Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1954, Síða 10
262
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Bandaríkjastjórn hefir veitt fimm
íslendingum styrki til að stunda nám
vestan hafs (14.)
Menntamálaráð úthlutaði 86.600 kr.
styrk handa 43 fræðimönnum (25.)
MENN OG MÁLEFNI
Biskup íslands fór í opinbera heim-
sókn til Keflavíkur (2.)
Lausn frá embætti fengu prestarn-
ir sér Jósep Jónsson á Setbergi og séra
Jóhann Briem, Melstað (4.)
Gerd Grieg leikkona kom hingað til
að stjórna æfingum á, leikritinu „Villi-
öndin“ fyrir Þjóðleikhúsið (16.)
Flutninga-
vagnarnir
eru óðum
hlaðnir af
fyrstu
áburðar-
framleiðsl-
unni. Er
þeim ekið í
áburðar-
geymsluna,
sem er nið-
urgrafin í
klettana við
sjóinn.
Ljósm. Mbl.
Ól. K. M.
Daniel Ágústínusson kennari var
kosinn bæarstjóri á Akranesi (18.)
Foringjaskifti urðu við varnarliðið.
Brownfield, sem hér hefir verið síð-
an 1952, lét af því starfi, en við tók
Donald R. Hutchinson hershöfðingi
(19.)
Hákon Bjarnason skógræktarstjóri
fór á fund FAO stofnunarinnar í
Rómaborg, þar sem rætt verður um
verndun skóga fyrir beit (26.)
Tuttugu íslenzkum kennurum hefir
verið boðið til Danmerkur í sumar í
náms- og kynnisför (27.)
Sex íslenzkum blaðamönnum var
boðið til Noregs og Danmerkur í tii-
efni af heimsókn forseta íslands til
þessara landa og fóru þeir utan með
flugvél (31.)
Hjálmar Bárðarson verkfræðingur
hefir verið skipaður skipaskoðunar-
stjóri (31.)
Sigurður Hafstað fulltrúi í utanríkis-
ráðuneytinu hefir verið skipaður
deildarstjóri þar (31.)
FÉLAGSLÍF
Ársþing íþróttabandalags Reykja-
víkur var háð. í bandalaginu eru nú
22 félög með nær 9000 mönnum (17.)
Kvennadeild Slysavarnafélagsins á
Patreksfirði átti 20 ára afmæli (19.)
Ársþing iðnrekenda var háð í
Reykjavík og voru þár mörg mál tek-
in til meðferðar.
Búnaðarþingi lauk hinn 16. Hafði
það afgreitt 43 mál. Gunnar Þórðar-
son í Grænumýrartungu var kosinn í
stjórn félagsins í stað Jóns Hannesson-
ar í Deildartungu, sem lézt s. 1. ári
Meðal samþykkta þingsins má nefna
þá, að efnt verði til landbúnaðarsýn-
ingar á árinu 1957.
Stofnað var bindindisfélag of-
drykjumanna að fyrirmynd „A.A.“ í
Bandaríkjunum (28.)
Félag leikdómenda var stofnað £
Reykjavík (31.)
ÝMISLEGT
Fjallfoss, hið nýa skip Eimskipafé-
lags íslands, kom til landsins (3.)
Félagið Voks í Moskva sendi Skóg-
rækt ríkisins að gjöf 5 kg. af lerkifræi
frá Arkangel (2.)
Þetta er Globe-
masterflugvélin úr
flugher Bandaríkj-
anna, stærsta flugvél
heims, sem nú svífur
um loftin, á Reykja-
víkurflugvelli. Þetta
bákn vegur um 90
tonn og inni í henni
er 10 hjóla birgða-
flutningabíll Sjáið
hvað lögreglumaður-
inn er lítill, sem
stendur fyrir framan
flugvélina.
Ljósm. Mbl.: Ól.KM.