Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1950, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1950, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 67 bragði snerist báturinn við og nálg- aðist fuglahópinn; — bara að þeir yrðu ekki of seinir, — nei, nú var hópurinn í skotfæri; — hrefnan kemur upp aðeins austan við hóp- inn, — en er samt í skotfæri — Páll beinir byssunni í öfuga átt, en snýr henni nú með eldingarhraða að hrefnunni, sem er að fara í kaf, — miðar — • — skotið ríður af með ógurlegum hvelh — báturinn nötrar — skutullinn þýtur út úr byssunni í gegnum eldglæringar og reykhaf, og gengur á hol hrefn- unni; — hún tekur viðbragð — hættir við að stinga sjer, — veður ofansjávar stutta stund og sjórinn hvítfyssir af henni; — fer svo í kaf með ógnarhraða, — og það hvín og syngur í kaðlinum, þegar hann raknar út og nuggast við borð- stokkinn. Nú gerðist margt á skömmum tíma. Byssan var hlaðin á ný og Páll var tilbúinn að skjóta öðrum skuth, þegar hrefnan kæmi upp aftur. — Mennirnir gjörbreyttust af taugaæsingi, og mjer sýndust handtök þeirra dálítið fumkend fyrst eftir að skutullinn hæfði hval- inn, og þeir sögðu við mig: „farðu frá maður — frá!“ þótt jeg væri alls ekkert fyrir þeim! — eða skip- uðu mjer að ná í ýmsa hluti, sem jeg vissi hvorki hvar voru eða hjetu! — en þetta varaði aðeins nokkur augnablik. Páll skaut aldrei öðrum skutli á þessa hrefnu; þess þurfti ekki með. Hún kom rólega upp skamt frá bátnum, — og nú myndaðist eng- inn regnbogi af blæstri hennar, heldur sævi-blandinn blóðstrókur; — það var hennar síðasta andvarp. Hrefnan hafði skotist mjög vel og dauðastríð hennar stóð því skamma stund, sem betur fór. — Fjelagarnir náðu til kaðalsins; hrefnan var dregin að borðstokknum, stórar ífærur settar í hana og ramlega bundið. GAMANIÐ fyrir mjer var eigin- lega búið samtímis og hvalurinn var skutlaður. Það er öðru nær en að það sje ánægjulegt að sjá skepn- ur kveljast eða drepast, og mjer þótti vænt um, hve dauðastríð hrefnunnar tók skamman tíma. — Páll sagði mjer líka, að þeir reyndu að drepa hvalina eins fljótt og mögulegt væri, og hefur hann ágætan útbúnað til þess um borð, eins og áður er getið, en auk þess byssu með sprengikúlu. Hann sagð- ist einnig eiga von á skutlum með sprengikúlu, eins og notaðir væru við stærri hvali, en þeir mundu sennilega í allflestum tilfellum bana hrefnunum samstundis. inn; salan á hvalkjötinú eýkst jafnt og þjett, og á nokkrum klukku- stundum er það uppselt. — Hnísan forvitna var einnig farin. Um hádegisbilið færir Páll móð- ur sinni vænan hrefnukjötsþita í „buff“. — Hann kom ekki heim „með öngulbrot í rassi“ að þessu sinni. Ilallilór V. Páhsnn. BRIDGE S. 8 6 H. G 9 3 T. Á K 4 L. D 10 9 2 S. 5 3 H. 7 6 2 T. 6 5 3 2 L. 7 5 4 3 S. Á K D G 4 2 H. 10 5 4 T. G 10 7 L. Á Þetta spil er tekið úr „The Bridge World“ og sýnir að það er ekki sama hvernig menn spila hrökunum. Hjer hefur það úrslitaþýðingu fyrir spilið hvernig A. gefur af sjer. S hafði sagt 4 spaða. V. byrjaði á því að taka 3 slagi í hjarta og sló svo út trompi. S getur ekki unnið, ef rjett er spilað, því að hann hefur tígulhrak, sem hann getur ekki losnað við. Hann sjer, að eina ráðið er að koma mótspila- mönnum í kastþröng því að verið geti að þá reyni þeir að verja lauf. Hann slær því út öllum trompunum og V á í vök að verjast. f fjórða trompið fleygir hann hjarta, og laufi í fimta trompið. En hvað á hann svo að gefa í sjötta trompið? A hafði gefið honum leiðbeiningar um það. Hann hafði sem sje fleygt af sjer í röð T 2, 3 og 5. Með því sýndi hann, að hann átti ekki T 4 og þess vegna hlaut S að hafa það spil á hendi. V fleygði þess vegna L G í sjötta trompið og S tapaði spilinu. íW >w Var nú haldið til Húsavíkur1, hrefnan dregin upp í fjöru og skor- in. Það tók nokkra klukkutíma, s- þ0 9 7 þótt þrír vanir menn væru að H. A K D 8 * 1 ^ Q g verki, og vel unnið, með hárbeitt- j' ^ q 6 um sveðjum. — Nokkrir Húsvík- ingar keyptu þarna glænýtt hval- kjöt, en annars var öllu ekið um borð, því ákveðið var, að þessi hvalur seldist á Akureyri. 4 KLUKKAN var 7 að morgni, fjórða dag veiðiferðarinnar, sem nú var að ljúka. Jeg var kominn upp á þilfar og virti fyrir mjer hið dá- samlega umhverfi. — Við vorum staddir skamt fyrir utan Oddeyrar- tanga við Akureyri. Veðrið var... ; já, það var einn af þessum rómuðu norðlensku sumardögum í sínu fegursta skrúði, með glampandi sóiskini, og logni; — sjóinn spegl- aði; — og bærinn var að vakna. Undir eins og lagst er að bryggju hefst salan á hvalkjötinu. Fyrsti kaupandinn er verkamaður á leið til vinnu sinnar. Hann er afgreidd- ur, og svo heldur hann upp í bæinn, þar sem hann mætir ýmsu fólki — og — „flýgur fiskisagan“. Því fleiri sem eru afgreiddir, því fleiri gang- andi auglýsingar dreifast um bæ- N V A S

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.