Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Blaðsíða 14
LESBÓlv MOKGUNBLAÐSINS f Ó78 f sem hafa annað stjðrnarfar. Jeg held ekki, að á sviði mannlegra i:enninga sje rokkur tilgáta svo : ennileg. Og sl yldi einhver vera ' að, þá er það að minsta kosti ekki hin stalínska trú. Þessum grun< ívallarmistökum á hinu sögulega, sálfræðilega og heimspekilega sviði hljóta að fylgja með ófrávíkjanlegum rökum allir hinir fráhrindandi hlutir komm- ! unismans. Árið 1918 var meirihluti : nssneska lögþingsins andbolsivist- ískur og þess vegna leystu bolsi- vikar það upp í trausti þess, að þeir hefðu á rjettu að standa. Þeir sáu sig nú nauðbeygða að stjórna með hreinu valdboði. Og þar sem vald þeirra skorti lagalegan grundvöll, urðu þeir að banna alla aðra stjórn- málaflokka. Ef minni hluti hefur hrifsað völdin í sínar hendur, verð- ur hann að geta treyst á lögregi- una. Af ótta við samsæri skapast lögregluharðstjórn. Þessi harð- stjórn hefur svo óánægju í för með sjer og óánægjan eykur síðan ótt- ann við samsæri. Þessi ógæfulega hringrás gerir hring þeirra, sem völdin hafa, stöðugt þrengri og eykur hluta þeiiTa manna í völd- unum, sem ráða yfir lögreglunni. Fyrr eða síðar finnur lögreglan upp samsæri í þeim tilgangi að treysta völd sín eða lætur leigða menn stofna til þeirra. Að lok- um tortryggja allir aila: börn Ijóstra upp um foreldra sína, eig- inkonur um menn sína. Enginn veit hvort röðin komi ekki að hon- um á morgun, — hjá aftökusveit- inni í leynifangelsinu eða til hins hæga dauða þvingunarvinnunnar á heimskautasvæðunum. Þannig lít- ur sá veruleiki út, sem framkallast úr hinni ofstækisfullu trú, að mað- ur hafi fundið leiðina til binnar jarðnesku paradísar. í fyrstunni géí ðujkommúnist^n- ir án þess að shppa völdunum úr hendi sjer að nunsta kosti tilraun tfl að koma á efnalegu jafnrjetti, sem ávalt var eitt af hinum yfir- lýstu markmiðum sósíalismans. — Fyrsta kynslóðin, sem vegna sann- færingar sinnar hafði orðið að þola útlegð og ofsóknir, lifði áfram spa>' -lega og nægjusöm. En eins og hver sem er hefði getað sjeð fram á, breyttist þetta alt, þegar komm- únisminn varð óvjefengjanlega leiðin til persónulegs framdráttar og lokkaði til sín hina metorða- gjörnu. Því að til hv.ers væru völd án raunhæfs hagnaðar? Síðan var hinn efnalegi ójöfnuður innleidd- ur markvist að nýu, og. hann er í dag eftir þeim upplýsingum, sem fvrir hendi eru, meiri í Rússlandi en í nokkru öðru landi í heimi. Fagfjelögin eru einn hluti ríkis- báknsins. Óánægðan verkamann er hægt að senda á vinnustöðvar eða svipta hann skömmtunarkorti sínu. Hinn hreini öreigi er vanmáttugri en hann var í Englandi á svartasta tíma iðnbyltingarinnar. Meðferðin á landbúnaðarverkamönnunum í Englandi, eins og henni er lýst í bók Hammonds: Sveitaþorps verka -maðurinn, var vissulega hræðileg. En það er ekki hægt að nefna hana í sömu andránni og hina mark- vissu gereyðingu eða brottflutning miljóna bænda, sem Stalín hefur á samvisku sinni. Líf Olivers Twists á vinnustofnuninni var eflaust ekkert sældarbrauð. En borið sam- an við tilveru hinna heimilislausu barna í „Nýrri siðmenningu“ eftir Webbs-hjónin, var það eins og í Paradís. Lestur þessarar bókar liefur fært mjer heim nýa staðfestingu á þvi, að tveir hlutir eru öfugsnúnir í kommúnismanum: einn mikilvæg- asti hluti kenningar hans og stað- reynd, sem að meira eða minna leyti er tilviljun, innan ramma hinnar sögulegu þróunar hans. Hin fræðilegu mistök eru spröttm aí alröngu mati á göllum auðvalds- þjóðskipulagsins, sem í rauninni byggjast á hinni stjórnmálalegu valdaskiftingu og ekki, eins og Marx helt, eingöngu á hinni efna- legu valdaskiftingu. Marx, sem að- eins vildi viðurkenna hin efnalegu völd sem staðreynd, áleit að valda - vandamálið myndi missa alt gildi vfirleitt, ef hin efnalegu yfirráð væru afnumin. Honum sást yfir, sem skiljanlegt var á hans tíma, mismuninn á eignarrjetti og stjórn fyrirtækis, sem hefur ekki aðeins þýðingu fyrir iðnaðarfyrirtækin. heldur einnig fyrir ríkið sem heild. Ef ríkinu er ekki í reyndinni stjórn að lýðræðislega, eykur aðeins sam- söfnun hins efnalega valds í hend- ur þess ójöfnuð ibúanna í stað þess að draga úr hpnum. Hitt atriðið er, að kommúnism- inn á ekki rætur sínar a.ð rekja til neins ákveðins flokks, heldur í fjelagsskap samsærismanna. í Rúss iandi keisaranna lifðu allar bylt- ingarhreyfingar ólöglega og þjáð- ust þess vegna stöðugt af tortrygn- ipni um það, að hver sem væri af meðlimunum gæti verið njósnari eða undirróðursmaður. Þetta and- rúmsloft leynibruggs, tortrygni og öryggisleysis varð frá upphafi lífs- andi hreyfingarinnar og hefur vec - ið það alt fram á þennan dag, einnig meðal kommúnista í vestur- álfu. Það hindrar hverja tilraun að ræða við kommúnismann. Komi einhvern tíma til þriðju heims- styrjaldarinnar, þá yrði þetta or- sökin. „Jeg gekk út á hinar dimmu göt- ur Chicago-borgar og gekk heim á leið og var mikið niðri íyrir. Aft- ur og aftur sagði jeg við sjálfan mig, að jeg yrði að læra að standa á eigin fótum.“ Þessi orð úr frásögn Richard Wrights lýsa þeim anda, sem ríkir í öllum greinunum í bók- inní. Hver bessara manna hefur crðið fyrir sáruir. vonbrigðufn, eít- ir að þeir heldu sig hafa fuudið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.