Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.1951, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
445
ganghæfni einkum athyglisverða er
að hesturinn framkvæmir þessar
ganglistir að mestu af eigin hvöt en
ekki fyrir áhrif þess sem á honum
situr.
Og ennþá vckur það furðu að eig-
endur Loga, sem bæði eni mjög vcl
hestlagin, harðneita því að þau hafi
með áhrifum sínum nokkuð kent
honum af listum hans, heldur sje
hann að öllu leyti sjálftamið náttúru-
barn.
Eins og framanskráður þáttur um
Loga ber með sjer, þá hefur hann í
aðalatriðum komið mjer þannig fyrir
í sjón og raun, að hann væri heil-
steyptur gæðingur, og fyrir margra
hluta sakir fágætur hestur, sem
verðskuldaði að minningu lians væri
á loft haldið og í heiðri höfð.
FÁGÆTT AFMÆLI
Nú á þessu vori varð Logi tvítugur.
í tilefni af því buðu þau hjón, Krist-
inn Hákonarson og Sólveig Baldvins-
dóttir, í Hafnarfirði nokkrum hest-
unnandi kunningjum sínum í af-
mælishóf hans, sem haldið var að
heimili þeirra 9. júní 1951. Um kl. 3
e. h. munu allir boðsgestir hafa verið
mættir. Var þá sest að hinu dýrleg-
asta veisluborði. Samtimis braust
blessuð sólin í gegnum skýaþyknið
og glugga veislustofunnar, til meiri
hlýu og unaðar þessum glaðværa
hóp. En þennan morgun til hádegis
var einliver mesta stórrigning, sem
Höf. á Loga i skemtiferð
á tvitugsafmæli gæðings-
ins.
' ; -v ■
komið hefur á Suðurlandi um langan
tíma (skýfall). Þessi veðrabrigði
túlkaði einn veislugesta þannig, að
hinni fjölfrjóvgandi lúmnadögg
mætti líkja við sífrjóvga og marg-
háttaða listkosti Loga, sem hann væri
gæddur frá móður náttúru, en sólar-
brosið þá staðreynd, að Logi hefði
jafnan verið svo gæfusamur að eiga
. I
mm
í *
Góðir vinir, Logi og
frú Solveig Baldvins-
dóttir.
HHHBH
þá húsbændur, sem sköpuðu honum
þau lífskjör, að vera altaí solarmegin
á skeiðveUi lífsins.
Um kl. 5 var borðum hrundið, söðl-
aðir gæðingar og stigið á bak. Eftir
að hesta og ístaðsskálar höfðu verið
tæmdar, veittu hinir gestrisnu hús-
bænduL- hverjum ferðafjelaga nestis-
pela.
Jeg lagði fyrst á bak Stóru-Jörp.
Ilún var þæg og gangmjúk, og samdi
okkur hið besta.
Lagtvar af stað frá Hiaunhvammi
í Hafnarfirði, um Hverfisgötu og
Öldugötu, og sem leið liggur upp
Kaldárselsveg og fyrst áð á Rjettar-
flötum. Þar er að mestu vallgróið
sljettlendi. Þarna er sprettfæri gott,
og snoturt umhverfi, þó hrjórtugt sje.
Þarna eru á hægri hönd svonefhdir
Höfðar, en á vinstri Svínhoit, Set-
bergslilið og Sljettalilíð.
Með í förinni var kvikmyndari. —
Þarna á Rjettarflötunum þótti kjör-
inn ktikmyndastaður og var nú oð
því ráði stefnt að ríða í r ðlum og
hringum fyrir kvikmyndavjelina, eft-
ir því sem henta þotti og eftir skipun
listamannsins.
Þegar lagt var af stað að nýu af
Rjettarflötum, bauð frú Sólveig mjer
að leggja á Loga. Jeg þáði þetta vin-
samlega tilboð. Þegar jeg var stiginn