Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Page 1
40. tölublað. Sunnudagur 30. október 1949. XXIV. árgangur. þóroddur Guðmundsson írá Sandi: Dýrcigardur Dýflinnar Eitt af hinum frægu Dyflinnar-ljónum. NOKKURRA daga þoku er Ijett af, þjakandi úrsvalri móðu. Þegar 1. apríl rennur upp með ferskum blæ og sól í heiði, langar okkur til að komast eitthvert út, burt frá götu- erli og bókiðju. Við ætlum að fara í Dýragarðinn í dag. Með því að ætla má, áð heldur fáir íslending- ar hafi komið þangað, verður sagt hjer stuttlega frá garðinum. Leiðin liggur úr suðurjaðri borg- arinnar, þar sem við búum, fram hjá St. Stephen’s Green, fögrum trjágarði í suðurhluta borgarinnar; Trinity College, einum virðuleg- asta og elsta háskóla Bretlands- eya; yfir ána Liffey eftir O’Connell brú, fram hjá O’Connell-mynda- styttu um O’Connell-stræti, aðal- götu Dýflinnar; eru brúin, styttan og strætið kend við Daníel O’Conn- ell, sem nefndur hefur verið „ó- krýndur konungur írlands“. Dýjragarðurinn er vestan aðal- borgarinnar, í austurhluta mikils trjágarðs og skemtistaðar, sem heitir „Phoenix Park“. Strætis- vagninn staðnæmist við hlið hans. Við förum út, göngum inn í park- inn og um stíga hans stundarkorn, virðum fyrir okkur gróðurinn og vatnið; enn fremur Wellingtons óbeliska, afar háa steinsúlu, og fleiri minnismerki, áður en við för- um inn í garðinn. Skamt utan við hlið Dýragarðs-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.