Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1950, Page 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
87
imnar
KÍNVERSKIR BÆNDUR
BÆNDUR KÍNA eiga engar land-
búnaðarvjelar og hafa ekki tilbú-
inn áburð, en fá þó helmingi meiri
uppskeru af hveitiökrum sínuin
heldur en bændur í Bandaríkjun-
um. Þetta stafar af því að kín-
verskir bændur elska jörðina og
þekkja hana eins vel og fingurna á
sjer eftir þúsunda ára reynslu.
Kínverskir bændur eru hygnir
á marga lund og hafa mikla þekk-
ingu, vegna þess að kínversk menn-
ing er hin elsta í heimi. Frá örófi
vetra hafa Kínverjar einir bygt
land sitt og eru eins og grónir við
það. Margar innanlands styrjaldir
hafa verið háðar þar, en útlendur
her hefir aldrei lagt alt landið und-
ir sig., Þess vemia hqfir k|nversk
menning og þjóðhættir haldist svo
að slíks eru ekki dæmi með öðr-
um þjóðum. Öld eftir öld hafa Kín-
verjar tekið í arf menningu for-
feðra sinna, svo að þar hefir aldrei
orðið neinn ruglingur á.
Af þessu leiðir það að Kínverj-
ar eru mjög íhaldssamir og vana-
fastir. Þeir gefa engan gaum að
framförum annara. Þeir standa
föstum fótum í aldagamalli venju
og siðum. Þar halda ættbálkarnir
enn saman og það hefir stórkost-
lega þýðingu fyrir alt þjóðlíf
þeirra.
Stjórn allra málefna í sveitar-
hjeruðum Kína er í höndum helstu
ættanna, sem hafa lifað þar á sama
gfofi um -rn^QT»rror plHir J h^SSUITl
gömlu ættum ganga öll embætti að
erfðum, svo sem dómaraembætti og
sveitarstjórnarembætti. Þetta fyr-
irkomulag hefir marga kosti, en
leiðir til hins megnasta íhaldt,.
Ættgöfgi og ættarmetnaður er sá
leiðarsteinn, sem allir verða að
fara eftir. Ættarsögurnar eru í
' miklu meiri metum heldur en saga
þjóðarinnar. Börnunum eru sagðar
og kendar sögur af forfeðrum sín
um löngu áður en þau fá vitneskju
um sögu þjóðarinnar. Það er alls
ekki sjaldgæft þar að menn geti
rakið ættir sínar 1000 ár aftur í
tímann. Sú saga gengur um mann,
sem heitir dr. Kung, að hann geti
rakið ætt sína alla leið til Konfusi-
us, sem var uppi fimm öldum áð-
tlih
Þegar stórfljótin flæða yfir landið', eiga kínverskir bændur bágt, og stjómin verður að hlaupa undir bagga.