Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Blaðsíða 19
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 135 veldi. — Fáir vilja trúa því að ég segi þetta satt; sumir gabba mig og fyrirlíta, en þeir munu hafa sinn dóm með sér, engu síður en ég. Mér glepst ekki hugur um að ég hef í raun og sannleika séð þetta. Ég vona að ég þýði rétt þau orð ritn- ingarinnar, sem fela í sér eðli og gildi þessarar sjónar, en þau eru þessi: „Þegar ég útrétti mína hægri hönd, þá vil ég frelsa þig“. — Þetta er eitt hið merkilegasta, sem fyrir mig hefur borið. — ★ — Eitt sinn var það í Ólafsvík um hásumar (í júlímánuði) að margir viðskiftamenn þurftu að fá af- greiðslu bæði í búðinni og vöru- geymsluhúsunum. — Búðin var í norðurenda íbúðarhússins, en hús- ið, sem kornvaran var geymd í, sunnan við íbúðarhúsið og um 15 faðmar á milli. Búðardyrnar vissu mót norðri og sást því eigi þangað frá kornskemmunni. í þetta skifti hafði ég afgreitt mjög marga í korn -skemmunni og þegar því var lokið gekk ég út í dyrnar til að kæla mig. Stóð ég þar dálitla stund án þess að festa hugann við neitt sérstakt. — Horfði ég á suðurgafl íbúðarhússins og voru auðvitað engin venjubrigði á honum að sjá né húsinu. Alt í einu opnast mér sýn í gegnum íbúðar- húsið og sé ég mann vera á stéttar- röndinni fyrir framan búðardyrnar og var hann að láta einhverjar vör- ur niður í poka hjá sér, meðal ann- ars sá ég hann handleika „export- kaffi“. Leit maðurinn svo út sem hann vildi að ekki sæist til sín. Ég hugleiddi þetta nokkuð og horfði stöðugt á hann. Svo hvarf sýnin jafn skyndilega og hún kom og ég sá ekki annað en húsgaflinn. Ég lokaði vöruhúsinu í skyndi og flýtti mér til þess að vita hvort mér hefði missýnzt. — Þegar ég kom norður fyrir búðina, gat að líta þar sama manninn og ég hafði séð og var hann að bogra við að láta niður í poka. Stóð ég hjá honum litla stund þegjandi og horfði á hann. Síðan fór ég inn í búðina og rannsakaði úttekt hans og sá að honum var allt vel frjálst. — Að hann var svona pukurslegur með varning sinn, kom af því að hann vildi eigi að sam- ferðamönnum sínum væri kunnugt um aðdrætti sína, og má vera að hann hafi eigi meir en svo trúað sumum þeirra. — ★ — Seinasta árið sem Thejll var verslunarstjóri í Ólafsvík, fór hann utan um haustið, en Jóhannes bók- haldari Stefánsson veitti þá versl- uninni forstöðu á meðan. Skömmu eftir nýár komu einn dag mjög margir viðskiftamenn, og vantaði þá í búðina ýmsa muni, er geymdir voru uppi á búðarlofti, þar á meðal kaffibæti. Vörurnar voru á loftinu yfir skrifstofunni og nokkrum hluta búðarinnar. Ég fór upp á loft og fór umhugsunarlaust að rífa kaffibæti upp úr tunnu. Þá sá ég eins og nál- argat á tunnunni og í gegn um það sá ég allt, sem gerðist niðri í búð- inni og skrifstofunni. Sá ég að Jó- hannes Stefánsson kom fram af skrifstofunni og helt á pappírsblaði í hendinni, sem eitthvað var á skrif- að, og veifaði hann því um leið og hann talaði við einhverja Breiðfirð- inga. Sá ég hann svo fara með blað- ið inn aftur og leggja það á skrif- borðið, og í því hvarf sýnin. Þegar ég kom niður í búðina spurði ég Jóhannes hvort hann hefði gengið til og frá í skrifstofuna, og sagði hann svo hafa verið. Ég spurði hvort hann hefði haft nokkuð í hendinni. Kvað hann svo hafa verið og hvers vegna ég spyrði um það. Sagði ég honum þá hvað fyrir mig hafði borið. Kvaðst hann ekki trúa því að ég hefði séð í gegn um loftið. Ég spurði hvort hann hefði papp- írsblaðið hjá sér, en hann kvað það vera inni í skrifstofu, og „getir þú sótt blaðið, mun ég trúa“, sagði hann. Sótti ég þá þegar blaðið og sýndi honum, en hann kvaðst enn varla geta trúað mér. — ★ — Oft hef ég séð hugi eða myndir lifandi manna, en mjög sjaldan dauðra manna hugi eða svipi. Skömmu eftir nýár 1898 sá ég hug eins lifandi manns; var það einn af viðskiftamönnum verslunar innar. Maður þessi heitir Þorsteinn Pétursson og á heima á Hjallasandi. Ég var í skrifstofu verslunarinnar að skrifa. Varð mér þá litið út um gluggann og sá þá svip þessa manns og jafnframt hvað honum bjó í skapi, eða hugsun hans. Ég fór fram í búðina til þess að vita hvort hann væri kominn þar, en svo var eigi og kom hann ekki fyr en daginn eftir um sama leyti. Sagði ég hon- um þá að hann þyrfti ekki að heilsa, því að hann hefði verið hér i gær, og ég hefði séð hug hans. Vildi hann ekki trúa því, enda gerðu þeir er á heyrðu hlátur úr þessu. Sagðist ég þá skyldu segja honum hvert erindi hans væri, en það kvað hann mér ómögulegt. Bað ég hann þá að.koma afsíðis með mér og sagði ég honum þar leyndarmál hans og erindi, en hann varð mjög undrandi og spurði mig fastlega hver hefði sagt mér þetta. En ég sagði honum að ég gæti ekki skýrt það hvernig mér vitraðist þetta, ég hefði aðeins séð hann í gær og skynjað hvað honum bjó í hug.----- Þennan sama vetur sá ég einnig í hug Bjarna nokkurs Bjarnasonar á Öndverðurnesi. Kom hann nokkr- um dögum þar eftir, og kom þá einnig fram á sama hátt að ég hafði séð rétt í hug hans. Viðurkenndi hann það allt, er ég átti tal við hann, og var þó sumt leyndarmál. — ★ — Það var á sjöunda tímanum á Þorláksmessumorgun 1898 að ég lá vakandi í rúmi mínu, en konan var komin fram í eldhús að hita morg-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.