Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1954, Page 15
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
427
UMFEHÐARKENNSLA — Bandaríkjamenn eru á undan öðrum þjóðum á flestum sviðum. Hér má sjá hverniff þeir
kenna börnum sínum umferðareglur. Hjá skólunum eru gerð stór svæði með akbrautum þvert og endlangt. Og svo fá
börnin sína sérstöku bíla til þess að æfa sig á. Hvað ungur nemur, gamall temur! Þegar börnin hafa aflað sér eigin
reynslu i akstri, þá er minni hætta á að þau verði ökuníðingar á fullorðinsárum.
ótakmarkaða ummyndun skynsemi
fóstrar takmarkaða skynsemi hins
takmarkaða hugar. Hin ótakmark-
aða ummyndun vilja fóstrar tak-
markaða ummyndun, einstaklings-
vilja hins takmarkaða huga.
í sambandi við þessa tvo flokka
ummyndana talar Spinoza um
þann möguleika að allar ummynd-
anir geti horfið aftur til uppruna
síns undirstöðunnar (guðs) og sið-
an birzt aftur sem nýar ummynd-
anir í öðrum eiginleika og þess
vegna í algjörlega fjarskyldri
mynd.
Með þegsu reyndi Spinoza að
sýna fraxn á villu Descartes, sero
talar um líkama og sál sem eilííar
andstæður. Spinoza er á einu máli
og Descartes með það að efni (lík-
aminn, heilinn) geti ekki hugsað
og að hugsun hafi ekki eiginleika
efnisins eða geti framkvæmt störf
líffæranna, en hann bendir á að
fyrst líkami og hugur mannsins séu
hvorutveggja ummyndanir hlið-
stæðra eiginleika (rúmi og hugsun)
séu þau einnig nákvæmar hlið-
stæður, þannig að líkaminn svari
nákvæmlega til líkamans og líkam-
inn huganum. Hugur kornbarnsins
er t. d. nákvæmlega jafn óþroskað-
ur og líffæri þess. Vöxtur líkamans
og hugans haldast síðau nákvæm-
lega í hendur o. s. frv. Þetta segir
Spinoza að sé hluti hins alheims-
lega samræmis, sem stafar af því
að allt á sömu undirstöðu.
Þetta eru hinar þrjár megin
uppistöður í heimsmynd Spinoza:
Tilveran öll er ein heild. Hinn
innsti veruleiki hennar, undirstaða
allra hluta er guð, og hann er því
í allri tilverunni. Guð er algjörlega
ótakmarkaður. Hann er samnefnari
allra eiginleika tilverunnar. Þessir
eiginleikar eru ótakmarkanlegir.
Hver eigínleiki er veröld út af fyrir
sig. Maðurirm þekkir aðeins tvo af