Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Side 3
LESBOK MORGUNBLADSINS 47 b» hið næsta honum ung blómarós. Það má mikið vera, ef guðsmað- urinn Iætur ekki freistast af ynd- isþokka hennar og fegurð, þó að slíkt fari eigi að kaþólskum lög- um. — Yndislegasti staður í garðinum er liklega Fuglahúsið, sem hefur að geyma páfagauka og herskara ýmissa smærri fugla, einkum margskonar spörfugla. — Sumir þeirra syngja af mikilli snilld. Þeir ljóma í öllum regnbogans htum og eru óþreytandi fjörugir. Unaðsleg- astir þessara fugla allra eru ef til vill kanarífuglarnir. Tónar söngv- aranna óma í eyrunum, löngu eftir að út er komið úr tónleikahúsi þessu. Önnur fugla bækistöð er líka í garðinum. Þar búa margvíslegir ránfuglar svo sem gammar, fálkar, haukar og uglur, þær síðast töldu sofandi um hábjartan daginn í sól- skininu, spekingslegar á svip. Og margt er fleira vængjaðra vera hjer, svo sem fasanar: mjög tíma- bærir fuglar, því að fjaðrir þeirra hafa sjest á höfðum margra heldri "kvenna hjer í borg að undanförnu; að ógleymdum páfuglunum, sem eru án efa einna státnastir fugla: breiða úr óviðjafnanlegu fjaðra- skrúði sínu í sólskininu móti gest- um garðsins, er setjast á bekki grasflatanna og virða þessa skart- heðna fyrir sjer — eða taka af þeim myndir, en þeir stilla sjer upp og snúa ýmist höfði eða afturhluta að áhorfanda og myndatökumanni. Margt er fleira fugla að sjá, sum- ir úr fjarlægum löndum eins og mörgæsirnar frá Suðurheimskauts- landi og strútar úr Ástralíu, risar að vexti. Heldur eru þeir, og sumir aðrir hinna stærri fugla, hljóðir. Að undanskildum öpunum eru þó fuglarnir allra dýra garðsins fjör- ugastir og gæddir 'miklum og breytilegum röddum, sönghæfm eða máh. Undanfarna mánuði hef- * * Á baki „Söru“. ur Ulster-búi nokkur, Arnold Benn ington, verið að rannsaka fugla- raddir og taka á mikrófón mis- munandi hljóð þeirra, er hafa miklu víðtækari merkingar en talið hefur verið, samkvæmt niðurstöð- um hans. Bennington er, með öðr- um orðum, að færa sönnur á frá- sagnir ævintýranna um fuglamál og reyna að skilja það! Enn sem komið er látum við okkur nægja að hafa yndi af söng þeirra, er Bennington telur, að feli í sjer að sumu leyti annað og miklu meira en skemtandi raul fyrir makann, eins og kent er í náttúrufræðinni. Ónefnd eru ennþá mörg af dýr- um garðsins. Merkilegast þeirra er fíllinn ,,Sara“ frá Indlandi, gýgur mikil, sem býr í eigin íbúð: Fíls- liúsinu. — Einhver eftirsóttasta skemtun barna, sem koma í garð- inn, er að fá að koma á bak á „Söru“. Út af því bregður ekki í dag. ,.Sara“ krýpur á knje og er hin rólegasta, meðan ungu reið- mönnunum er hjálpað á bak. Fyrst er þríment: Gæslumaðurinn fer á bak ásamt með tveim krokkum og gætir þess, að þau detti eigi af baki, því að af því gætu hlotist al- varleg meiðsl. Riðið er ýmist um- hverfis girðingu eina nálægt Fíls- húsi eða meðfram Aðalvatni. Nú er hringferðin farin. Þegar fyrstu ridd arar hafa lokið reiðför sinni, krýp- ur „Sara“, svo að þeir geti farið af baki, og tvö ungmenni koma í þeirra stað. Færleikurinn rís á fæt- ur aftur og byrjar nýja ferð. Börn- in eru nú ein á baki, án gæslu- manns. Þau eru með Jífið í lúkun- um, titra sýnilega af hræðslu, en halda sjer dyggilega, og ekkert ó- happ vill til. En mikið eru þau •fegin að hafa aftur fast land undir fótum. Og svona gengur þetta koll af kolli. Fóstri „Söru“ er sýnilega mjög hreykinn af þessum vörpulega skjólstæðingi sínum. Jeg reyni að taka mynd af fílnum með börnin á baki, og hirðirinn býðst til að hjálpa mjer í þeim vanda eftir bestu getu. Dagur er að kvöldi kominn, margt eftir að sjá, enn íleira ósagt látið. Endur'oætur miklar hafa ver- ið gerðar á garðinum síðastliðin ár: ný og fögur blómabeð unnin, flatir sljettaðar, ýmsar nýar byggingar reistar, svo að hægt sje að búa sem best að dýrunum og bæta þeim að nokkru það ófrelsi, sem þau óneit- anlega eiga við að búa. — Við hverfum út um hhð Dýra- garðsins og leggjum leiðir okkar gegnum austurhluta „Phuenix Park“, en að nokkru eftir öðrum götum en áður, til aðalhliðs hans. Börn á ýmsum aldri eru að leika sjer undir trjánum, scm taka nú óðum að laufgast. Fuglar syngja dátt í krónum þeirra, frjálsir. Börn- in virðast vera umhyggjulaus og án eftirlits. Þau eru miður hrein og hvergi nærri sælleg. Nærri því lárjettir geislar sólarinnar eru orðnir magnlithr, enda moða í lofti. Elskendur hafa aðsetur hja stóru trje. Daufan ilm leggur úr grasi. vjseíí ‘

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.