Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Side 11
r JLÆSBOK MORGUNBLAÐSLNS 1 í 4!!7 SÓLARÖLD ^JJjamorhan (ítiiucea mótó vú orlut óó L vœcj lannnar NOKKRIR vísindamenn eru nú að fást við að handsama þá orku, sem öflugust er á þessum hnetti og lang- samlega öflugri heldur en kjarn- orkan. Það‘ er orka sólarinnar, er geisist hingað til jarðar 93 mil- jóna mílna veg um loftgeiminn á rúmlega 8 mínútum. Til saman- burðar má geta þess, að hinar allra hraðfleygustu þrýstilofts-flugvj el- ar, sem fara 1000 mílur á klukku- stund, mundu vera rúmlega 1014 sólarhring að fljúga þessa vegar- lengd. Þessi orka veitir oss nú þegar ljós, hita og lífsviðurværi. Allir skógar vorir, kol og olía er ekki annað en sólarorka, sem tekið hef- ur á sig þessar myndir. Það er einnig sólarorkunni að þakka að jörð grær. Sólarorkan veldur upp- gufun úthafanna og ber vatnið úr þeim hátt yfir fjöll, en síðan kem- ur það niður aftur sem rigning og vökvar jörðina. Einnig safnast það í læki og ár, sem mynda fossa, og úr þeim fáum vjer orku. Vindarnir stafa einnig af orku sólar, því að hún hitar misjafnt hina ýmsu staði jarðar. Segja má því, að nú þegar hag- nýtum vjer óbeinlínis nokkurn hluta af orku sólar, þar sem vjer notum orku kola, olíu, gufu, fall- vatna og vinda. En þetta nægir ekki þeim, sem nú eru að leita að leiðum tíl þess að hagnýta sólarorkuna beinlínis. Ef þeim tekst það, þá er mannkyninu borgið um aldur og ævi, því að þá hefur það enga á- stæðu lengur til þess að fást við hin eyðandi öfl, er það leggur nú svo mikla rækt við. Ef svo skvldi fara einhvern tíma að mannkynið hefði sólundað öll- um þeim gæðum, er orka sólar- innar hefur veitt jörðinni — eytt að fullu öllum kolum og olíu úr jörð og gert frjóvsöm lönd að eyði- mörk — þá verður það að lifa á loftinu. Þangað verður það að sækja ljós og hita og fæðu. Og þá koma þessir vísindamenn eins og bjargvættir mannkynsins. Þá þykj- ast þeir munu hafa handsamað sól- arorkuna og menn geti lifað á henni beinlínis. Einn af sólfræðingunum segir að kjarnorkan, þetta reginafl, sem alt mannkyn skelfur nú af ótta við, sje harla lítilmótlegt á móts við sólarorkuna. Hann segir að í einni kjarnorkusprengju sje ekki meiri kraftur en í því sólarljósi, sem fell- ur á 114 fermílu lands á einum degi. Munurinn er aðeins sá, að alt afl kjarnorkusprengjunnar brýst út í einu vetfangi, en kraftur sólarinnar kemur hægt og bítandi. Þessa hægfara orku er hægt að beisla, segja vísindamennirnir. Og þegar er farið að nota hana. Nú cr farið að hita upp hús með sólar- geislum og ennfremur hafa fund- ist ráð til þess að láta þá knýja vjelar. Vjer erum því á rjettri leið. Kjarnorkan er senn orðin úrelt, og í stað þessa ógurlega tortímingar- afls kemur sólarorkan. í staðinn fyrir kjarnorkuöld kemur þá hin langþreyða sólaröld, sem spáð hef- ur verið. t ÞESSI nýu vísindi munu valda gjörbyltingu á öllum lifnaðarhátt- um komandi kynslóða. En til þess að skilja það verða menn líka að skilja hvað orka sólar er, og hver þessi nýi vísindi eru. Þá verða menn fyrst að reyna að ímynda sjer sólina eins og hún var í upphafi sköpunar, þennan geislandi og gjósandi eldhnött, sem gerður er úr gasefnum, 865.000 míl- ur í þvermál, eða um hundrað sinn- um stærri en jörðin, og svo ógur- lega heitur að sums staðar er yfir- borðshitinn um miljón gráður. Sólin er ekki sá skínandi skjöld- ur, sem hún sýnist vera. Hún er ein ógurleg gosstöð, með látlausum sprengingum, og þeysir úr sjer marglitum logagusum þúsundir mílna út í geiminn af svo miklu afli, að þær fara nær 200 mílna á klukkustund. í þessu vellandi og gjósandi eld- hafi eru þau frumefni, sem fundist hafa hjer á jörðinni, svo umbreytt að vísindamenn mundu varla þekkja þau. Af 92 frumefnum jarð- ar hafa þó rúmlega 60 fundist í loftkendu ástandi með ýtarlegum og vandasömum rannsóknum. Hinir einkennilegu grænu og rauðu geislastafir, sem sjást út frá sólinni þegar sólmvrkvi er, hafa lengi verið vísindamönnunum ráð- gáta. Heldu menn fyrst að hjer væri um nýtt frumefni að ræða og nefndu það „eoronium". En fyrir skömmu sannaði sænskur vísinda- maður að „coronium“ er ekki ann- að en sambland af alengum efnum, svo sem járni, nikkel og kolefni. Auk þessara rannsókna, sem að- allega beinast að því að vita hvern- ig sólin hafi myndast og hve langt muni þess að bíða að hún kólm, eru árlega gerðar ýmsar uppgötvanir, rem kollvarpa eldri kenningum. — Menn höfðu til dæmis lengi talið að yfirborðshiti sólar mundi vera um 6000 stig, en árið 1947 sannaði ame- ríski vísindamaðurinn, McMath- Hulbert við háskólann í Michigan, að yfirborðshiti sólar væri að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.