og ótímabærra laga. Eftir fyrra heimsstríðið var Sviss í mikilli fjárþröng eins og flest önnur lönd. Þá var stungið upp á því, að leggja á hátekjuskatt í eitt skifti. Skattur þessi hefði að- eins komið niður á 6 mönnum af hverju þúsundi mahna, en þrátt fyrir það var þessi tillaga feld með yfirgnæfandi meirihlust (7 : 1) þegar hún var borin undir þjóðina. Svissneska löggjafarþingið, sam- bandsþingið er í tveimur deildum. Gagnstætt því sem er í Ameríku, hafa þeir aldrei viljað leggja mik- il völd í hendur eins manns. For- setinn þar hefir ekkert neitunar- vald. Það er hjá þjóðinni sjálfri. Forsetinn er ábyrgur gaghvart sambandsþinginu. Skift er um for- seta á hverju ári, og verða hinir, sjö ráðherrar forsetar eftir röð. Þess vegna getur það komið fyrir, að góður og gegn svissneskur borg- ari muni það ekki í svipinn hver forsetinn er, þótt hann geti talið nöfn allra ráðherranna. Flokkum er þannig skipað í Sviss, að öðrum megin er hinn kaþólski íhaldsflokkur, en hinum megin jafnaðarmenn. Á milli þeirra er hinn frjálslyndi sjálfstæðisflokk- ur, og hann hefir um mörg ár ver- ið langstærstur. Fleiri blöð eru geíin út í Sviss en í flestum öðrum löndum, þegar miðað er við fólksfjölda. Með til- styrk þeirra vaka kjósendur kost- gæflega yfir þingmönnum sínum og embættismönnum að þeir geri það sem þeim ber að gera. Og hvort sem það er nú fyrir þetta, eða fyrir meðfæddan heiðarleik, þá kemur það’ örsjaldan fyrir að embættismcnn misbeiti stöðu sinni. Svissar eyða ekki miklu fje í kösningar og áróður. Það er. mælt að stærsta framlag sern nokkur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.