Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1950, Side 1
Helgi Tómasson dr.:
GEÐVERND
Erindi þetta flutti dr. Helgi Tómasson á stofnfundi Geðvarnafjelags
íslands 17. janúar 1950. Segir hann þar frá aðdraganda að stofnun fje-
lagsins, tilgangi þess og starfsviði
Á FUNDI Læknafjelags Reykja-
víkur 12. nóv. s.l. í tilefni af afmæli
fjelagsins, leyfði eg mjer að brjóta
upp á nokkrum framtíðarverkefn-
um í heilbrigðismálum, sem mjer
virtist æskilegt að Læknafjelag
Reykjavíkur ætti frumkvæði að,
fyrst og fremst að því er snertir
fjelagslega og andlega hlið heil-
brigðismálanna yfirleitt.
Eg taldi að eitt af þeim þörfustu
verkefnum, sem Læknafjelag
Reykjavíkur gæti nú þegar beitt
sjer fyrir, væri stofnun almenns
fjelagsskapar til geðverndar og hug
ræktar, sem ætti að hafa það meg-
inmarkmið að leiðbeina fólki um
hvernig það mætti helst verða að-
njótandi sem fullkomnastrar and-
legrar heilbrigði, auk líkamlegrar
og fjelagslegrar.
Fell þetta í svo góðan jarðveg
að samþykt var að á næsta fundi
skyldi kosin fimm manna nefnd til
þess að undirbúa stofnun slíks fje-
lagsskapar. Kosnir voru í nefndina
Kristbjörn Tryggvason formaður
Læknafjelags Reykjavíkur, Karl
Sig. Jónasson, Páll Sigurðsson, Al-
freð Gíslason og Helgi Tómasson.
Samdi nefndin frumvarp að lögum
fyrir Geðverndarfjelag íslands, bar
það undir fjelagsfund í Læknafje-
lagi Reykjavíkur í miðjum desem-
ber og var nefndinni síðan falið að
vinna áframhaldandi að stofnun
fjelagsins.
VEGNA hinnar auknu fjelagslegu
þýðingar, sem heilbrigði og sjúk-
dómar hafa nú á dögum, er lækn-
um ljóst að þeir hafa þörf fvrir
aukinn skilning og stuðning al-
mennings til þess að ná sem best-
um árangri af starfsemi sinni. Þess
vegna teljum við að slíkur fjelags-
skapur sem hjer um ræðir eigi að
vera f jelagsskapur almennings, und
ir forustu lækna og valinkunnra
fulltrúa þeirra starfsgreina, sem
nánast snerta það svið, sem um er
að ræða. „Mental hygiene“, andleg
heilsuvernd, eða geðvernd eins og
við nú viljum kalla það, er þegar
orðið allgamalt „slagorð“. Lengi
vel var aðallega um að ræða orða-
tildur velviljaðra leikmanna, sem
mikið til virtist til orðið við skrif-
Helgi Tómasson dr.
borð vel færra rithöfunda, eða í
munni flugmælskra ræðumanna.
Voru margir því lengi framan af
hikandi gagnvart spursmálinu, en
fyrir framfarir þær, sem orðið hafa
á síðustu 30 árum í geðveikifræði,
sálsýkisfræði, sálarfræði, fjelags-
fræði, barnasjúkdómafræði og elli-
sjúkdómafræði, svo og uppeldis-
fræði og sakfræði og öðrum skvld-
um greinum, þá hefur þekking vor
á þroskaskilyrðum og þroskamögu-
leikum einstaklinganna á fjelags-
heildina orðið það mikil, að rjett-
mætt virðist að reyna að gera hana
almenningi aðgengilega, í þeirri
von að til nokkurs gagns megi
verða fyrir alla.
Auðvitað getur menn greint á
á þessum sviðum heilbrigðisfræði