Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1953, Blaðsíða 1
Irlandi
Tungumálin i
®<^C7^Q==<i^C^^C^(^Q^CP<0^CP^C^(7:^<l==<ö::^Q^ð='‘t=<(?=^Q=<ö=^i=<Cr^Qs<C=='‘Cb5í(3=5- ©
((, MR. LEO PATRICK HENRY heitir irskur menntamaður sem stundar ís-
J lenzkunám við Háskólann hér. Hann kom hingað á síðast liðnu hausti.
Hann er mjög fær málfræðingur og hefur numið svo vel íslenzku síðan
hann kom að hann getur talað íslenzku viðstöðulaust. Áður hefur hann
stundað tungumál í háskólunum í Dublin og Ziirich í Sviss.
Fyrir nokkru var stofnað hér kynningarfélag í bænum, aðallega fyrir
forgöngu prófessors Einars Ólafs Sveinssonar, til að auka kynni íslend-
inga og íra. Á stofnfundi þessa félags flutti Patrick Henry erindi um írska
tungu og birtist það hér lítið stytt frá því sem það var flutt.
Patrick Henry býst við að vera hér á landi í sumar, og leggja stund á
rannsóknir á íslenzkri tungu. Gerir hann ráð fyrir að dvelja einhvers
staðar í sveit, helzt í Dalasýslu. Hann þykist þegar hafa komizt að þeirri
niðurstöðu að áhrifa gæti í íslenzkunni frá írskri tungu. Um þessar at-
huganir sínar og rannsóknir ætlar hann að rita bók á næstunni.
Það hefur vakið sérstaka athygli hans, hversu margt fólk hér á landi
ber sama eða svipað yfirbragð og írar landar hans. Hefur hann tjáð
þeim er þessar línur ritar, að hann hafi komið auga á einar sex mann-
tegundir eða flokka af fólki sem minni hann greinilega á algeng svip-
einkenni íra. Þó ekki sé hægt að sanna af þessu skyldleika íslendinga og
íra, þá telur hann að með þessum samanburði renni auknar stoðir undir
þá kenningu að um ættartengsl milli þessara þjóða sé að ræða.
r
I
í
h
r
I
t
TVÆR tungur eru nú talaðar í
írlandi, írska, og sambland af
ensku og írsku, sem nefnist ensk-
írska. Sú tunga er í eðli sínu írsk,
en orðaforðinn er yfirleitt úr ensku,
en setningakerfi beggja málanna er
hið sama.
Nú eru íbúar írlands taldir vera
4,25 milljónir manna. Af þeim
munu ekki nema 10 þúsundir tala
írsku eingöngu, en hér um bil ein
milljón manna hefir sæmilega
þekkingu á henni og um 300.000
nota bæði máhn jöfnum höndum.
Bæði málin eru ríkismál.
írska er aðallega töluð á vestur-
ströndinni, frá Donegal í norðvest-
urhluta landsins til Cork í suðvest-
urhluta þess. Þetta eru fátækustu
og hrjóstugustu héruð írlands.
Síðan írska lýðveldið var stofn-
að 1922 hefir það verið stefna
Mr. Leo Patrick Henry
stjórnarinnar að reyna að vekja
írskuna aftur til vegs og virðingar
og gera hana að aðaltungu lands-
manna. Er þetta gert með ýmsu
móti. írskumælandi fjölskyldum
eru til dæmis fengnar jarðir með
góðum kjörum og foreldrar írsku-
mælandi barna fá fjárhagsstyrk í
viðurkenningarskyni fyrir að börn
þeirra tala írsku. í skólunum er
írska kennd og nemendum útveg-
aðar írskar bækur. Ýmis félög
leggja rækt við írska dansa, tón-
list og leika. Árlega er haldið þing,
er nefnist Oireachtas, eflingar