Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1953, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1953, Page 8
590 ' LESBÓK MORGUNBLAÐSINS SVÖRTU Huridrað ár síðan FYRIR 100 árum var Millard Fill- moore forseti Bandaríkjanna. Hann var ekki ánægður með það að ná- grannalandið Japan væri lokað land. Voru til þess ýmsar ástæður. Ýmis amerísk hvalveiðaskip höfðu strandað við Japan og mennirnir sem komust af, höfðu verið hneppt- ir í varðhald, ákærðir fyrir það að hafa komið í óleyfi til landsins. — Kaupför Bandaríkjanna, sem sigldu um Kyrrahaf, þurftu nauð- synlega á höfnum að halda í Japan, til þess að geta fengið þar kol og vistir, og til þess að leita þar skjóls undan felhbyljum. Auk þessa var þá mikill hugur í Bandaríkjamönn- SKIPIIM Jíipun var opnað um að auka utanríkisverslunina, og þeim þótti það hart að þetta fjöl- menna nágrannaríki skyldi vera lokað land. Því var það, að forsetinn gaf Perry flotaforingja skipun um að sigla til Japan með litla flotadeild og freista þess hvort ekki væri hægt að komast að samningum við Japani. í skipaninni segir meðal annars svo: „Þér megið alls eigi beita vopnum nema í ýtrustu lífs- nauðsyn, ef á yður verður ráðizt“. Perry bjó allt vel undir þessa ferð. Hann byrjaði til dæmis á því að lesa 40 bækur um Japan. Hann réði sér hollenzkan túlk, því að Perry flotaforingi hann gerði ráð fyrir því að hol- lenzka væri eina erlenda málið, sem dygði í Japan, og reyndist það rétt. Hann lét æfa sjóliða sína lengi og vel, alveg eins og hann væri að búa sig út í hernað, en það gerði hann til þess að fullkominn agi væri í liði þessu. Hvorki hann né forsetinn höfðu minnsta grun um, að Japanir voru sjálfir orðnir leiðir á innilokun- inni. Hún hafði orðið til þess að gera kjör alþýðunnar mikið verri en áður, og hungursneyð var oft í landinu. Helztu menntamenn Jap- ana höfðu lært hollenzku og af hollenzkum bókum höfðu þeir séð hvað Japanar höfðu dregizt mikið aftur úr öðrum þjóðum, síðan landinu var lokað. Þeir vissu um vígbúnað Norðurálfuþjóða og að Bandaríkin voru orðin stórveldi, þar sem iðn- aður og verslun blómgvaðist. En í Japan stóð allt kyrrt í sömu spor- um. Þessir menn voru því sann- færðir um að það hlyti að verða hið mesta happ fyrir Japan að komast í menningartengsl við aðr- ar þjóðir. Og þeir vissu hka, að HINN 14. júlí í sumar sem leið voru rétt hundrað ár liðin síðan Matthew Calbraith Perry flotaforingi fór með litla ameríska flota- deild til Japan, til þess að fá landið opnað. Það hafði þá haldið sér einangruðu í 216 ár, og á þeim tíma höfðu engir hvitir menn mátt koma þangað, nema örfáir hollenzkir kaupmenn, sem fengu að reka verslun í Nagasaki.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.