Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.1951, Qupperneq 7
r—
LESBÓK: MORGUNBLAÐSINS
' 443
krúnuna or var það einnig bana*
sár. Vegendurnir komust utan sum
arið eftir.
Gufudalur var prestsetur fram
yfir seinustu aldamót. Seinasti
prestur þar var sjera Guðmundur
Guðmundsson, sem jafnan var
kendur við Gufudal síðan. Nú er
kirkjunni þjónað frá Stað á Reykja-
nesL
★
Spölkorn fyrir framan Gufudal
gengur Álftadalur norðvestur úr
aðaldalnum. Eftir honum rennur á,
sem Álftadalsá heitir og skilur hún
lönd jarðanna. Koma oft vond
hlaup í á þessa og ber hún þá fram
grjót og aur. Einhvem tíma fyrir
ævalöngu hefir hún borið fram svo
mikið grjót að Gufudalsáin hefir
stíflast og hefir því mymdast þar
í dalnum stórt vatn og er í því mik-
il silungsveiði. Svo var það um
1840 að mikið hlaup kom í Álfta-
dalsá og hljóp hún á prestsetr-
ið. Vildi prestur þá ekki eiga hana
yfir höfði sjer og flutti bæinn upp
í hlíðina og stóð hann þar neðst
í skriðunum um 50 ára skeið. En
kirkjan var eftir á sínum stað og
Jdrkjugarðurinn, því að hvergi er
hægt að taka gröf nema þar. Sjera
Guðmundur ljet flytja bæinn aftur
á sinn gamla stað um 1890 og eru
nú aðeins fjárhúsin eftir uppi í
hlíðinni og nokkurt tún þar um
kring. Nú stendur bær og kirkja
á lágum hóli á miðri slje’ttunni og
byggja menn að þar hafi bærinn
staðið frá öndverðu, Um túnið
rennur lækur, sem nefnist Kirkju-
lækur og metinn er á við kúgildi,
því talið er að þar bregðist aldrei
silungsveiði ,hvorki vetur nje sum-
ar, og megi altaf sækja í soðið þang-
að. —
★
Gufudalsháls er bæði hár og
brattur. Hann nær alla leið norð-
ur í Reiphólsfjöll og skiftir Gufu-
dalssveitinni svo að segja í tvent,
enda er í daglegu máli talað um
Suðursveitina fyrir austan háisinn
og Kollafjörð að vestan. (Hann er
kendur við Dala-Koll er bygði þar
fyrst en fluttist svo inn í Laxár-
dal í Dalasýslu).
Frá upphafi íslandsbygðar hefir
Gufudalsháls verið einhver versta
torfæran á leið um þessar sveitir.
Því var það að fjölkunnugum
manni kom eitt sinn það snjallræði
í hug að nema hánn brott. Það var
Ólafur tóni, sem numið hafði forn
fræði af Straumfjarðar Höliu, og
var um skeið ráðsmaður hjá Ólöfu
ríku á Skarði. Hann gerði bændum
það tilboð að taka Gufudalsháls og
brúa með honum Gilsfjorð. Var
þarna um tvöfalda vegabót að
ræða og hina stórkostlegustu, sem
nokkur einn maður hefir ætlað að
færast í fang. Það hefði ekki einu
Frh. á bls. 447.