Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1954, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1954, Page 1
JÖRGEN BUKDAHL: HAIMDR ITIM RITHÖFUNDURINN Jörgen Bukdahl hefur enn einu sinni stutt mál- stað íslendinga drengilega í handritamálinu. Hefur hann ritað neðan- málsgrein í „Kristeligt Dagblad“ og birtist hér útdráttur úr henni. j^lENN tala um frið, frið, og sér- 1 staklega eru það Rússar, sem hrópa um frið á bak við byssu- stingjaskóg og járntjald, sem um- lykur þau lönd, er þeir hafa lagt undir sig, þar á meðal Eystrasalts- löndin og nokkurn hluta af Finn- landi. En grundvöllur friðar er þó lýð- ræði, og grundvöllur lýðræðis er þjóðerniskendin. Og frelsi þjóð- anna er höfuðskilyrði fyrir al- þjóða samvinnu. Evrópuþjóðirnar voru lengi að komast að þessum sannindum. Á seinni hluta 19. ald- ar tóku þjóðirnar að rumska, sér- staklega norrænu þjóðirnar. Fram að því höfðu Danir og Svíar verið drotnandi. En nú hófu hinar und- irokuðu þjóðir frelsisbaráttu sína: ísland (Jón Sigurðsson), Færeyar (Hammershaimb), Noregur (Ivar Aasen), Finnland (Snellman). Og alls staðar var stefnan hin sama, að breyta almúganum í þjóð undir lýðræðis stjórn. Nú hefir þetta lánast að mestu. Nú eru hér 6 frálsar norrænar þjóðir. Auðvitað hefir þessi breyt- ing bitnað á gömlu valdhöfunum, Svíþjóð og Danmörk. Sérstaklega Danmörk. Og það var ekki brauta- laust að breyta yfirráðaþjóð í heimaþjóð. Vér minnumst harma- grátsins út af sölu Vestur-Indía, út af frelsi íslands og menningar- legu frelsi Færeya. Þessi harma- grátur var að mestu leyti ættjarð- arofstæki, afturganga frá því er dansk-þýzka veldið hrundi. Sjálfsforræði þjóðanna er nú hinn siðferðilegi grundvöllur, sem öll utanríkis- og innanríkismál vor byggjast á, og sérstaklega á þetta við í samskiftum Norðurlandanna. Það er því óhjákvæmilegt að á oss bitni gamlar syndir frá yfirráða- tímabilinu. Auðvitað á maður að láta þá dauðu grafa sína dauðu, en oss ber að sýna réttlæti þeim lönd- um, sem vér réðum yfir um aldir. Þetta á við um Noreg og þetta á við um ísland. Og þá erum vér komnir að hand- ritamálinu og hinu furðulega til- boði stjórnarinnar, sem hvorki er fugl né fiskur, og leysir ekki úr neinum vanda. Menn hafa stofnað

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.