Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1954, Blaðsíða 22
r
293
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
NÝUNGAR
við mikinn hlut þessa kostnaðar og
þyrftl ekki að eyða jafn löngum
tíma frá nauðsynlegum embættis-
störfunx.--------
Siðan sýnir hann fram á með
tölum hvað Alþingisreið kosti og
tekur dæmi af sjálfum sér. „Þegar
ég fer til lögþings við Öxará, kemst
ég ekki af með minna en 12 hesta
og 2 fylgdarmenn. Ferðin stendur
í 40 daga, stundum máske heldur
skemur, en stundum líka lengur,
allt eftir því hvernig tíðarfar er
og hvernig árnar eru yfirferðar.“
Hann verði svo að reikna fæði fyrir
3 menn í 40 daga og þar að auki
vinnutap í 36 daga (helgidagarnir
ekki taldir með), hestlán, vörzlu
og hagagöngu o. s. frv. Reikningur
hans verður svo þannig:
Fæði 3 manna í 40 daga . 8 rdl. 48 sk.
Vinnutap í 36 daga .... 19 — 66 —
Skeifur .............. 3 — 12 —
Hestlán 1 jdl. fyrir hvern 12 — —
Hestvarzla og hagaganga
í 3 vikur ............ 1 — 66 —
Samtals 45 — —
Sé þingið þar á móti haldið á
Oddeyri muni ferðakostnaður sinn
ekki fara fram úr 5 rdl. Það sé því
ljóst hve mikið sparist á því fyrir
alla sýslumennina frá Húnavatns-
sýslu til Suður-Múlasýslu, ásamt
4 klausturhöldurum, ef þeir þyrfti
ekki að fara lengra en til Oddeyrar.
Alls telst honum svo til, að þessi
sparnaður muni nema 400 rdl., en
þar megi svo draga frá 100 rdl.
sem ferðakostnaður þeirra norðan-
manna sé meiri en sinn, en fyrir
austanþingmenn sé ferðin til Þing-
valla þeim mun dýrari en sín, að
þar þurfi ekki að koma neitt til
frádráttar. —
En 300 ríkisdalir voru þá allmik-
ið fé og hafa samsvarað allt að
18—20.000 krónum á nútíma mæli-
kvarða. Og samkvæmt þessu hefur
þá þingreið kostað sýslumann Ey-
GÚMAGNIR HINDRA
UPPGUFUN
Farið er að nota gúmagnir í olíu-
geyma til þess að varna uppgufun.
Er þessum ögnum ýmist dælt inn
í geymana með olíunni, eða þeim
er dreift yfir olíuna í geymi. Þær
eru örsmáar og fljóta ofan á og
mynda þar þétta húð, sem varnar
því að olían geti gufað upp.
RANNSÓKNIR Á MÝVARGI
Mývargur er víða mesta plága,
en ekki eru það allar mýflugur sem
bíta. — Karlflugurnar eru mestu
meinleysisskepnur og lifa eingöngu
á safa, sem þær sjúga úr jurtum.
En kvenflugurnar eru blóðþyrstir
bitvargar, en þó gera þær sér t. d.
mannamun. Er það kunnugt að
sumir menn virðast þola mýbit bet-
ur en aðrir, eða verða fyrir minni
ásókn. Nú hafa vísindamenn verið
að rannsaka hvernig á þessu stend-
ur, því að það gæti orðið leiðbein-
ing í baráttunni gegn þessum skað-
ræðis kvikindum. — Það hefur þá
komið í ljós, að flugurnar sækja
meira að þeim mönnum, sem eru
dökkklæddir, heldur en þeim, sem
eru ljósklæddir, og eins fara þær
firðinga um 3000 krónur eftir nú-
verandi peningagildi.
ö
Tillögur Jóns sýslumanns náðu
ekki fram að ganga. Norðlendingar
fengu ekki sitt þing og Oddeyri
varð ekki þingstaður. En 13 árum
síðar en þetta var, kom Alþingi
seinast saman til fundar á Þing-
völlum og svo var ákveðið að þingið
skyldi flytjast til Reykjavíkur.
eftir þef. Þær nota því bæði augu
og þeffæri til þess að velja sér bráð.
Það getur verið að innan skamms
verði hægt að draga úr mývargs-
plágunni, því að nú hafa menn
íundið upp sérstaka tegund af skor-
dýraeitrinu DDT, sem strádrepur
mýflugnalirfur, en gerir ekki öðr-
um skordýrum mein.
SOGDÆLUR FYRIR FISK
í Akron í Ohio í Bandaríkjunum
hefir nýlega verið smíðað áhald til
þess að soga fisk upp úr netjum. Er
það mjög svipað ryksugu. Mundi
þetta áhald líklega henta vel til
þess að soga síld upp úr herpi-
nótum, í stað þess að háfa hana
UPP> því að sagt er að hægt sé að
tæma fullt net á nokkrum mínút-
um með þessari sogdælu.
SJÁLFVIRKUR TALSÍMI
í Bandaríkjunum er nú farið að
nota sérstakt áhald, sem svarar í
síma þegar enginn er heima, og
tekur við skilaboðum. Þetta er
nokkurskonar grammófónn, sem er
settur rétt við heyrnartólið. Þegar
síminn hringir, þá lyftir þetta á-
hald heyrnartólinu, en um leið
hreyfist talplata og svarar þeim
er hringir. Segir hún að enginn
sé heima, en ef viðkomandi þurfi
að koma skilaboðum, þá skuli hann
tala í símann, það verði tekið á
sérstaka plötu. Ef sá, sem hringdi,
þarf að koma skilaboðum, þá bíð-