Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1948, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1948, Blaðsíða 8
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS stílað til stiptamtmanns og hann beð- inn að afstýra því að Reykjavíkur- bær eignaðist Laugarnes. Mælt var að Þórður Jónasson etazráð hefði samið skjalið og þótti það koma úr hörðustu átt, þar sem hann hafði áður verið oddviti bæjarstjórnar. Thomsen tókst með harðfylgi sínu að safna um 20 nöfnum á þetta skjal og voru þar 7 embættismenn, 8 kaupmenn og 4 eða 6 iðnaöarmenn. Aðalástæðan, sem færð er fram í þessu skjali gegn því, að bærinn eign- ist Laugarnes, er sú, að engir bæjar- menn geti haft hag af kaupunum aðr- ir en tómthúsmenn, og kannske ein stöku kaupmenn. Var það svo útlistað að tómthúsmenn væri bænum til ein- berra þyngsla, gjaldi sama sem ekkert í bæjarsjóð í samanburði við þann kostnað er gangi til framfærslu ómög- um þeirra, en noti þó land bæjarins með sjálfskyldu bæði til beitar og mó- skurðar og gjaldi ekkert fyrir. Svo mundi og fara um Laugarnesland, ef keypt væri, að tómthúsmenn mur.öu gína yfir því og afleiðingin yrði svo sú, að tómthúsmönnum f jölgaði í bæn um. Mátti þá nærri geta hvernig færi, samkvæmt þessari lýsingu. TRAMPE LÆTUR UNDAN Eigi verður nú með vissu sagt hvort Trampe hefur verið alvara þeg- ar hann helt því fram við dómsmála- ráðuneytið, að borgarafundur mundi verða andvígur því að bærinn keypti Laugarnes. En honum mun hafa brugðið í brún þegar liann sá hvc lít- ill árangur varð af undirskriftasmöl- uninni. Sá hann því sinn kost vænstan að verða við kröfu hinna ellefu um að bjóða Laugarneseignina upp enn eintt sinni. Mun honum hafa litist það ráð- legra heldur en eiga það á hættu að borgarafundur fjallaði um málið. — llinir ellefu höfðu heldur ekki sagt að þeir ætluðu sjer að bjóða í eignina fyrir bæjarins hönd, og því var enn hægt að setja blátt bann við því, að bærinn keypti aí þeim aítur. 'flalld.ór Kr. Jón Pjetursson Friðriksson yfirdómari Uppboðið var svo haldið 23. janúar 1857 og urðu hinir ellefú hæstbjóðend- ur með 5500 rd. boði. Og þar sem stjórnin hafði skipað svo fyrir að eign in skyldi seld ef hærra boð fengist en 5000 rd. þá varð Trampe nauðugur viljugur að sleppa eigninni við þá. — Hann samþykkti tilboð þeirra með brjefi hinn 28. jan'ar, og nokkru síðar fengu hinir nýu eigendur afsal fyrir eigninni og var þar tekið fram að þeir hafi uppfyllt uppboðsskilmálana með þvi að greiða þriðjung kaupverðs í peningum og geía út skuldabrjef fyrir eftirstöðvunum. ÁTÖK í BÆJAKSTJÖRN Ilinir nýu eigcndur hagnýttu sjer jörðina um sumarið, ljetu slá túnið og höfðu heyið sjálfir eða seldu það. Auk þess seldu þeir bæjarmönnum haga- göngu fyrir hross dg kýr. En stofan stóð auð og ónotuð. Um haustið birtu þeir reikniiig um tckjur og gjöld eignarinnar frá því að þcir cignuðust hana. Alls höfðu gjöld- in orðið 360 rd. 25 sk., en tekjurnar 781 rd. 28 sk. Höfðu þeir þó ckki haít neinar tekjur af móskurði, en mótekja var þá talin með aðal hlunnindum Laugarness. Samt var hreinn arður af eigninni 424 rd. 3 sk. og voru það nær tvöfaldir vextir af kaupvcrðinu. „Má sjá á þessu hvort Reykjavíkurkaup- stað hefði verið það jafnmikill ó- hagur að kaupa Laugarnes eins og sumir bæjarmenn ljetu, þeir er mest stóöu á móti kaupum“, sagði „Þjóð- ólfur“. Hefur Trampe átt sinn hlut af þeirri sneið, þar sem hann hafði talið tekjuáætlun bæjarstjórnar bygða á tyllivonum, og var hún þó mikið lægri en þetta. Þá um haustið buðu hinir nýu eig- endur bæjarstjórn land jarðarinnar fyrir 3000 rd. Þegar tilboð þetta barst bæjarstjórn neitaði formaðurinn, Hall dór Kr. Friðriksson, að leggja það fyr- ir fund, vegna þess að 4 af eigendun- um ætti sæti í bæjarstjórn. Sat hann fastur við sinn keip þrátt fyrir ítrek- aðar óskoranir frá bæjarfulltrúum og bæjarfógeta. Þá sárnaði bæjarfulltrúum svo, að þeir skcrruðu á formanninn að segja af sjer og láta kjósa annan íormann. En hann sinnti því engu, og gengu þá allir bæjarfulltrúarnir af fundi og neit uðu að starfa undir stjórn hans fram- vegis. Siðan skoruðu þeir á bæjarfó- geta að kveðja fulltrúana til fundar, ella hótuðu þeir að segja af sjer allir sem einn maður. Bæjarfógeti bað nú stiptamtmann að skipa nýan forseta bæjarstjórnar og skýrði honum frá því, að bæjar- fulltrúarnir mundu segja af sjer að öðrum kosti. Trampe stiptamtmaður úrskurðaði, að Halldór Kr. Friðriks- son hefði ekki gert annað en það, sem horium bar að gera. Úrskurði hans yrði því ekki breytt og ekkert tillit yrði tekið til hótana bæjarfulltrú- anna um að segja af sjer, því að þeir hefði enga heimild til þess. Þessi ágreiningur jafnaðist síðar íyrir milligöngu og lipurð Finsens, ba'jarfógeta. En ekkert varð úr kaup- unum. Við næstu íormannskosningu í bæj- arstjórn íell Halldór Kr. Friðriksson og var Jón Guðmundsson, ritstjóri „Þjóðólfs", þá kosinn og hafði hann formennskuna á hendi í 10 ár. Næsta vctur auglýstu eigenduniir bann við því að nota þvottalaugarnar leyfislaust, að hafa áfangastað í landi jarðarinnar, að beita þar gripum og fara í beitif jöru, nema gjald kæmi fyr-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.