Lesbók Morgunblaðsins - 22.03.1953, Blaðsíða 8
Séra Sigurjón Guðjónsson;
ÞIJSIifMD VATIMA LJIJFA LAIMD
Ferðaþættir frá Finniandi
A LGIÐ TIL FINNLANDS
SKIPSBJÖLLUM cr hringt, og
Finnlandsfarið leggur frá bryggju
i Stokkhólmi. Það er síðla dags um
miðjan október.
Skipið siglir út úr skerjagarðin-
um og hefur hægan á. Er þarna
þröng sigling 'og mikil umferð. —
Létt rökkurmóða færist yfir, en
hallir og turnar höíuðborgarinnar
hverfa smám saman. Skipið er fullt
af fólki, flest eru það Finnar og
Svíar, einnig nokkrir Norðmenn og
Danir. En mesta athygli vekur ung-
ur Kínverji, sem er að halda heim
til sín að loknu háskólanámi í Eng-
landi, og á harla drjúgan spöl fyrir
f» — .
W »—i ii • —---- « -
Dómkirkjan í Abo
höndum. Veðrið er yndislegt. Haf-
ið blýgrátt og kyrrt, og margir á
þiljum uppi. Enn eru eyar, hólmar
og sker til beggja handa. Þau virð-
ast aldrei ætla að taka enda, því
að heita má aö skerjagarðarnir nái
saman á siglingaleiðinni, Stokk-
hólmur — Ábo. Það er aðeins mið-
leiðis að" komizt er á opinn sjó. —
Tunglið kemur upp og varpar sinni
töirabirtu um lognvært Álandshaf-
ið. — Fáir geía sér tíma til að sofa.
— Eini viðkomustaðurinn á leið-
inni er Marinchamn (Maríuhöfn),
liöluðstaður Álandseya, sem eru nú
að mestu sjálfstæðar og aðeins í
lausum tengslum við Finnland,
og liaía sitt eigið þing. Álendingar
eru iikari Svíum en nokkrir aðrir
Finnar og tala sænska mállýzku.
Hávaxnir og grannvaxnir eru þeir
og ljósir yíirlitum, glaðlyndir og
talsverðir sundurgerðarmenn í
klæðaburði. Þeir cru miklir sæfar-
ar, stunda iiskveiðar og verslun,
auk þess sem verulegur landbúnað-
ur cr á eyunum. Fra Álandseyum
er kvenrithölundurinn Sally Sal-
minen, er gat sér mikið frægðarorð
fyrir skáldsöguna Katrinu, er marg
-ir íslendingar kannast við.
Eyarnar eru þvi nær óteljandi,
og ekki ncma 100 þeirra byggðar.
Eru eyaskeggjar um 30 þúsund
talsins. — Það cr skömm viðdvöl
í Marinehamn, og lítið á lienni að
græða, þar sem hánótt er. Nokkr-
um íarþegum er hleypt í land, og
við öðrum nýum tekið, sem ætla
með okkur hinum til Finnlands.
*
Kista Katrínar Mánadóttur i
Abodómkirkju
— Þegar Marinehamn er að baki,
ganga flestir til náða, því að ekki
verður komið til Ábo fyrr en kl.
átta að morgni. — Alls staðar eru
farþegar, i malsal og göngum,
tröppum og stigum. Hvar sem er
stóll eða eitthvert hægindi er sofið
eða dottað. Fáeinir vaka, flestir
þeirra við skál.
KOMID TIL FINNLANDS
Það.er glóbjartur haustmorgun.
Skipið þokast inn skógi vaxinn
skerjagarðinn, og litbrigðin, er aug-
anu mæta verða ekki talin. Gamla
Ábo blasir við skammt fram und-
an, og klukkan hálfníu eru land-
íestar leystar, og ferðafólkið stígur
á íinnska grund.