Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1954, Side 8
cr420
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
FRAMTID FLUGLISTARINNAR
gDDIE RICKENBACKER, for-
seti Eastern Air Lines sagði í
lok fyrra stríðsins 1918, að þá væri
flugvélar orðnar svo fullkomnar,
að ólíklegt væri að neinar meiri
háttar endurbætur væri hægt að
gera á þeim. Nú eru þessar „full-
komnu flugvélar“ ekki lengur til
nema sem safngripir.
Og í seinna stríðinu voru hinar
stóru amerísku sprengjuflugvélar,
B-29, taldar vera svp góðar, að
lengra yrði ekki komizt. Það voru
sjálfir vélfræðingarnir, sem sögðu
þetta. En áður en stríðinu lauk,
voru þær þó þegar orðnar úreltar.
Þær voru ekki nógu hraðfleygar og
gátu ekki farið nægilega hátt. Og
nú mundu venjulegar farþegaflug-
vélar leika sér að því að komast
undan þeim.
Hinar nýu þrýstiloftsflugvélar
fljúga nú hraðara en hljóðið fer,
og þær geta komizt í 60.000 feta
hæð á nokkrum mínútum. Farþeg-
amir verða alls ekki varir við
þennan ofsahraða. Þeir sitja mak-
indalega í mjúkum hægindastólum
og sötra kaffi, eða þeir eru á stjái
fram og aftur í hinum fallega sal,
og finna alls ekki til bess að þeir
eru 12 km uppi í loftinu. Þeir hlusta
á útvarp, eða snæða heitan mat og
verða ekki varir við loftveiki, því
að andrúmsloftið er eins og þeir
eiga að venjast, nema ef til vill
dálítið þynnra og heilnæmara.
Þeim líður sem sagt prýðilega.
Hér er um stórt stökk í flugtækni
að ræða, þar sem horfið er frá
hreyflaflugvélum og teknar upp
þrýstiloftsflugvélar. Og þessi breyt-
ing hefur skeð á örskömmum tíma.
Og nú segja sérfræðingar að engin
takmork sé fyrir því hvað fluglist-
★ ★ ★ ★ ★
Hverjar
verða
framfarirnar
næstu
50
árin?
★ ★ ★ ★ ★
inni geti fleygt fram*á næstu ár-
um.
Spádómar
ÞESSIR sömu sérfræðingar spá
því, að innan fimin ára muni þrýsti
-loftsflugvélar . fljúga í einum
áfanga yfir Atlantshaf. Þá verður
farið milli New York og London á
sex klukkustundum, í stað þess að
nú er flugtíminn 12 klukkustundir
fyrir utan tafir á lendingarstöðvum
á leiðinni. Fred B Lee, flugmála-
ráðunautur, hefur og spáð því, að
á næstu tíu árum muni farþegum
með flugvélum hafa fjölgað meira
en um helming, og þá muni um
400 milljónir manna ferðast árlega
í loftinu. Menn, sem fara nú að-
eins eina ferð á ári, muni þá fara
tvær eða þrjár ferðir með flug-
vélum. Ferðalög verði þá ódýrari
en nú og það verði talið alveg jaín
sjálfsagt að fljúga, eins og nú er
talið sjálfsagt að-hafa síma og raf-
magn. Farþegaflutningar með járn-
brautum muni leggjast niður. —
Hraði flugvélanna verði svo mikill,
að engin ástæða sé til þess að hafa
svefnrúm í þeim. Jafnframt verði
þá flogið hærra og þar af leiðandi
verði flugið miklu öruggara.
Hann segir einnig að eftir tíu ár
muni það verða alvanalegt að
Lundúnabúar skreppi vestur um
haf á laugardögum til þess að
versla og komi svo heim aftur á
sunnudegi. En New York búar
muni skreppa til Kaliforníu og
Alaska um helgar sér til upplyft-
ingar. Meðan á flugi standi muni
farþegar skemmta sér við að horfa
á sjónvarp eða nýustu kvikmyndir.
Þegar komið sé í flughöfn verði þar
fyrir koptar, sem flytji fólkið í stað
bifreiðanna nú. Koptar verði þá
líka orðnir almenningseign og
menn hafi skift á þeim og bílum.
Þeir verði geymdir í húsagarði og
þar stigi fjölskyldan á þá þegar
hún vill íyfta sér upp og fara ann-
aðhvort upp til fjalla, eða á bað-
stað, og hún geti búið í koptanum
á meðan staðið er við, enda þótt
það sé nokkrir dagar, og eldað þar
matinn handa sér. Með öðrum orð-
um, fjölskyldan flytur heimilið
með sér hvert sem hún fer.
Hinn nýi bastarður, sem er að
hálfu leyti kopti og hálfu leyti flug-
vél, verði orðinn algengur eftir
10—15 ár. Þessi farartæki hefja sig
beint upp í loftið eins og koptar,
en fljúga svo beint áfram eins og
venjulegar flugvélar. Þau verði að-
allega notuð til stuttra ferða, eða
þar sem skammt er milli borga. A
lengri leiðum verði svo aftur hinar
stóru hálofts-flugvélar. Um 1970
verði þær orðnar mjög svipaðar
Delta-flugvélinni brezku, sem dreg-
ur nafn sitt af því að hún er eins
og þríhyrna í laginu og líkist því
fjórða stafnum í gríska stafrófinu,
sem heitir delta. Þá verði að vísu
í notkun ýmsar gerðir flugvéla,
sem vér þekkjum nú, en aðallega
verði notaðar þrýstiloftsflugvélar.