Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1948, Side 7
19
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
©
Jón Guömundsson ritstj.
að bjóða, og kváðust sjá þann eina
kost, að einstakir bæjarmenn reyndu
að verða eigendur að Laugarnesinu,
öllum bæjarbúum í hag. Þar sem nú
stiptamtmaður Trampe áleit sig sem
arrjtmann meiddan af tjeðum orða-
tiltækjum, þá ritaði hann þessum
sömu ellefu sjálfum hógvært embætt-
isbrjef, með ljósum ástæðum fyrir
sínum aðgerðum í þessu máli, og fyrir
því hvað valdið hafði að hann hefði
eigi kallað saman almennan borgara-
fund þegar í sumar, jafnsnart og bæj-
arstjórnin fór fram á kaup Laugar-
ness, því hann hafi frá upphafi verið
því mótfallinn sjálfur. Að lyktum
krafðist hann þess að hinir ellefu aft-
urkölluðu á þann hátt er hann gæti
verið ánægður með, þær hinar grófu
og meiðandi sakargiftir, er þeir höfðu
gefið honum í brjefinu. Bæði sakir
þess, að hinir ellefu hafa að líkindum
kannast við að orð þeirra hafi verið
miður vel valin og til þess að komast
hjá málþrasi — þá hafa þeir að sögn
ritað honum aftur og dregið svo úr
orðum sínum, eða skýrt þau, að hon-
um hafi fullnægt".
Þannig segir „Þjóðólfur“ frá og má
á þessu glöggléga sjá að bæjarmenn
hafa borið þungan hug til stiptamt-
manns og það hefur brotist út í brjefi
þeirra. En það yoru engir miðlungs-
menn, sem stóðu að þessu brjefi og
tilboðinu. Það voru þeir: Moritz W.
Biering, konsúll, Hannes St. Johnsen,
kaupmaður, Oddur Guðjohnsen, snikk
ariy'Geir Zoega, húseigandi, Alexíus
Árnason, lögregluþjómf Guðmundur
Þórðarson á Hól, Guðmundur Guð-
mundsson í Vigfúsarkoti, Jón Árnason
í Ofanleiti, Jón Árnason, ríki í Stöðla-
koti, Jón Þórðarson í Hlíðarhúsum
og Páll Magnússon í Holti. „Voru
þeir allir meðal merkustu borgara
bæjarins", segir dr. Jón Helgason,
biskup,
• ' ’•& i !,<}
ALEXIUS FÆR ÁMINNINGU
Einn af þessum ellefu slapp þó ekki
svona auðveldlega undan reiði stipt-
amtmanns. Það var Alexius lögreglu-
þjónn. Hinn 3. janúar 1857 fekk hann
brjef frá bæjarfógeta, og vegna þess
að það er gott sýnishorn þess hvernig
embættisbrjef voru stíluð á þeim ár-
um, er það birt hjer orðrjett:
„í tilefni af brjefi frá 18. f. m„ sem
stiptamtið hefur meðtekið frá inn-
byggjum Reykjavíkur bæjar og sem í
meiðandi orðatiltækjum umtalar að-
ferð amtsins með tilliti til sölunnar á
Laugarnesi, hefur stiptamtið í brjefi
dags. 30. f. m„ þar þjer eruð einn á
meðal þeirra, sem hafa undirskrifað
þetta brjef, skipað mjer að gefa yður
b V
f Alexius Árnason
Þóröur Jónasson
til kynna, að amtið að þessu sinni, þar
þjer og hinir aðrir, sem hafa undir-
skrifað brjefið, hafa undir 27. f. m
afturkallað þau óþægðarorð, sem í því
eru, ekki vilja taka þau framar til
greina en komið er, en að amtið þar
hjá hljóti að álíta þau af manni í yðar
stöðu öldungis ótilhlýðileg, þar sem
við yfirboðara yðar er að eiga, og að
þjer því hafið að taka yður vara fyrir
þess háttar hegðun framvegis, svo
framarlega, sem þjer viljið álítast hæf
ur til að gegna lögregluþjónssýslan
hjer í bænum. Þetta gefst yður þannig
til vitundar-------“«
MÓTLEIKUR
Þegar það frjettist að þessir ellefu
menn ætluðu að reyna að ná í Laug-
arneseignina, hófust aðrir handa til
þess að koma í veg fyrir það. Var al-
mælt að þeir vinirnir Trampe stipt-
amtmaður og Helgi Thordarsen biskup
hefði staðið á bak við þetta. Mun
stiptamtmaður hafa verið hræddur um
að þessir ellefu ætluðu að kaupa eign-
ina til þess að léta bæinn fá hana, en
það var um að gera að reyna með öll-
um ráðum að koma í veg fyrir það.
Var Ditlev Thomsen „harðvítugur
maður og óprúttinn þegar því var að
skipta“, sendur um bæinn með áskor-
unarskjal til undirskrifta, Var skjalið