Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1952, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
513
en sú útgerð gat ekki borið sig. Lá
við um miðjan mánuð að síldveiðarn-
ar stöðvuðust, en ríkið hljóp þá undir
bagga með útgerðarmönnum, leyfði
þeim að salta millisíld í allt að 10.000
tunnur og ábyrgðist þeim 290 kr. verð
fyrir tunnuna. Um miðjan mánuð
hafði verið samið um sölu á 70.000
tunnum af Suðurlandssíld en alls nam
síldarsöltunin í mánaðarlok um 50.000
tunnum. Hæstu bátar höfðu þá feng-
ið á 4. þús. tunnur. Margir höfðu orðið
fyrir miklu veiðarfæratjóni af völdum
háhyrninga, er gengu í vöðum á veiði-
svæðinu og ónýttu stundum fyrir bát-
unum öll net þeirra.
Laxveiði i sumar varð meiri en í
fyrra. Stærsti laxinn veiddist í þess-
um mánuði í Brúará og vóg hann
37,5 pund og er stærsti lax sem vitað
er að dreginn hafi verið á stöng hér-
lendis. — Mikil brögð voru að því að
veiðiþjófar gerði sig heimakomna í
hinum ýmsu laxám eftir að skyggja
tók á kvöldin, og höfðu þeir bæði
ádráttarnet og dynamitsprengjur. —
Tveir menn voru handsamaðir og
höfðu þeir veitt um 500 kg. af laxi í
ádrátt.
MANNALÁT
1. Jón Hákonarson veitingamaður í
Bjarkalundi, Reykhólasveit.
2. Guðjón Þórðarson, formaður
Lúðrasveitar Reykjavíkur.
4. Frú Aslaug Proppé, Reykjavik.
6. Frú Kristín Einarsdóttir frá Skál-
eyum á Breiðafirði.
10. Frú Rakel Ólöf Pétursdóttir,
Blátúni við Reykjavík.
11. Sigurður Þorsteinsson verslunar-
maður í Reykjavík.
12. Frú Dýrfinna Jónasdóttir frá
Sauðárkróki.
14. Frú Rannveig Kristjánsdóttir
Hallberg í Gautaborg.
18. Ingibjörg Tómasdóttir frá Reyð-
arvatni, kaupkona í Vestmanneyum.
21. Frú Anna Patursson, dóttir hr.
Sveins Björnssonar forseta, lést að
heimili sínu í Danmörk.
22. Prófessor Ágúst H. Bjarnason
Reykjavík.
SLYSFARIR
Tíu ára drengur varð fyrir bíl í
Reykjavík og meiddist hættulega. —
Þrettán ára drengur á hjóli rakst á
bíl í Reykjavík og handleggsbrotnaði.
— Þriggja ára drengur hljóp fyrir
bíl í Reykjavík og stórslasaðist. —
Stúlka á reiðhjóli rakst á bíl í Reykja-
vík, meiddist á höfði og fékk heila-
hristing. — Maður varð fyrir bíl um
nótt á miðri götu í Reykjavík og skadd-
aðist á höfði. — Stefán Þórðarson,
aldraður maður, fórst í bílárekstri á
Húsavík. — Ólafur Tómasson bónai í
Garðshorni í Kræklingahlíð, varð fyr-
ir bíl og beið bana. — Kolbeinn Jó-
hannesson bóndi að Eyvík í Gríms-
nesi var vörður á fjárflutningabíl en
er bíllinn fór um Norðurárdal í Borg-
arfirði, var þar svo lág símalina að
hún lenti á manninum, kippti honum
af bilnum og beið hann þar bana.
Um miðjan þennan mánuð hafði
lögreglan í Reykjavík skrásett 655
bílslys frá áramótum og höfðu 1300
bílar skemst í árekstrum. Rannsókn
leiddi i Ijós að aðalorsök slysanna var
ógætilegur akstur.
Þrir verkamenn á Keflavíkurflug-
velli féllu af vörubíl, er hann tók
snögga beygju. Einn þeirra, Símon
Jónsson, aldraður maður úr Reykjavík,
slasaðist svo að hann lézt síðar.
Togarinn Röðull sigldi á trillubát,’
sem lá fyrir festum á ytri höfninni í
Reykjavík. Á bátnum voru 4 menn og
fórst einn þeirra, Kristján Þorgríms-
son frá Laugarnesi, forstjóri Austur-
bæarbíó í Reykjavík.
Maður féll af vinnupalli í Áburðar-
verksmiðjunni og meiddist mikið.
Við fjárslátrun í ísafirði vildi til
það slys, að maður skaut kind en kúl-
an fór í gegn um höfuð hennar og í
lær mannsins og sat þar föst. Varð
að leita læknis til að ná kúlunni úr
sárinu.
Að Syðri Gröf í Flóa var húsmóð-
irin að opna bauk með klórkalki, en
við það varð í því sprenging og
brendist konan í andliti og blindað-
ist um hríð.
Skothylki sprakk í höndum sex
ára drengs í ísafirði og skaddaðist
hann mikið á vinstri hönd.
Lík Einars Gíslasonar, gamla
mannsins sem hvarf í Keflavík í fyrra
mánuði, fannst hinn 4. í fjörunni við
svonefnda Básakletta.
ELDSVOÐAR
Tvívegis kom upp eldur í bygging-
um á Reykjavíkurflugvelli. í fyrra
skiftið var það í geymslu og verk-
færaskálum flugskólans Þyts og urðu
þar allmiklar skemdir. í seinna skift-
ið brunnu þrjár skemmur, sem olíu-
félagið Esso átti og brunnu þar inni
bílar, vélar og áhöld. Tjónið talið vera
á aðra miljón króna.
Eldur kom upp í skúr við Reykja-
víkurhöfn. Var þar um íkveikju að
ræða og brann nokkuð af verkfærum,
sem geymd voru í skúrnum.
Sjá’fsíkveikja varð í heyi að Hömr-
um hjá Akureyri og brunnu þar um
250 hestar. Slökkviliðið barðist 3
stundir við eldinn.
IiISTSÝNINGAR
Finnur Jónsson hafði málverkasýn-
ingu á Akureyri. — í veitingasal Iðn-
sýningarinnar höfðu þeir málverka-
sýningu hver eftir annan Kristinn
Pétursson og Sverrir Haraldsson. —
Eiríkur Smith hafði málverkasýningu
í Reykjavík. — Gerður Helgadóttir
hafði sýningu í Listamannaskálanum á
höggmyndum og myndum gerðum úr
málmþynnum og vír. —■ Dönsk handa-
vinnusýning var í Listasafninu.
RÁÐSTEFNA
utanríkisráðherra Norðurlanda, Sví-
þjóðar, íslands, Noregs og Danmerlc-
ur, var haldin í Reykjavík í öndverð-
um mánuðinum og voru fundir haldn-
ir í Háskólanum.
t
OLÍUMÁLIÐ
Dómsmálaráðherra fyrirskipaftl
málshöfðun gegn Sigurði Jónassyni
fyrv. forstjóra Olíufélagsins h.f., Jó-
hanni Gunnari Stefánssyni fyrv. skrif-
stofustjóra þess og núverandi forstjóra,
og Hauki Hvannberg forstjóra Hins
ísl. Steinoliuhlutafélags. Var þeim
gefið að sök að hafa gefið verðiags-
yfirvöldum rangar skýrslur og hafa
selt steinolíufarm of háu verði.
ÍÞRÓTTIR
Drengjameistaramót í frjálsum
íþróttum var í Reykjavík. Svavar
Markússon KR setti þar nýtt met í
1000 metra hlaupi, er slagar upp í
met hinna eldri. — Meistaramóti í
frjálsum íþróttum lauk hinn 7. —
Meistari í tugþraut varð Tómas Lár-
usson úr Mosfellssveit, hlaut 5516
stig. Á mótinu fékk ÍR 7 meistara,
KR 6, Ármann 5, UMS Kjal. 4, UMF
Selfossi 1 og og KA 1. — Danski
kringlukastarinn Munk-Plum kom og
keppti á frjálsíþróttamóti og bar sig-
ur af hólmi. — Kristján Jóhannesson
setti nýtt íslandsmet í 3000 m hlaupi
á 8:52,2.