Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1952, Blaðsíða 8
L 508 L
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
ísak Jónsson:
HJA VALDIIViAR BJOR^SSYI^
RAC'HERRA 8 Mii\INESOTA
ísak Jónsson
og Valdimar
Björnsson
rádherra
VESTASTA og síðasta borgin, sem
ég kom til á ierð minni s. 1. vetur
um Bandaríkin, .var Minneapolis.
Það eina, sem ég vissi um þessa
borg, var, að þar bjó Valdimar
Björnsson, fjármólaráðherra. Eg
hafði haít nokkur samskipti við
hann hér heima á hernámsárunum,
öll með þeim hætti, sem einkenna
svo mjög þennan mæta mann.
Rétt fyrir hádegi s. L pálma-
sunnudag, þann 6. apríl, kom ráð-
herrann í bíl sínum þangað sem
ég bjó og tók mig heim til sín. Á
leiðinni brá hann sér í útvarps-
stöð eina og sagði fréttir frá Norð-
urlöndum, t. d. um sölu á hrað-
frystum íiski frá íslandi til Banda-
rikjanna. Var svo ekið lieim til
.Valdimars.
Hann er, sem mörgum mun
kunnugt, kvongaður Guðrúnu
Jónsdóttur, Hróbjartssonar frá
ísafirði, mestu ágætiskonu, sem
bauð gestinn velkominn af hlýju
og innileik. Þau hjón búa í ein-
býlishúsi og er heimili þeirra al-
íslenzkt í sniðum, enda alveg eins
og maður væri kominn til vildar-
v vina heima á íslandi. Auk margs,
sem prýddi þetta myndarheimili,
mátti sjá margt ágætra, íslenzkra
boka. Þau Guðrún og Valdimar
eiga þrjú börn. Eru það Helga
Bjarney, sex ára, Kristín Rann-
v veig, fjögra ára og Jón Gunnar,
þriggja ára, mjög efnileg börn,
eins og þau eiga kyn tii. Helga er
létt og leikandi, Jón aðsópsmikill,
eins og afarnir, og Kristín skemmti-
leg, en dálitið kröfuhörð um nægi-
^Jegt „athafnasvið“. Valdimar faðir
hennar sagði, að hún væri alveg
eins og hún Kristín amma hennar.
Hjá þeim hjónum er systurdóttir
frú Guðrúnar, Rannveig Ingvars-
dóttir frá ísafirði.
Þennan dag var einnig gestkom-
andi á heimili þeirra hjóna, ungfrú
Ingibjörg Pálmadóttir, Hannesson-
ar, rektors. Hún hefur stundað há-
skólanám í Saint Paul. Einnig voru
þar stödd um stundarsakir Jónas
læknir Bjarnason, Snæbjörnsson-
ar, læknis í Hafnarf. og kona hans,
Jóhanna Tryggvadóttir, Ófeigsson-
ar, útgerðarmanns. Þau voru ný-
komin heiman frá íslandi ásamt
tveim ungum sonum sínum,
Bjarna, þriggja ára, og Tryggva,
sem er ársgamall. Valdimar og
kona hans höfðu skotið yfir þau
skjólshúsi, meðan verið var að út-
vega þeim íbúð til leigu. En það
virtist ekki ætla að verða svo auð-
sótt. Og er það saga til næsta bæj-
ar, að um það bil, sem ég var að
fara frá Minneapolis, stóðu Valdi-
mar og Jónas í samningum uin
þetta við konu af norskum ættum.
Það sem á milli bar, var hálfur
annar dollar á mánuði. Jónas vildi,
að sjálfsögðu ganga að því. En
„kerla“ krafðist þess, að þeir fé-
lagar fengju húsaleigunefnd
Minneapohs til að viðurkenna