Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Qupperneq 2
118 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Z' menn á Hólum verða varir við afturgöngu hans og byrjaði hann á því að drepa kýr. En biskup keypti kýr í staðinn og kvaðst mundu halda áfram að kaupa hve margar kýr sem dræpist, meðan nokkra kú væri að fá í Skagafirði. Þorkell ráðsmaður átti unga dóttur er Sigríður hét. Snerust nú ofsóknir Loka gegn henni og varð hún fyrir svo römmum ásóknum af hans hálfu að hún hafði ekki stundarfrið og veiktist einkenni- lega. Varð foreldrum hennar og öllum að þessu hinn mesti harmur. Svo var það eina nótt að Arn- grímur lærði vakti hjá henni og sat undir henni. Kvaðst hann vart trúa öðru en að hinn illi andi léti hana í friði á meðan hún væri í fangi sínu. Brá nú og svo undar- lega við, að stúlkan var laus við ásóknina, aldrei þessu vant og fór svo fram meðan Arngrímur sat með hana. En honum átti eftir að hefnast fyrir þetta. Nokkuru síðar fór hann að heiman og reið norður traðirnar frá staðnum. Var þá eins og fótunum væri kippt undan hesti hans, fell hann og kastaðist Arn- grímur af honum og lenti með höfuðið á steini og særðist svo mjög, að hann bar ör eftir það alla ævi. — Þóttust sumir heimsmenn hafa séð afturgöngu Loka hlaupa á bak hjá honum og sliga hestinn. Sá Þorkell ráðsmaður að nú voru góð ráð dýr og ekki mundi annars úrkosta en taka það bragð, er öldum saman hafði verið notað til þess að koma af afturgöngum heitingamanna. Fór hann þá með Hólamenn suður til Goðdala og grófu þeir Loka upp og fóru að sem áður hafði gert verið. Byrjuðu þeir á því að höggva höfuð af líkinu og síðan gekk Þorkell á milli bols og' höíuðs, því það skyldi sá gera, er fyrir ásókn varð. Þaðan er máls- hátturinn „að ganga milli bols og hoíuðs-1, sem enn er notaður í aí- leiddri merkingu. Að því loknu var Loki brenndur. Brá nú svo við, að Sigríði batn- aði, enda þótt hún væri jafnan mjög heilsutæp síðan og yrði ekki gömul. Jafnframt var lokið kúa- dauðanum á Hólum. Þetta skeði árið 1598. ----o--- Guðbrandur biskup mun ekki hafa vitað um þessar tiltektir ráðs- manns síns. Verkið mæltist mjög misjafnlega fyrir. Var Þorkatli álasað fyrir það og eigi síður bisk- upi. Átti hann marga öfundarmenn og fjandmenn og stóð í miklum málaíerlum, er náðu hámarki sínu er hann gaf út morðbréfabæklinga sína. Notuðu þá óvildarmenn hans tækifærið til þess að rægja hann við konung út af uppgrefti Loka, og er mælt að konungur hafi gefið honum stranga áminningu þess vegna árið 1608. Og út af þessu spannst svo það, að konungsbréf kom út 1609, þar sem harðlega er bannað að grafa upp nái. Er bréf þetta dagsett í Kaupmannahöfn 25. febrúar 1609 og er á þessa leið: — Vér höfum sannfrétt, að á Voru landi íslandi viðgangist oft og tíðum sú mikla hneisa að létt- úðugir menn noti slæmar og al- gjörlega ótilhlýðilegar ástæður til þess að grafa upp dauða menn, höggva af þeim höfuð og brenna þá síðan, eða fyrirkoma þeim á annan hátt. En þar sem slíkt óguð- legt athæfi verður að afnema, vilj- um Vér hér með harðlega og al- varlega vara sérhvern við, að gera sig sekan í slíku óguðlegu athæfi, ef þeir vilja ekki eiga það á hættu að lénsmenn vorir hegni þeim fyrir að óhlýðnast þessu boði Voru eða meta það einkis. — Síðan brýnir konungur það al- varlega fyrir mönnum að hlýðnast yfirvöldunum og sýna þeim engan mótþróa, hvorki í orðum né at- hofnum. Bréf þetta er bein afleiðing af uppgrefti Guðmundar Loka, og er svo sem auðvitað að konungur hef- ur fengið vitneskju um það frá óvildarmönnum Guðbrandar bisk- ups. Magnús Ketilsson sýslumaður birtir þetta konungsbréf í Laga- safni sínu og hnýtir þar við þess- ari merkilegu áthugasemd: — Ástæðuna fyrir því, að bann- að er að grafa upp dauða menn, er að finna í annálum Bjarnar á Skarðsá árið 1598, þar sem hann segir frá því, að Guðmundur, sem nefndur var Loki, hafi verið graf- inn upp og brenndur, vegna þess að menn heldu að hann gengi aft- ur og ofsækti unga stúlku á Hólum og gerði þar fleira illt af sér. — Um frásögnina af hinum óvenju- lega sjúkdómi stúlkunnar og öðr- um illum atburðum, ber eigi að efast, né heldur að fyrir þetta hafi tekið þegar nárinn hafði verið brenndur. En þar með er ekki sagt að vér trúum því, að hinn dauði hafi gengið aftur og valdið þeim ófarnaði, sem honum var kenndur. En þetta eitt viljum vér láta í ljós, að ef það er allt saman hjátrú, sem menn hafa fyrrum bundið við slíka hluti og að hinum ásóttu batnaði, þegar brenndur var líkami hinna svonefndu afturgengnu manna, þá getur hjátrúin gert álíka krafta- verk sem hin postullega trú. Þetta neyðist maður til að viðurkenna, ef maður vili ekki afneita sinni heilbrigðu skynsemi.--- BEINAMÁL PÉTURS í TJALDANESI Með þessu konungsboði mun hafa tekið fyrir það, að lík væri grafin upp til að brenna þau. En réttum hundrað árum seinna (1708) var þó grafið í kirkjugarð eftir manns- beinum. Ekki var það gert í varn- arskyni, heldur af hjátrú einni saman Þa bjo í Tjaldanesi í Saurbae í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.