Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1950, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1950, Side 7
LESBÖK MOHGUNBLAÐSINS 131 I Vií íshaf nyrst er önn og vetrarhríSin, en einnig heið og nóttlaus sumartíðin, og fólk sem býr þar hörðum höndum vinnur, en hvorki gull nje silkiþræði spinnur. Og ljóðin sem þú sjerð hjer, eru ei annað * en efni smá á götu sinni er fann það; það kemur hjer í kUeðum hversdagsanna og kann ei alla siðu lærðra manna. Nú kýs hún gjarna lærðra skálda ,ljóðin‘, í lausn máli saman tekin, þjóðin sem hrynh'enduna og hringhenduna orti og hagmælsku á sljettubönd ei skorti. En þeir sem hjerna eru, kiurna eigi að ,yrkja‘ svo að hvergi greina megi að ljóðað mál sje; stuðla og höfuðstafi þeir stöðugt — þó að aðrir kastað liafi — í Ijóðaformið heimta; jaínvel halda að hina, sem ei þessu megna að valda, í hagyrðinga hóp ei beri að telja, þó liærri ,skálda‘ sess þeim megi velja. En þó þau kveðin sjeu að sömu lögum og sjálfur Jónas hlítti fyr á dögum og Hallgrimur, sem helgum bljes að glóðum. slxer hjarta fólksins enn i þessum ljóðum. Og er ei betra hjartslátt þann að heyra en hlusta þar sem dreitlar lækjarseyra í rauðamýri rimleysisins snauða, það raunamerki hjarta og sálar dauða? Að aldrei þagni sveitalifsins söngvar, að sori falli í lindir þeirra öngvar, þess biðja þeir sem ættjörð sinni unna og óiiLst upp við Ijóðsins tæru brunna. II (TIL ÞÓRARINS STEFÁNSSONAR) Lattu reitinn, þjóð min, þeuna, þegna trúrra unnið verk; sjáðu hópinn karla og kvenna klæddan vinnulýðsins serk. Lúin hönd þó hjeldi á penna, hjer var ritin saga merk. Árin líða, aldir renna, ei skal hrynja varðan sterk. Vinnulagið letistirða löngum sástu nú um hríð. Þeir sem ekki um arfinn hirða, enn eru miður þarfir lýð; hinir ættar-óðal girða, ekki flýja þraut nje stríð. Viltu, þjóð mín, þessa virða þeir er skapa frægri tíð? Máske nýjum reifuð roða rísi frægðarsól þín næst; tíma sýnist betri boða bjarmi er hefir norðrið glæst; þá var stundum varnað voða er virtist mundi um bjargir fæst. — Vel sje þeim er þann dag skoða þegar hún sjest á lofti Iiæst. Lengi skyldi akur erja ávöxt fyr en gefi hann, gróðurreit þarf vel að verja, vísa hverri skemd í bann. Blessi regin heilög hverja hönd er að þvi starfi vann; það að gera særi sverja sjerhvern biðjum nýtan mann. Þingeyingur, brund og halur, hjer var lof þitt vottum fest, skreyttur þinnar sæmdar salur, svo hann virðist prýða flest. Ónytjung var aldrei falur orðstíi1 sá er lýsir mest; endurhljómi hiíð og dalur: „Heima þjóna eg guði best“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.