Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS r 283 þessari bitsmálssök og skal gjalda Birni lögmanni 4 rdl., en Þorsteini sýslumanni 2 rdl. Um hitt málið segir svo í dóms- forsendum: Magnús hefir í engu getað sannað þjófkenningu sína, og ekki tilbærilega leitast við að rétta fyrir sig með forlátssbón, yfirlýs- ing eða tilboðnum bótum er mót- partarnir gæti gengið að án máls- höfðunar. Ekki hefir hann heldur sannað að hann hafi talajð þetta í þvílíkum drykkjuskap, sem hafi hindrað brúkun hans vitsmuna, og getur drykkjuskapurinn því ekki orðið honum til afbötunar. Lög- þingsdómurinn var því staðfestur og Magnúsi dæmt að greiða sektir fyrir „ógrundaða áfrýun“. í þessu sambandi er það athygl- isvert, að þegar Þorsteinn sýslu- maður neitar Magnúsi um að vinna eið að því að hann hafi ekki bitið Einar viljandi, þá rökstyður hann það með því, að Magnúsi sé sá eiður ekki sær, vegna þess að hann hafi verið svo fullur og vitlaus, þegar þeir fentu í áflogunum, að hann hafi ekki vitað hvað hann gerði. En í þessum dómi er lögð áhersla á það að Magnús hafi enga afsökun vegna ölæðis, og í dómi Björns lögmanns, sem þessi dóm- ur er byggður á, segir að Magnús hafi ekki getað verið mikið drukk- inn, því að hann hafi þennan dag farið allra sinna ferða. — Hér virð- ast röksemdir stangast og álykt- anir af því ekki verða Magnúsi í vil. Rúmum hálfum mánuði síðar var dómþing haldið í Holti. Magnús kom þar ekki og enginn af hans hálfu. Einar Oddsson kom þar og vann sinn eið „með uppréttri hægri hönd“, eins og stendur í dóms- skjölunum. Og síðan var eftirfar- andi dómur upp kveðinn: Þar sem Einar getur ekki afsak- að sig með því, að hann hafi verið neyddur í áflog við Magnús, þá skal Magnús greiða honum 30 rdl. fyrir þjáningar og fingurmissi, 10 rdl. fyrir læknishjálp og annan kostnað, og ennfremur 20 rdl. fyr- ir læknishjálp og annan kostnað, og ennfremur 20 rdl. til konungs sem refsing fyrir uppivöðslu. — Málskostnað fyrir 3 héraðsréttum í þrjú ár skal hann greiða Einari með 6 rdl. En bresti Magnús fé, skal hann vinna í járnum í þrælk- unarhúsi í Kaupmannahöfn, eina viku fyrir hver 3 mörk er á vant- ar að sekt sé greidd. ---- Daginn eftir reið sýslumaður með þennan dóm til Stórumerkur að birta hann. Fólk sagði að Magn- ús væri heima, en hvergi fannst hann hvernig sem leitað var og las sýslumaður því dóminn upp fyrir heimafólki. Dómurinn í Holti fjallaði einnig um verslunarskuldir Magnúss, sem ekki voru miklar, en hann hafði þó ekki talið sér fært að greiða. Segir þar um að í október- mánuði árið áður hafi bú Magnúss verið talið rúmlega 20 hundr. virði „eftir það hann hafði útsett, selt og burthlaupið með gott 30 rdl. virði af sinni búslóð og þar að auk haustgjöld af konungsjörðun- um“. Þó sé hann enn eigandi að 7 hundr. 80 aln. í jörðinni Svað- bæli, er virt sé 24—25 rdl., en sú jörð sé veðsett konungi fyrir af- gjaldi jarðanna. En af heimabúi eða lausafé Magnúss verði ekki séð að hægt sé að gréiða verslun- arskuldirnar, enda sé hann sjálfur svo þvermóðskufullur „að engin ráð eða meðal skaffa vill til skulda- lúkningar — stendur og í stórsök- um og sektum, sem langt yfir- balancera hans 20 hndr. bú“. ---★— Eftir að dómar þessir voru falln- ir, hvarf Magnús að nýu og vissi engínn hvað um hann varð. En í septembermánuði skrifa þeir báð- ir, Brynjólfur Sigurðsson sýslu- maður í Hjálmholti og Þorsteinn Magnússon sýslumaður á Móeið- arhvoli, bréf til Rantzau greifa og segjast búast við að Magnús hafi strokið til Kaupmannahafnar. Sendir Brynjólfur öll málsskjöl Magnúss fyrir 2 undirréttum og 3 yfirréttum og biður að koma þeim til skila. En Þorsteinn sendir dómskjöhn í bitsmálinu, svo að greifinn geti af þeim séð málstað Magnúss. Hér má skjóta því inn, að á Al- þingi þá um sumarið hafði amt- maður, samkvæmt konungsboði, fvrirskipað nýa rannsókn í málum Magnúss. Fól hann fyrrv. sýslu- manni Einari Jónssyni í Ási að vera setudómari og yfirheyra þau vitni er Magnús eða málsvari hans vildu leiða. En Brynjólf Sigurðsson sýslumann skipaði hann málsvara Magnúss. — Brynjólfur afsagði þetta með öllu þegar í stað og kvaðst ekki vilja hafa hin minstu afskifti af málum Magnúss. En samt mun það vera vegna þessa, að hann sendir málsskjölin til Kaupmannahafnar. Þeir reyndust getspakir um það sýslumennirnir að Magnús mundi hafa farið til Kaupmannahafnar, því að þar skýtur honum upp í öndverðum desember. Skrifar hann þá Rantzau greifa og segir honum hvernig nú sé komið, Þor- steinn sýslumaður hafi lagt hald á allar eigur sínar og hann hafi ekki neitt til að lifa af á íslandi. Biður hann nú um að málin sé tekin fyrir að nýu og stingur upp á því, að Jóni Sigurðssyni fyrv. sýslumanni í Holti sé falin rann- sókn málsins, en Hans Wium sett- ur setudómari. Sé þetta nauðsyn- legt áður en málin komi fyrir hæstarétt. Biður hann nú greif- ann að aumkast yfir sig fyrir þá rangsleitni, sem sér, fatækum manni hafi verið sýnd „og lata yfir-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.