Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1949, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1949, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 213 niður fcftir ánni, niður að fossun- um. Bátu'rinn, sem annast þetta, er „Radium Prince“ hans Mike. Hjá fossunum er pokunum lilaðið á vagna og ekið 9 mílur, þangað til komið er niður fyrir strenginn. Þá cr þeim aftur hlaðið á bát og flutt- ir á honum 30 mílur til Fort Nor- man, sem er hjá McKenzie Rivcr. Þar tekur stœrra skip við þcim og flytur þá upp McKenzie, yfir Great Slave Lakc og upp eftir Sla\’e Riv- er til Fort Smith. Þá eru þcir cnn fluttir á vögnum og síðan á bát- um yfir Lake Athabasca og upp cftir Athabasca River til Water- ways, þar sem þeir komast að lok- um á járnbrautarlcst. Flutningurinn á bátunum er mjög erfitt og vandasamt verk og ekki fyrir aðra en duglega og úr- ræðagóða menn. En hætlulegasti liluti leiðarinnar er Bear River, frá upptökum niður að fossunum, þar sem Mike er. Straumurinn í anni er þarna 9 mílur á klukku- stund. Áin rennur i ótal hlykkjum og viða eru grynningar, svo að bát- ar, sem fara eftir henm mega ekki rista dýpra en 20 þumlunga. Og þetta dýpi verður að finna milli sandeyra, sem altaf eru að breyta sjer, og má viöa engu muna til hvorrar handar. Mike þræðir álana bakkanna á milli og verður að fara 84 sinnum milli þeirra á leiðinni. Hann er ekki nema þrjár klukku- stiuidir niður eftir. Sums staðar er straumurinn svo mikill að liann íleygir bátnum fram með 22 milna hraða. Og í hverri ferð er hann með 45—60 smálestir af farmi, sem er að minsta kosti 11.000 dollara virði. Það er sjón að sjá Mike þegar liann er í þessum ferðum. Hami stendur í stýrishúsinu og snýr stýr- ishjólinu svo hratt að pilarnir í því hverfa; svo koma þeir í Ijós allra snöggvast, og hverfa aftur þegar Mike snýr á liirm vegínn. Sá, sem 1 O c Vj •f ’f i er hvað eftir annað handviss uin það, að sín seinasta stund sje komin, þegar fleytan urgar við botninn á 22 mílna hraða. — í skelfingu lokar farþeginn augun- um, cn þegar hann cpnar þau aft- ur, er Mike kominn út í ál, og stefnir nú að hinum bakkanum. Það er kraftaverk að Mike skuli komast þetta. Það er ekki á nokk- urs annars manns íæri. Það er svo sem ekki að aðrir hafi ekki revnt að leika það eftir honum. Sex þaul- æfðir skipstjórar hafa að minsta kosti reynt það. En þeim mistókst öllum. Og nú hvílir ábyrgðin á Mike Arnfinnssyni einum — á- byrgðin á því að koma þessu dýr- mæta efni frá námunni, og vistum til þeirra, sem vinna þar. Og Mike gengur að þessu með íullri alvöru. Þegar ferðirnar hefjast á voinn og bjart er allan sólarhringinn gefur liann sjer ekki tíma til að sofa meira en 2V-> klukkustund á sólar- hring. Þannig heldur hann áfram í sex vikur samfleytt, eða lengur. Þrjár klukkustundir er hann að fara niður eftir ánni* tólf klukku- stundir er hann að íara upp eftir henni. Þannig lieldur hann áfram dag og nótt fram í ágúst þegar nótt fer að dirnrna og hann neyðist til að halda kyrru fyrir nokkurn hluta nætur. Mike Arnfinnsson er sonur þeirra hjónanna Önnu og Björns Arnfinns sonar í Lundar, Manitoba. Hann fluttist til Waterways frá Manitoba fyrir nokkrum árum. Þar kyntist hann valnavegunum. Og hann er fæddur vatnamaður. Hann þekkir straumvötnin og getur lesið á þau eins og bók. Það er undarleg nátt- úrugáfa. Engin siglingamerki eru í Bear River, enda þýddi það lítið þar sem hún er altaf að breyta sjer. Mike fór fyrstu íerð sína eftir ánni 1932, sama árið sem byrjað var að vinna í námunni hjá Port Radium. Hann haíði Indíána sem leiðscgu- Barnahjal Maður kom heim frá vinnu, þreyttur og í slæmu skapi. Börn- in voru að leika sjer og fór milc- ið fyrir þeim. í bræði sinni á- vitaði hann þau harðlega og rak þau í rúmið. Þegar hann kom á fætur r.æsta morgun var þetta brjef á húninum á svefnherberg- ishurðinni: — Vertu góður við börnin þín og þá munu þau verða góð við þig. — Yðar einlægur. — Guð. ★ Sigga og Jón höfðu eignast tvö epli, annað var stórt og fagur- rautt, en hitt var lítið og grænt. Sigga helt á eplunum og hikaði dálítið. En svo rjetti hún þau fram og sagði: „Kjósta!“ Jón stóðst ckki mátið, hann kaus stóra og fallcga eplið. Þá varð Sigga bálreið og sagði: „Ertu vit- laus? Kjóstu aftur!“ W--------------------------^ mann, og báturinn strandaði á eyri. Mike skildi Indíánann eftir lijá Bear Lake og hefur verið einn á bátnum síðan. Hahn hefur aðeins strandað einu sinni, en það var vegna þess að vjehn bilaði. Allar þær vörur og verkfæri, sem til Port Radíum hafa komið, hefur Mike flutt. Og allar þær þúsundir lesta af námugrjóti, sem þaðan hafa komið, hefur hann líka flutt, Mjer þykir líklegt að þeir. sem ábyrgðina hafa á þessum námu- rekstri hafi sjeð það hve einstakur maður Mike er, og hafi farið að hugsa um hvernig færi nú ef hans misti við. Að minsta kosti eru þeir byrjaðir á því að gera veg frá foss- unum upp að Great Beaver Iiake, og þegar sá vegur er fullger, þá hættir Mike máske þessum ferðum. V V 4» V

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.