Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1950, Page 1
5. tölublað.
Jn*v0mifelatoiit0
Sunnudagur 5. febrúar 1950.
b«I<
XXV. árgangur.
hvalveiðum í sumarfríi
FYRIR um það bil þrjátíu árum
kom lítill drengur til móður sinnar
og bað hana að gefa sjer 5 aura til
að kaupa öngla fyrir, því hann ætl-
aði að veiða silung „inni í á“. Sjálf-
ur hafði hann einhvers staðar kom-
ist yfir kústskaft og seglgarns-
spotta. Jú, önglana fekk hann, en
mamma hans sagði við hann um
leið og hann fór: „Varaðu þig á
ánni, góði minn, og — komdu svo
ekki heim með öngulbrot í rassi!“
— Skömmu síðar kom snáði heim,
heldur niðurlútur, með enga veiði,
en öngulinn fastan í sitjandanum.
Hann hafði festst þannig í fyrsta
útkastinu — í fyrstu veiðiferðinni.
Snáðinn hjet Páll A. Pálsson;
hann hefur síðan ofangreind saga
gerðist, veitt í ýmsum ám bæði sil-
ung og lax, og verið mjög aflasæll.
Hann hefur einnig um mörg ár
skotið alls konar fugla, seli og hnís-
ur í frístundum sínum, þar til nú
um þrjú síðustu sumur, að hann
hefur gefið sig veiðimenskunni al-
gerlega á vald, með því að stunda
hvalveiðar fyrir Norðurlandi, frá
maí-byrjun til ágústloka, ásamt fje-
laga sínum, Hjálmari Halldórssyni,
fyrst á 12 tn. bát, sem „Skúli
fógeti“ heitir, en nú á 13 tonna bát,
sem „Björgvin“ heitir og þeir eiga.
Jeg fór í eina hvalveiðiferð með
þeim í sumarfríinu mínu, og vegna
þess að mjer sem „landkrabba“
þótti hún býsna ævintýraleg, skrif-
aði jeg eftirfarandi, ef einhvern
annan „landkrabba" langaði til að
koma með okkur.
£
UM kl. 4 e. h„ fagran blíðviðrisdag
síðast í júlímánuði var lagt af stað
frá Akureyri. — Jeg er í stýrishús-
inu hjá Hjálmari, sem segir mjer
heiti á öllum bæum út með firð-
inum og ýmsar sögur í sambandi
við þá, — sennilega ýmist sannar
eða lognar — sem látnar verða
liggja í þagnargildi hjer. „Björg-
vin“ gengur sjerlega vel — á 9.
mílu — og okkur miðar vel út
fjörðinn; Krossanes, Dagverðar-
eyri og Hjalteyri eru þegar að baki.
— Það var ömurlegt að líta í lsnd
til þessara staða á þessum tíma árs
og sjá engan reyk úr verksmiðjun-
um — engin síld — engin bræðsla.
Úti í mynni Eyjafjarðar, austan-
verðu, var sú mesta hvítfuglamergð