Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1954, Page 11
263
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
-::i---------
Sorgarsaga
Flugfélag íslands lækkaði fargjöld
milli landa og hefir þá t. d. fargjald
með flugvél til Kaupmannahafnar
lækkað um 20% á tveimur árum (6.)
Vínsmygl sannaðist á brytann á
dönsku skipi, sem var í Borgarnesi.
Hann var sektaður um 4400 kr. (11.)
58.400 gestir komu til Sjómanna-
stofunnar í Reykjavík árið sem leið
U2.) * |*.JS
Flugvél sótti konu í barnsnauð til.
Hólmavíkur. Á leiðinni frá flugvellin-
um í Reykjavík til fæðingardeildar-
innar ól konan barnið í sjúkrabifreið-
inni og gekk vel (14.)
Stærsta flugvél heimsins, Globemast-
er flutningaflugvél úr flugher Banda-
ríkjanna, lenti á flugvellinum í
Reykjavík (16.)
Verið er að undirbúa nýa útgáfu af
þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar (30.)
Vegna skorts á 5 aura frímerkjum
hefir póststjórnin látið yfirprenta 35
aura Heklufrímerki með 5 aura verð-
gildi (31.)
Kaffiverð hækkaði í þessum mán-
uði vegna verðhækkunar erlendis. Sú
hækkun nam 85 aurum á pakka, eða
3,60 kr. á kg. af brenndu og möluðu
kaffi. Alþýðusambandið taldi að þessí
hækkun kæmi í bág við samning þann,
er gerður var við ríkisstjórnina við
lausn vinnudeilanna í fyrra, og mót-
mælti henni. Ríkisstjórnin gaf því kost
á að vísa málinu til gerðardóms.
ÞESSI saga gerðist í Danmörku árið
sem leið.
Þar voru hjón, sem höfðu búið saman
í sátt og samlyndi um nokkurt skeið,
og það var enginn skuggi á heimilis-
lífi þeirra annar en sá, að þeim varð
ekki barns auðið. En í staðinn fyrir að
taka sér kjörbarn, fór konan til læknis
og bað hann hjálpar á þann hátt, sem
nú er farið að tíðkast, að konur sé
frjóvgaðar án þess að þær hafi hug-
mynd um hver faðirinn er. Læknirinn
gerði þetta og konan varð barnshafandi.
En er frá leið hófst styr á heimilinu
út af hinu tilvonandi barni og ástandið
varð svo slæmt, að konan fór aftur til
læknisins og grátbað hann að losa sig
við barnið. Það mátti hann ekki, og
afleiðingin varð sú að hjónin skildu
áður en barnið fæddist.
Barn þetta kom svo inn í heiminn
algjörlega réttindalaust, því engin
ákvæði eru til i dönskum lögum um
rétt þeirra barna, sem komin eru undir
við gerfi'-frjóvgun, og enginn veit hvert
faðernið er. Ef hjónabandið hefði getað
haldizt og maðurinn gengist við barn-
inu sem sínu atkvæmi, þá var allt í
lagi. En þar sem maðurinn skildi við
konuna og hún ól barn, sem enginn
finnst faðir að, þá hefur það ekki fæð-
ingjarétt. Það er komið inn í þennan
heim eftir leiðum, sem lögin gera ekki
ráð fyrir.
Hin tæknilega frjóvgun varð þess
valdandi, að hjón, sem höfðu unnað
hvort öðru, skildu í örvæntingu, líf
konunnar er eyðilagt og hún hefur alið
barn, sem er utanveltu í heiminum. —
Þungar refsingar liggja við ef lælcnar
leysa konum höfn, en ekkert liggur við
því að frjóvga þær á tæknilegan hátt.
Og menn spyrja: Er hér ekki um full-
komið siðleysi að ræða?
Hinn mikli nýtízku mólari virtist
mjög óánægður með seinasta málverkið
sitt. Vinur hans spurði hvað væri r,ð.
— Ég er mjög óánægður með nefið
á einum manninum, sagði hann.
— Hvers vegna breytirðu því þá
ekki?
— Ég get ekki fundið það.
Mennirnir, sem séu um Briisselsýninguna: Hörður Ágústsson Iistmálari, Skarp-
heðinn Jóhannsson arkitekt, Axel Kristjánsson, Sveinn Valfells og Gunnar Frið-
riksson.