Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1950, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1950, Side 10
1•» 8(5 LESBOK MORGUNBLAÐSINS Engiandi. Þar voru höfuðstöðvar setuliðsins á austurströndinni og þar var helsta skelfiskveiðistöð Rómverja. Reculver, sem Rómverjar nefndu Regulbium, er níu mílur vestur af Margate og er nú eina mílu inni í landi. Áður lá hún við Rutupian- sundið sem er milli Thanet eyar og Kent. Þar höfðu Rómverjar herskipahöfn og kastala. Nú er gamla hafnarborgin horfin í sjó. Hastings hefir sennilega verið helsta borgin í bandalaginu á dög- um Hinriks II., því að hann veitti henni ýmis sjerrjettindi. Önnur höfn, sem lá undir Hastings, var Pevensey, þar sem Vilhjálmur bast arður gekk á land. Mælt er að þar sjáist enn steinn, sem konungur- inn hnaut um er hann gekk upp úr fjörunni. Hastings hefur verið endurbygð þrisvar sinnum og færð vegna ágangs sjávar. Elsta höfnin er nú úti í sjó. Romney er atta mílur suðvestur af Hythe. Höfnin þar eyðilagðist á 13 öld og nú stendur staðurinn hvorki við sjó nje skipgenga á. Höfnin í Winchelsea eyðilagðist í sjávargangi 1287, og veit nú eng- inn hvar hún hefir verið. Höfnin í Hythe hefir sennilega verið þar sem nú heitir Lympne, en Rómverjar kölluðu Portus Lem- ants, og er nú þrjár mílur inni í landi. Hin núverandi Hythe stend- ur á hæð. Rye er nú tvær mílur inni í landi, því að svo langt hefir ströndin færst fram þar sem áður var höfn. Þessari höfn bætti Hinrik III. í hafnarborga sambandið. Dover hefir orðið fyrir ýmsum skráveifum af sjónum, én altaf hef- ir tekist að varðveita höfnina þar. NÚVERANDI Lord Warden of the Cinque Ports er Winston Churchill, og hefir hann haldið þeirri nafnbót síðan 1941. Nafnbótinni fylgir það að vera vörður í Dover kastala og „aðmíráll“ hafnarborgasambands- ins, með rjettindum til að kjósa friðdómara. Það er mjög virðuleg athöfn þegar Lord Warden er sett- ur í emfeætti sitt. Við þá athöfn kemur borgarstjórinn í Sandwich fram með svartan staf og er hann talinn sorgartákn frá því norrænir víkingar rjeðust inn í landið árið 840 og brytjuðu niður íbúa hinna fimm hafnarborga. Fyr á öldum hafði Lord Warden eða yfirmaður The Cinque Ports, afar mikil völd. En eftir því sem gengi hafnarborga bandalagsins rjenaði, þverruðu og völd hans og eru nú ekki nema nafnið eitt. En það er ein af virðulegustu stöðum í Englandi að vera Lord Warden og margir af frægustu mönnum þjóðarinnar hafa borið þann titil. (The P. D. Review). ÍW 5W ^ íW íW í KENSLUSTUND Börnin áttu að fara með ljóð og eitt barnið fór með þessa vísu: Hver er sá veggur víður og hár vænum skreyttur röndum, gulur, rauður, grænn og blár gerður af meistara höndum? Kennarinn: Þið vitið sjálfsagt öll að þetta er gáta um friðarbogann. En get- ui nokkurt ykkar sagt mjer hver er meistarinn, sem gerði hann? Barn af „rauðu heimili": Stalin. ★ Kaupmaður nokkur hafði lengi ár- angurslaust reynt að kalla inn skuld hjá einum af viðskiftavinum sínum. Sem seinasta úrræði reyndi hann að skrifa skuldunaut sínum átakanlegt brjef og ljet fylgja mynd af lítilli dótt- ur sinni. Undir myndina skrifaði hann þetta: „Ástæðan til þess að jeg þarf að fá greiðslu“. Svarið kom þegar. Það var mynd af stærðar kvenmanni í baðfötum, og neð- an á myndina var skrifað: „Ástæðan til þess að jeg get ekki borgað".

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.