Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 578 Hjer er verið að setja eldingavara á trje, sem Georg Washington forseti gróð- ursetti á sinni tíð. í greininni er sagt frá því hvers vegna trjám er svo hætt þegar eldingar eru. Eins og áður er sagt hafa vísinda- menn nú komist að eðli eldinga, þótt ýmislegt sje þar enn á huldu. Þrumu- ský myndast þegar uppvindar bera raka hátt í loft upp. Regndropar myndast þá í skýinu og byrja að falla til jarðar. En iiman í skýinu fara hvirfilvindar með ofsahraða. Þeir þeyta regndropunum til og frá og tasta þá í sundur, og við þessar hamXarlr myndast á einhvera. hátt fráhvarf rafmagnshleðsla, neðst í skýinu. Þessi hleðsla magnast stöð- ugt eftir því sem hvirfilvindarnir tæta regndropana sundur og þeyta þeim til og frá. Þessi rafmagns- hleðsla verður þess valdandi, að beint undir skýinu myndast aðhverf rafmagnshleðsla í jörðinni eins og póll, og hann færist til eftir því sem skýið berst í loftinu. Nú er það svo, að aðhvert og fráhveyft rafmaga leit- ast við að sameinast, og þessir tveir pólar, í skýinu og jörðinni, leitast því við að sameinast. En loftið er slæmur rafmagnsleiðari og kemur lengi í veg fyrir þetta. Hin aðhverfa rafmagnshleðsla jarðarinnar færist altaf til, þannig að hún er altaf heint niðuraf skýinu, og á leið sinni gríp- ur hún hvert tækifæri til þess að komast sem næst skýinu. Hún þýt- ur upp í trjátoppa, húsþök og reyk- háfa. Rafhleðslan í skýinu reynir líka að komast til jarðar, og svo fer hún að senda „forhlaupara“ til jarð- ar. Þeir komast ekki langt í fyrstu, ekki nema svo sem 80 fet frá ský- inu, en þeir sundra frumeindum iofts- ins eins langt og þeir ná. Við það verður loftið betri rafmagnsleiðari, og þannig kemst hver „forhiaupari“ lengra en sá næsti á undan. Og þeg- ar þeir hafa þannig rutt sjer far- veg í gegn um loítið, niður undir jörð, þá fer rafhleðslan í jörðinni að ókyrrast og einnig senda frá sjer „forhiaupara11*). Þetta skeður alt á örlitlu broti úr sekúndu. Ait í einu ná þessir „forhlauparar“ saman og eftir þeim farvegi, sem þeir hafa myndað i gegn um loftið, þeytist nú hin ógurlega orka úr jörðinni upp i skýið. Þar af verður eldingin, sem menn sjá, og þessar eldingar valda mestu tjóni. Farvegurinn sem eldingin fer eftir er stundum ekki víðari en hársbreidd, en stundum alt að tveir þumlungar í þvermál. Eftir þessa fyjrstu „spreng- ingu“ fara svo minni eldingar upp og niður eftir þessum farvegi milli jarðar. og skýsins, en tíðleikinn er svo mikill að mönnum virðist þetta alt vera sama eldingin, alt rennur saman í eixm blossa. Af þessu, sem nú hefur verið sagt, er skiljanlegt hvers vegna eldingar. * Þessir forhlauparar eru stundum sýnilegir og hafa verið kalláðir hræv- áreidár hjar 4 landh

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.