Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1950, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1950, Page 5
LESBÓK MORGUNBLí\ÐSINS 129 veg farið eftir hinum konunglegu íyrirmælum. Viljið þjer ekki íhuga hvílíkt ör- yggisleysi í rjettarfari stafaði af því, ef æðstu yfirvöld tæki málin þegar af undirrjetti og afgreiddu þau sjálf með úrskurði? Tilskipun 12. mars 1735 mælir svo fyrir að sektir fyrir helgidags- brot skuli þegar innheimtar mis- kunnarlaust og án manngreinar- áhts. Og þar sem pósturinn fór út- úrkrók og Markús Jónsson tók upp hjá sjálfum sjer án skipunar frá yður, ásamt förunaut sínum, að rjúka á ósvífinn hátt frá Viðey meðan samhringt var til hámessu, þá verð jeg að skora á yður að fela landfógeta að innheimta sekt- irnar, ef þeir reynast sekir, og af- henda þær dómkirkjuprestinum, svo að hann geti gefið skýrslu um þær samkvæmt fyrirmælum 1. júlí 1746 i'rá biskupinum yfir íslandi. JAFNFRAMT þcssu sendi biskup skýrslu um málið til Kansellísins og bað um úrskurð þess. Höfðu þá báðir málsaðilar snúið sjer þang- að Úrskurður Kansellísins kom ekki fyr en árið eftir og var birtur í brjefi til Levetzow 26. maí. Brjef- ið er á þessa lcið: — Biskupinn í Skálholtsstifti, hr. Hannes Finnsson hefur sent hing- að skýrslu ásamt fylgiskjölum, og sjest á henni að hr. Kammerherr- ann hefur með úrskurði 23. apríl f á. veitt dómkirkjuprestinum Guð -mundi Þorgrímssyni ávitur fyrir það að hann hafði, samkvæmt til- skipun um helgidagshald, kært þrjá menn er ferðuðust á helgum dög- um meðan á guðsþjónustu stóð. Þeiman úrskurð hafið þjer sent landfógeta með skipun um að birta hann prestinum. Vipt er það, að póstar verða að h.raða ferðum og ferðast jafut helga daga sem virka, og að þjer getið hagað póstferðum eftir eigin vild. En þar sem prestur hafði ástæðu til að ætla að pósturinn færi slnna eigin ferða, þar sem hann fór ekki hina venjulegu póstleið, þá var prestur í vanda staddur, þar sem honum ber að kæra alla, sem ferð- ast um helgar. Það er þess vegna síst að undra að prestur kærði manninn fyrir landfógeta til þess að fá úr því skorið hvort póstur- mn hefði verið í embættiserindum eður eigi, og hvort hann væri sek- ur um helgidagsbrot eður eigi. Eftir málavöxtum verður að telja að dómkirkjupresturinn hafi gert skyldu sína, þegar hann kærði Sigvalda Sæmundsson póst fvrir landfógeta og bar honum á brýn helgidagsbrot, þar eð hann fór fram hjá Laugarneskirkju á pálmasunnu -dag um messutíma og presturinn varð að álíta að hann væri ekki í pósterindum. Eigi verður heldur sjeð að dóm- kirkjupresturinn hafi gert nein af- glöp er hann kærði Markús Jóns- son hraðboða, og Ólaf Bjarnason, sem ferjaði hann, fyrir það að þeir hefði farið frá Viðey í þann mund er samhringt var til guðsþjónustu, allra helst þegar þess er gætt, að það var undir áliti yfirvaldsins komið livort þessir menn skyldu dæmdir til að greiða sektir, eður eigi. Dómkirkju'presturinn hefur bví haft ærnar ástæður til að breyta eins og hann gcrði. En framkoma yðar, hr. Kammerherra í þessu máli, verður að leljast ósæmandi, eigi aðeins vegna þess að þjer gefið prestinum áminningu — en það hefði biskup átt að gera ef þörf krafði — heldur og vegna þess að þjer takið máhð úr höndum þess cmbættismanns, cr konungur hef- ur falið að fara mcð slík mál, scm sje landíógeta. Jafnframt því að tilkymia yður þetta, verður einnig að áminna yð- ur um að hegða yður eldu svo við andlegrar stjettar menn eftirleiðis, að þjer viðhafið orð, ^gm, fá illa samrýmst metorðum yðar og því embætti, sem yður hefur verið trú- að fyrir. ,, /; T VERRI útreið gat stiptamtmaður tæplega fengið. Hann er eigi að- eins víttur fyrir það að hafa farið með lögleysu og yfirg^ng, þcldur er hann hirtur í orðum eins og ó- vandaður frumhlaupsmaður. Mál þetta sýnir glögglega hver viskumunur var þeirra stiftamt- manns og biskups. En það bregður einnig upp mynd af því hvernig sumir erlendir valdsmenn þóttust geta skákað hjer í konungsvaldi, og skókuðu oft þegar enginn ís- lendingur varð til þess að reisa rönd við þeim. Atvikin, sem málið reis út af munu nú talin lítilsverð, vegna þess hvernig komið er um helgi- dagahald. En þar var þó meira í húfi, því að háyfirvaldið gerði sig að einræðisherra og kvað upp geð- þóttaúrskurð. Vörn biskups er því vörn íslendinga gegn ofbeldi, og er einn þátturinn í sjálfstæðisbar- áttunni. Þess vegna er málið merki- legt. Á. Ó. (Hcimildir: Brjcfabók Hanncsar bisk- ups Finnssonar. — Brjcf til Skúlholts- biskups í Þjskjs. — Lovsamling for Is- lcnd II, III, IV. — Brjefabók stiftamt- manns. — Jón Helgason dr.: Hanncs Finnsson. — Árbækur F.spholins XI. — Magnús Slcphcnscn, sjúifsævisaga). V V V. Sjómaður kom henn úr laiigri ferð og fyrsta verk hans var að hringja til vinkonu sinnar. Hann-vat licldúr en ckki dauíur í dúikinn, cr hann köm til fjclaga síns, sem beðiö haíði eftir honum ú meðan. , ^ „Ilún ætlar að fara að gjya.sig". Kærðu þig kollottan um þáð,Áiðg ér til af stulkunum". -"■-i -* • „ Já — en — en huá ætlár áð giffc- ast mjer“. •,* r> ■ ebne : ít/u

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.