Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1952, Blaðsíða 6
50fi
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
upp í 40 mílna hæð og þá er hrað-
inn orðinn 14.364 mílur á klukku-
stund. Þar losnar þessi rákettu-
belgur á sama hátt og hinn og svíf-
ur til jarðar í fallhlíf.
Þriðja áfangann fer geimfarið af
eigin ramleik þangað til það er
komið í 63,3 mílna hæð. Þá eru afl-
vélarnar stöðvaðar. Hraðinn er nú
18.468 mílur á klukkustund og þeyt
-ist nú geimfarið áfram af sjálfu
sér og íflrlægist jörðina þangað
til það er komið í 1075 mílna hæð,
en þar er sá staður, sem því er
kosinn. Flugtíminn frá jörðinni
hefur ekki verið nema 56 mínútur,
og af þeim tíma hafa hreyfivélar
rákettunnar ekki verið í gangi
nema 5 mínútur. , *.
Geimfarið er nú ©rtSiéi að nokkurs
konar smástirnr, sem hreyfist af
sjálfu sér'eftir vissrí sporbraut um-
hverfis jörðina, alveg á sama hátt
óir tunglið. Hér á jörðunni gera
mefin sér alls ekki grein fyrir því
að þeir eru á flugferð með jörðinni
umhverfis sólina, eða með 66.600
mílna hraða á klukkustund. Áhöfn
geimfarsins mun því alls ekki verða
vör við það að hún geysist áfram
með 14.770 mílna hraða. En annað
mundi henni þvkja einkennilegt
— menn hafa misst þunga sinn.
Allir eru í loftheldum fötum og
með súrefnisgeymi til öndunar.
Og nú verður byrjað á því að
gera hina svífandi bækistöð. í alls
konar stellingum mundu menn
vinna og’allir eru þögulir, því að
þarna er ekkert loft og þess vegna
heyrist ekkert hljóð. En hver mað-
ur hefur talstöð og kemur það sér
vel þegar þeir þurfa að tala eitt-
hvað saman. Þeir geta heldur ekki
hreyft sig af sjálfsdáðum, og þess
vegna er hver þeirra útbúinn með
sérstakan hreyfil, sem er festur við
hinn furðulega búning.
Geimstöðin verður samsett úr 20
bútum, sem eru gerðir úr nylon og
plast-efnum. En þetta er þó ekki
nóg. — Enda þótt ‘geimfarið beri
helmingi meira af vörum heldur
en Constellation-flutningaflugvél,
hrekkur farangur hennar skammt
til þess að fullgera geimstöðina, en
hún verður hringlaga og þreföld.
Þvermálið á hringnum verður 250
fet. Til þess nú að koma þessari
stöð upp, verður að senda mörg
geimför til þessa staðar, hvert
þeirra með nokkurn hluta geim-
stöðvarinnar, og svo hjálpast menn
að því að setja hana saman.
Innan í iiringnum verða vistar-
verur fynr menn, líkastar því sem
eru í kafbátum og andrúmsloftið
verður að endurnya jafnharðan
sem það eyðist.
Á iörðunni stjórnast allt af að-
dráttaraflinu. Vér leggjum frá oss
hluti og þeir eru þar kyrrir, vegna
þess að aðdráttaraflið heldur þeim
föstum. — Öðru máli er að gegna
þarna úti í geimnum. Þar er þyngd
ekki til og þetta mun mönnum
þykja mjög óviðfeldið. Það þarf því
að gera „gerfi“-aðdráttarafl innan
í hringnum. Það er gert með mið-
flóttaafli, þannig, að stöðin er látin
snúast um sjálfa sig, og þarf ekki
nema örlitla rákettuvél til þess.
Annar flötur hjólsins mun alltaf
snúa móti sól, og þar eru sólargeisl-
arnir brennandi. Þess vegna verður
settur hvolfspegill á þá hliðina.
Undir speglinum verður járnhólk-
ur og í annan enda hans verður
hellt fljótandi „mercury“, er kem-
ur sem gufa út um hinn endann.
Þessi gufa mun nægja til þess að
knýa aflvaka, sém framleiðir um
500 kílówatt.
Geimstöðin mun geysast um-
hverfis jörðina einu sinni á hverj-
um tveimur stundum. Og af því að
jörðin snýst um möndul sinn, þá
verður úr geimstöðinni hægt að
skoða öll úthöf jarðar, lönd og
borgir einu sinni á hverjum sólar-
hring. Og vegna þess að þeir, sem
á geimstöðinni eru hafa svo full-
komin nýtízku sjóntæki, geta þeir
greint hvern blett á jörðinni jafn
glögglega og menn sjá með berum
augum það sem er í IVz—2 kíló-
metra f jarlægð:
Því hefur með réttu verið haldið
fram, að sú þjóð er fyrst kemur
sér upp geimstöð, geti ráðið lögum
og lofum á jörðfnni. — Það væri
hægðarleikur fyrir hernaðartrylda
þjóð að láta skothríð dynja á hvaða
stað sem er fra sliku geimfari. Og
vegna þeirra framfara, sem oröið
hafa á gerð fjarstýrðra skeyta, þá
er enginn efi á því, að frá slíkri
geimstöð væri hægt að senda kjarn
-orkuskeyti og hæfa með þeim
hvert það mark, sem óskað er og
tæta þar allt sundur.
En í höndum friðsamra þjóða
gæti þessi geimstöð orðið hin öfl-
ugasta vörn friðarins. Mennirnir á
geimfarinu mundu sjá allt, sem
gerist á jörðinni, og þá gæti engin
þjóð farið í felur með herbúnað
sinn.
Auðvitað kæmi þessi geimstöð
að miklu gagni á annan hátt. En
hún hefur svo geisimikla hernaðar-
lega þýðingu, að það getur ekki
dregizt lengi að henni verði komið
upp. Og það er jafn víst eins og
hitt að sólin keriiur upp á morgun,
að menn gera sér slíka bækistöð
útí í geimnum.
★ ★ ★ ★ ★
Panamaborg er elsta byggð hvítrá
manna á meginlandi Ameríku. Húp
var stofnuð sem nýlenda árið 1519.
Heræfingastöðvarnar voru þar sern
mjög er sviftivindasamt. Og svo vali
það einu sinni að einn hermaðurinrt
kemur úr háu loíti og fleygist fyrii?
fætur hershöfðingjans. Hann vará
reiður.
— Hver hefir gefið þér leyfi til þess
að æfa fallhlífarstökk í þessu hvín-
andi roki?
— Ég stökk ekki með fallhlíf, ég
fauk með tjaldi.