Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1950, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1950, Page 1
42. tbL Sunnudagur 12. nóvember 1950. XXV. árgangur. Ævilok Jóns biskups Arasonar og heíndir Norðlendinga NÚ ER Daði hafði handtekið þá Jón biskup Arason og syni hans á Sauðafelli, flutti hann þá með sjer heim í Snóksdal og hafði þá þar í varðhaldi þröngu. Sendi hann þegar suður að Bessastöðum til Kristjáns skrifara, umboðsmanns Laurusar Múla, en ritaði honum hvar komið væri; Ijet það um mælt að Kristján vissi vel boð kon- ungs til höfuðsmannsins, að taka Jón biskup, en nú byrji honum hans erindum að gegna, þar hann sje eigi í landi, og taka við þessum mönnum, er nú sje hjá sjer í varð- haldi, bað hann koma sem skjót- ast á sinn fund. Minnisvarði Jóns biskups Arasonai og sona hans i Skálholti reístur ai enskri konu. 1 Snóksdalsdómur. Kristján brá við skjótt, og voru ger orð Marteini biskupi, er þá var hið fyrsta fullkomlega frjáls mað- ur. Riðu þeir til Snóksdals og fleiri aðrir vitrir menn, til ráðagerðar um það vandræði. Varð það af eftir ósk Daða, að Ormur lögmaður Sturluson setti þing um það hvað gera skyldi af þeim feðgum, og var dæmdur dómur, sá er Snóksdals- dómur er kallaður. Dæmdust þeir feðgar rjettilega fangaðir af kon- ungs hendi, en Daði og hans fylgd- armenn saklausir, þar með Daði við þá skilinn, en Kristján skrifari skyldi þá varðveita til næsta Öxar- árþings, með styrk lögmanna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.