Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Qupperneq 21

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Qupperneq 21
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 137 EFNIÐ og ANDINN HÖFUNDUR meðfylgjandi greinar Leslie Weatherhead, er merkur kennimaður, enskur, nú prestur við The City Temple í London. Hann hefur skrifað bækur um trúarbrögð og siðfræði auk fjölda blaða- greina. L. W. nýtur mikils álits sem prestur og rithöfundur um allan hinn enskumælandi heim. Meðfylgjandi grein er lauslega þýdd úr The Christian World. Áhrif kirtlanna og kirtlavökv- ans koma víða við. M. a. grípa þau inn á svið trúarinnar, vegna þess að rangar ályktanir hafa verið dregnar af sumum læknisfræðileg- um athugunum, og sumstaðar er það gefið í skyn að hinir andlegu þættir hafi ekki mikið að segja, — að skapgerð mannsins sé það, og það eitt, sem kirtlarnir gera hana og að það sé mögulegt að gjörbreyta henni með hreinlega læknisfræðilegum aðgerðum á líf- færum manna. Með góðum árangri hefur rafstraumur oft verið lát- inn fara gegnum heila þeirra, sem hafa átt að búa við sumar teg- undir af andlegri heilsuveilu. Einkum á þetta við um þá, sem þjást hafa af þunglyndi. Á síð- ustu tímum hefur verið byrjað að framkvæma heilaskurði, þ. e. taka burt hluta af framheilanum eða gera þá algerlega óvirka. Þetta virðist stundum hafa veruleg á- hrif á geðslag sjúklingsins. Þessar staðreyndir hafa valdið ýmsum efasemdum hjá mörgum kristnum trúmanni. Þeir spyrja: Hvert er svið trúarinnar, ef hreinlegar lík- amlegar aðgerðir geta breytt skap- gerð mannsins? Að því er virðist ræður þá efnið yfir huga og sál. Lítum nú fyrst á áhrif kirtlanna. Á það er bent, að úr því að starf- semi þeirra getur mótað geðslagið hljóti þeir að vera „húsbændur á heimilinu.“ Ég fullyrði, að per- sónuleikinn móti starfsemi kirtl- anna og sé þess vegna húsbóndinn. Tökum tárin sem dæmi. Þau þekkj- um við öll. Þau koma úr tárakirtl- unum bak við augun. Ég veit að vísu að tárakirtlarnir eru ekki inn- rennsliskirtlar, en við getum með réttu sagt, að við grátum af því að við séum sorgbitin. Þrátt fyrir James Lange kenninguna erum við ekki sorgbitin af því að við grátum. Táraflóðið gerir okkur ekki hrygg, starfsemi kirtlanna veldur ekki geðshræringum, held- ur öfugt. Enda þótt söltum tárum sé hellt í augun gerir það okkur ekki óhamingjusöm. Það er and- inn, sem er húsbóndinn, ekki lík- aminn. Það eru áhrifin á huga minn, sem valda því að tárin streyma. Dr. Starkes Hathaway segir í bók sinni Physiological Psycho- logy (Lífeðlisfræðileg sálarfræði): „Eftir að hafa lesið það sem skrifað hefur verið um tilraunir og læknis- aðgerðir á þessu sviði mun hver hugsandi lesandi álykta, að per- sónuleikinn hafi meiri áhrif á kirtlana heldur en kirtlarnir á persónuleikann.“ ÁHRIF ADRENALÍNS Tökum annað dæmi til skýring- ar. Þegar við verðum hrædd gefa nýrnahetturnar frá sér vökva sem inniheldur adrenalín. Hann fer inn í blóðið og hefur þau áhrif á okk- ur, að blóðið fer að streyma örar. Við búumst til varnar eða leggjum á flótta eftir atvikum. En þótt adrenalíni sé sprautað inn í æð og hafi sínar líkamlegu verkanir, hefur það engin andleg áhrif. Sjúk- lingurinn finnur ekki til neins ótta. M. ö. o. geðshræringin veldur því að nýrnahetturnar gefa frá sér adrenalínið, en vökvinn skapar ekki geðshræringuna. Við skulum viðurkenna það, að án efa hefur líkaminn mikil áhrif á hugann, en við skulum gera okkur það ljóst, að það eru engin vitni til gegn þeirri trú að hugurinn, sálin, sé húsbóndinn en að kirtlarnir séu þjónar hennar. SK J ALDKIRTILS V ÖKVINN Skjaldkirtilsvökvanum er spraut- að inn í suma sjúklinga eða þeir látnir taka hann inn með góðum árangri. Við vitum að skjaldkirt- illinn örvast af joði en starfsemi hans minnkar, ef hluti hans er numinn burt. Á þenna hátt er oft hægt að draga úr kvíða og bráðlyndi, en það eru engin lík- indi til að eðliseinkunn mannsins breytist við það. Þessi sprautun er einna líkust því að fá fiðluleik- ara fiðlu. Hann getur alltaf leikið á fiðlu. En til þess þarf hann hljóð- færið. Ef menn gera sér ekki Ijóst að andinn — sálin — er efninu æðri, er hinn ráðandi þáttur, leiðir það til þeirrar hugsunarvillu að efnið virðist yfirráðandi. Nokkrir lækn- ar og skurðlæknar hafa orðið þess- ari efnishyggju að bráð. Þeir líta á afleiðinguna sem orsök. Þeir skera upp og sprauta þar sem flest- um fyndist eðlilegra að leita hinna geðrænu orsakar fyrir sjúkleikan- um. Þessa aðferð má skýra fyrir lesandanum með því að draga upp skopmynd: Læknir greinir sjúk- dóm: paroxisk lacrimation (skyndilegt tárarennsli), og þenna sjúkdóm ber að lækna með upp- þurrkandi augndropum, saltlausri

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.