Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1950, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1950, Qupperneq 8
132 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 01 unnar fjjóhr AFRIKUMENN í AFRÍKU eru rúmlega 2000 bjóð- ílokkar. Hver þeirra hefur sína sjer stöku siði og venjur og hugmyndir. Hver þjóðflokkur talar sína tungu, sem er frábrugðin tungum hinna. Samtals eru hinir dökku íbúar þess arar álfu um 150 miljónir. En hvít- ir menn í álfunni eru ekki nema um 3 miljónir. Frumbyggjar álfunnar eru mjög Diismunandi. í hátt. — Sumir eru tinnusvartir, aðrir Ijósbrúnir. Sum- ir eru með snarhrokkið hár, aðrir með strítt og sljett hár. Sumir eru flatnefja og með afar þykkar varir, aðrir með hvöss nef og þunnar var- ir. Sumir eru skeggjaðir, en öðrum vex ekki skegg. Sumir eru hraustir og harðfengir, miklir á velli og gjörfulegir, aðrir eru dvergar að \exti. Menning þcirra er jafn marg- brotin eins og kynin eru mörg'. — Rjett sunnan við Sahara eyðimörk- ina býr Hausa-kynþátturinn. Þeir eru Múhamedstrúar. Þeir hafa kvik fjárrækt, nautgripi, sauði og geit- ur Þeir stunda akuryrkju og iðnað, framleiða gler, ofnar mottur og körfur, vefa dúka í föt handa sjer og framleiða alls konar nytsamar og fallegar \örur úr leðri. Þeir byggja sjer reisuleg hús ur leir og grjóti. Þeir eru sjálfstæðir og hafa sin eigin lög og dómstóla. Ólíkir þeim eru Buskamennirnir, sr m ciga heima hjá Kalihari eyði- ínörkinni og þar í grend. Þeir eru heiðingjar og trúa á tunglið. Þeir liía aðalícga á ávöxtunx og rótum og smáurn dýrum, sem þeir geta veitt í gildrur. Konur þeirra byggja húsm cg eru þau gerð úr greinum og grasi og standa nokkur saman í þyrpingu, svo sem mílu vegar eða meira frá næsta vatnsbóli. Ekki þykir vogandi að hafa bygðina nær vatnsbólinu, svo að ekki fælist dýr- in, sem leita sjer þar drykkjar. Sje aýrin fæld frá vatnsbólinu er loku fyrir það skotið að hægt sje að veiða og hafa kjöt á borðum. Buskamenn hafa ýmsar cinkenni legar venjur. Þegar fjölskylda er orðin svo mannmörg, að allir geta ekki sofið í kofanum, verða elstu börnin að liggja úti. Engin áhöld eiga þeir og engin húsgögn, en ílát þeirra eru aðallega strútseggjakopp ar og illa smíðaðar trjeskálar. Þeir eru altaf á flökti fram og aftur, og þess vegna kemur það sjer vel að hafa lítinn flutning. Þegar allir ávcxtir og rætur er upp etið á ein- hverjum stað, er ekki unx annað að gera en flytja búferlum og setjast að í námunda við næsta vatnsból. Föt eiga þeir engin, en karlmenn gera sjer skýlur úr dýraskinnum. \ opn ciga þcir ekki önnur en boga, og eru ör\rarnar með beinoddum. Þeir hafa enga hugmynd um bað hvernig á að rækta jörðina eða hafa tamin dýr. Á þessum sanxanburði á Hausa- þjóðflokknum og Buskmönnum má sjá hve mikill munur er á hinum ýmsu þjóðflokkum í Afriku. ÞEGAR hvítir menn íóru að kynn- ast Aíríku komust þeir að raun um að þar voru ágæt skilyrði til þess að rækta sykui'reyr, bómull, kaiíi og margs konar aðrar utflutrúngs- vorur. En þegar þeir ætluðu að byrja a ræktun, urðu þeir undir eins í hraki með vinnuafl. Svörtu mennirnir vildu ekki vinna hjá þeim. Þeir voru sínir eigin herrar, höfðu nóg handa sjer og kærðu sig ekki um meira. Þannig var til dæm is um Kaffana. Þeir höfðu reist sjer stór þorp (kraals), víggirt með timburgirðingu, og yfir hverju þorpi rjeði einvaldur höfðingi. Þeir eignuðu sjer alt land þar í nágrenn- inu, enda þurftu þeir á því að halda sem beitilandi fyrir nautgripa hjarð ir sínar. Varði hvert þorp sitt land með oddi og egg, hver sem í hlut átti. Það voru því Kaffarnir, sem íyrstir risu upp gegn hvítum mönn- um (Bretum og Hollendingum) og háðu orustur við þá. Hvítu mcnnirnir voru nauðbeygð -ir til þess að flytja inn vinnuafl, og þcir sóttu verkamenn austur til Indlands. Það voru ágætir starfs- menn og þeir settust að í Afríku. Margir þcirra hafa orðið landeig- endur ðg’ auðgast vel, aðrir hafa crðið kaupsýslumenn. — Nú sem stendur cr um hálf miljón inn- lluttra Indverja í Afriku, og hafa aí því íásið ýmis vandamál. EKKI hafa allir innfæddir Afríku- menn verið hvítum mönnurn and- vígir, enda gætir nú áhrifa menn- ingar hvítra manna þar meir og meir með hverju árinu sem liður. En mikill munur er á hinum svörtu mönnum og hinum gulu Indverjum. Indverjar búa að gam- alli og rótgróinni menningu, og ’eiga langa sögu að baki. Megin- þorri Svertingjanna á sjer enga sögu og enga menningu. Trúar- brögð þeirra eru sambland af kyngi og ótta. Fortíðin er þeim sein lok- uð bók. Engir þjóðflokkar þax' þektu lcturgerð, þegar hvítir menn komu til sögunnar, nema þeir fáu, sem höföu liaft kynni af Múham- edstruarmonnum nyrst í alfunní og menningu þeirra. Flestir Afríku- búar tjá geðshrænngar sínar auð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.