Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1950, Qupperneq 11
r' LESBÓK MORGUNBLABSINS
öldungur. Hann var með æfagaml-
an hatt á höfði úr hrosshári. Slíkir
hattar eru í rauninni þrefaldir. —
Fyrst er kollhúfa Iaus, og hana
hafa þeir altaf á höfðinu. Þegar
þeir fara út, setja þeir háan hatt
ofan á húfuna, og ef rignir, þá er
annar hattur úr olíubornum pappír
settur þar utan yfir. Gamli maður-
inn reykti langa pípu, með örlitlum
haus, svo að hann fekk ekki nema
nokkur tog úr henni í hvert sinn.
Jeg gaf honum sígarettu. Hann
reif pappírinn utan af henni og
tóbakið úr henni nægði til að fylla
pípuna þrisvar sinnum.
Konur hituðu matinn fyrir okk-
ur og færðu okkur hann, en síðan
hurfu þær. Kvenfólk í sveitum um-
gengst aldrei ókunnuga menn.
JEG fór að skoða kolanámuna hjá
Samchok á austurströndinni. Þar
Seul, höfuðborgrin,
stendur á fögrum
stað milli hárra
granítfjalla,
höfðu* Japanar grafið úr jörfS 830
þús. smálestir af kolum árlega
meðan á stríðinu stóð. Nú er fram-
leiðslan helmingi minni. Kolin eru
ekki góð og þarf að blanda þau
með betri kolum, en nú eru þau
möluð og höfð til eldsneytis í
stærstu orkustöð landsins í Yong-
wol. Á leiðinni gisti jeg í þorpinu
Chechon, sem er frægt fyrir það,
að þar eru heitar Iaugar. Þegar
jeg gekk til herbergis míns í gisti-
húsinu um kvöldið, sá jeg inn í
þrjú önnur herbergi þar sem fólk
sat að gleðskap. Það hafði þar alls-
konar kræsingar á borðum og nóg
af whfsky, bjór og kisang (hrís-
grjónabrennivíni). — Það var að
dansa og syngja og var þar glatt
á hjalla. Jeg helt að þetta mundu
vera einhverjir auðkýfingar, en
túlkurinn fræddi mig á því að þetta
væri bílstjórar á vörubflum, sem
halda uppi ferðum milli Seul og
Pusan. Engir menn í landinu hefði
nú eins mikil laun og þessir bíl-
stjórar, því að þe.s ar þeir hafa hlt 5
-ið bílana af vöru a, selja þeir fól'ri
far cg láta það s: ija ofan á hlas 5-
inu. Fyrir þetta íí þeir stórfje, sem
þeir stinga í eigiri vasa, þótt þeir
sje annara þjónar. Þetta er jafn*
framt nokkurt sýnishorn af því
hvernig samgöngur eru í landinu.
Gjaldmiðill landsins heitir won
og hann var skráður í bönkunum
50 á móti hverjum dollar. En í
fyrra var dollarinn keyptur manna
á milli fyrir 600 won. Og enn versn
-aði gengið. Nú er hið skráða gengi
hans 900 á móti dollar, en manm
á milli er gengið 3530 á móti dollar.
Vegna gengisfalisjns nægja laun
opinberra stgrfsm Vnna ekki og það
er óskiljanlegt hvernig þeir fara að
komast af.
í WONJIJ lenti jeg í brúðkaupi, þar
sem fólk af heldra tagi var að gifta
sig. Brúðkaup þetta var sambland
af fomum siðum Kóreubúa og
Besta skemtun kvenfólksins er að róla
sjer. Stcngurnar undir róluniua cru 60
feta báar.