Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1952, Blaðsíða 12
512
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Hvað gerbist í september
IÐNSÝNINGIN
1952
Húsgagna-
iðnaður
IBNSÝNINGIN var höfuðviðburðurinn í þessum mánuði, vakti mcsta at-
hygli og mest var um liana rætt. Hún var opnuð hinn 6. og stóð fram
yfir mánaðamót. Var þetta stærsta, fullkomnasta og fjölbreyttasta iðnsýning,
sem hér hefir haldin vcrið, enda sýndu þar á 3. hundrað fyrirtæki fram-
Iciðslu sina. Sýningin var i 56 stofum á 5 liæðum i liinu nýa húsi Iðnskól-
ans og var því ekki hlaupið að því að skoða hana alla í einu, enda komu
margir þar.gað hvað eftir annað. Fjöldi íólks streymdi utan af landi til þcss
að skoða hana og voru farnar hingað margar hópferðir í því skyui. í lok
mánaðarins liöfðu um 40.000 manna komið til að sjá hana.
VEÐRATTA OG LANDBÚNAÐUR
í september var yfirleitt mjög góð
hausttíð. Sunnan lands var yfirleitt
bjartviðri og kalt um nætur, en oft
ljlýtt á daginn. Allan fyrri hluta mán-
aðarins var öndvegistíð norðan og
austan lands, hiti og sumarblíða, en
fók að spillast upp úr miðjum
mánuði.
Vcgna þess hve menn urðu seint fyrir
með heyskap víðast hvar, var göngum
viða frestað. Er talið að nokkuð hafi
ræst úr með þessu og hcyfengur orð-
íð undir það í meðallagi í flestum
sýslum, en víðast var nýting með af-
þrigðum góð, svo heyin eru með bezta
móti.
Hret gerði um mánaðamótin ágúst-
sept. og féll þá víða kartöflugras svo
af þeim ástæðum varð kartöflufengur
víða minni en áhorfðist, einkum norð-
an lands og vestan. Sunnan lands mun
hafa orðið meðal uppskera.
Fé var óvenju vænt til frálags og
haustverð á sláturafurðum hærra en
í fyrra. Mjólk hækkaði einnig í
verði.
Stórkostlegustu fjárflutningar, sem
sögur fara af hér á landi, fóru fram
í þessum mánuði. Var þá verið að
flytja fé á hið sauðlausa svæði milli
Hvalfjarðar og Rangár og voru keypt
þangað rúml. 30.000 líflömb, þar af
rúml. 16.000 í Þingeyarsýslum, rúm
10.000 á Vestfjörðum og um 3000 úr
Öræfum og af Síðu. Að norðan var allt
íéð flutt á bílum og voru rúmlega
100 bílar í þeim flutningum. Sjóveg
voru fluttar rúmlega 8000 kindur frá
Vestfjörðum, en féð úr Öræfunum var
flutt í flugvélum. Gengu þessir flutn-
ingar furðu vel. Viðtakendum var gert
að skyldu að bólusetja féð við garna-
veiki og baða það.
Gróður jarðar.
Hinn 26. var opnuð Garðyrkjusýn-
ing hér í Reykjavik, hin mesta hér
á landi og var henni ætlað að sýna
hvað hægt væri að framleiða hér á
íslandi, eigi aðeins grænmeti, heldur
einnig suðræna ávexti. Garðræktun
hefir fleygt fram hin síðari ár og má
bezt sjá þá þróun á því, að árið 1940
nam sala grænmetis og ávaxta hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna 165 þús.
krónum, en í fyrra 2.440.800 kr.
Dr. Raymond Taylor, skógræktar-
stjóri í Alaska, kom hingað á vegum
F.A.O. til þess að athuga um sam-
vinnu milli skógræktanna hér og í
Alaska. Ferðaðist hann nokkuð um
landið og kynti sér hvernig gagnvið-
ir frá Alaska hafa þroskast hér. Eftir
þá athugun lét hann svo um mælt, að
plönturnar næði hér skjótari þroska
cn þar og væri það vegna þess að
jarðvegur væri hér betri en þar.
Kvaðst hann því vera viss um að skóg-
ar gæti vaxið hér, ekki síður en í
Alaska. Mun hann nú athuga hvernig
Islcndingaf geti fengið fræ þaðan með
sem minstum kostnaði, en af því
þurfum vér að fá um 100 kg á ári.
Unnið var í Öskjuhlíð að undirbún-
ingi trjáræktar þar, og er gert ráð
fyrir að gróðursetning trjáplantna geti
hafist þar á vori komanda.
Aflabrögð.
Þorskafli var sæmilegur bæði á
Vestfjörðum og Austfjörðum i þessum
mánuði. Margir togarar voru að veið-
um við Grænland og var afli þar mis-
jafn og stundum tregur. Nokkrir tog-
arar seldu afla í Þýzkalandi í þess-
um mánuði og var verðið mjög mis-
jafnt, 77—120 þús. mörk.
Togaraeigendur í Grimsby og Hull
samþykktu að leigja ekki íslenzkum
togurum löndunartæki, en það er
sama sem löndunarbann og að þeim
sé meinað að sigla þangað með afla.
Þeir Jón Axei Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Bæarútgerðar Reykja-
vikur og Kjartan Thors formaður
Félags íslenzkra botnvörpuskipacig-
enda, fóru þá utan til þess að vita
hvort ekki væri hægt að liðka þetta
mál við brczku útgerðarmennina.
Síldveiðar mcð rcknetjum voru
stundaðar allan þennan mánuð.
Nokkrir stórir bátar héldu uppi veið-
um djúpt út af Langanesi og Aust-
fjörðum allan mánuðinn, öfluðu sæmi-
lega og söltuðu um borð. Þá veiddist
síld í Hornafirði og var nú í fyrsta
skifti saltað þar í landi. Hjá Vest-
manneyum, í Faxaflóa og Breiðafirði
veiddist allmikil síld, on yfirleitt var
hún smærri, en leyfilegt væri að salta
og fór því mest aí henui í bræðslu,