Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1950, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1950, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 69 ur og Baldvin sonur þriðju kon- unnar, Helgu Sigmundsdóttur. Syst kini Baldvins voru fjöldamörg, og skulu þessi nefnd hjer: (1) Stefán faðir Jóns (Þorgils gjallanda) rit- höfundar á Litlu-Strönd; (2) Hjálm ar faðir sira Helga á Grenjaðar- stað; (3) Þuríður kona Jóns bónda Árnasonar á Skútustöðum, en með- al barna þeirra voru sira Árni á Skútustöðum, Sigurður í Yztafelli, Hjálmar á Ljótsstöðum, Helgi á Grænavatni og Hólmfríður kona Páls Sigurðssonar í Skógum; (4) Friðrika kona Jóns skálds Hin- rikssonar á Helluvaði, en sonur þeirra var Jón alþingismaður í Múla. Baldvin Helgason kvæntist 1848 Soffíu dóttur Jósafats á Stóru-Ás- geirsá í Víðidal, Tómassonar stúd- ents Tómassonar. Tómas stúdent átti margt barna, og ekki öll getin í hjónabandi, enda kallar kirkju- Foreldrar Úndínu. Baldvin Helgason Soffía Jósafatsdóttir. bókin hann kvennamann. Er margt merkisfólk af honum komið. Kona hans, sú er móðir var Soffíu, var Ljbtunn systir Jóns sýslumanns á Melum við Hrútafjörð. Um hana kvað Tómas: Ber af öllum snótum snót, snótin blessuð veri; aldrei verður Ljótunn ljót, ljótt þó nafnið beri. Kona Jósafats, en móðir Soffíu, var Helga Bjarnadóttir frá Þór- ormstungu, systir Jóns hins spaka og stjörnufróða, þess er Björn Gunnlaugsson ritaði um látinn. Soffía var fædd 1830, en andaðist 1902. Þau Baldvin eignuðust fjölda barna, sem urðu hið mesta myndar- fólk, en öll þau, er fædd voru hjer heima, fluttust með foreldrum sín- um vestur um haf. Systurnar Friðrika, Jósefína og Helga Baldvinsdætur. Myndin er líklega tekin á Akureyri rjett áður en fjölskyldan fór vestur. Annar sonur Tómasar stúdents, og þó ekki af sama hjónabandi og Jósafat, var sira Jóhann á Hesti, talinn frábær gáfumaður, gott skáld bæði á íslensku og latínu, en bjó alla æfi við ákafJega þröngan kost. Hann andaðist 1865, en mjög liíði minning hans í Borgarfirði á meðal hinnar eldri kynslóðar þegar sá er þetta ritar var að alast upp. Eru honum þó nú gleymdar flestar þær sögur er hann þá heyrði um hann og' ýmist sögðu frá gáfum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.