Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1954, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1954, Síða 6
762 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS P stakkst svo yfir sig og þeytti mér af sér langar leiðir eins og tré- spæni. „Á morgun ætla ég að fara með þig út á hafið“, sagði Ford. Sjórinn, sem skolar Waikiki ströndina er hinn sami sem liggur að öllum Hawaji eyum, og frá sjón- armiði sundmanna er þetta dásam- legur sjór. Hann er hæfilega kald- ur til þess að vera svalandi, og hann er svo hlýr að menn geta verið í honum allan daginn án þess að þeim verði kalt. í sólskini dags- ins og stjörnuskini næturinnar, jafnt um hádegi sem miðnætti, vet- ur og sumar, er hann alltaf eins, hvorki of kaldur né of heitur, held- ur aðeins hæfilega hlýr. Þetta er dásamlegur sjór, jafnsaltur og út- hafið sjálft, hreinn og krystalstær. Það er því ekki undarlegt þótt Hawaji búar sé taldir beztu sund- menn heimsins. Úti á hafi Já, svona stóð á því, að þegar Ford kom að sækja mig morguninn eftir, þá steypti ég mér út í þetta blessaða haf, án þess að vita hve langt ég ætlaði. Við lögðumst á borðin okkar og rerum út í gegn- um barnaleikvanginn, þar sem strákarnir voru að æfa sig. Brátt vorum við komnir út á hið djúpa haf, þar sem stórar bylgjur komu freyðandi og þrumandi á móti okk- ur. Það er í sjálfu sér dýrlegt ævin- týr að mæta þeim, komast yfir þær eða í gegnum þær. Maður varð að gæta sín vel svo að þær gæfi manni ekki volduga löðrunga. Það var barátta milli hins frumstæða afls og hyggjuvits mannsins. Ég var fljótur að komast upp á lagið. Þeg- ar bylgjan hreykti kambinum yfir mér, sá ég snöggvast í gegn um smaragðgrænan öldutoppinn en svo stakk ég mér og greip dauðahaldi um borðið. Ef einhver hefði horft á mig úr landi, mundi honum hafa sýnzt sem ég sykki í sjávardjúp, en sannleikurinn var sá, að ég var kominn í gegnum ölduna og að baki henni. Ég ætla ekki að ráða neinum smámennum eða vesaling- um að hætta sér undir löðrunga bylgjanna. Þeim fylgir kraftur þeg- ar holskeflan dynur á mann. Stundum verður maður að fara í gegn um margar, hverja eftir aðra, og þá er vel líklegt að maður upp- götvi ýmsa nýa kosti við það að vera á landi og hafa fasta jörð undir fótum. Þarna úti á milli hinna freyðandi hafsjóa, slóst þriðji maðurinn 1 hópinn. Hann hét Freeth. Eitt sinn er mér skaut upp undan einni hol- skeflunni og ég hafði hrisst sjóinn úr augunum og tók að skyggnast eftir hvernig næsta holskefla mundi verða, þá sá ég hvar hann kom þeysandi á þeirri holskeflu. Hann stóð uppréttur, hiklaus og öruggur og brúnn af geislum sólar- innar. Um leið og aldan reið að okkur, kallaði Ford til hans. Hann stökk þá af borðinu, náði því síðan undan öldunni og kom róandi til okkar. Hann gaf mér margar góðar leiðbeiningar. Meðal annars sagði hann mér hvernig ég ætti að haga mér gagnvart hinum stóru hol- skeflum, sem stundum eru á ferð- inni. Þær eru ekki við lambið að leika sér og það er ekki ráðlegt að láta þær falla yfir sig þar sem mað- ur liggur á borði sínu. Freeth sýndi mér hvernig ég ætti að leika á þær, og í hvert skifti síðan, er ég sá háa bylgju koma æðandi, þá renndi ég mér út af borðinu og undir það, en helt mér þó fast með báðum höndum. Ef bylgjan reif borðið út úr höndunum á mér og ætlaði að slá mig með því — það er hrekkur, sem allar bylgjur hafa sérstakt gaman að — þá var þó að minnsta kosti fetþykkur varnar- veggur af sjó milli höfuðsins á mér og borðsins. Þegar báran var svo farin hjá, kleif ég aftur upp á borð- ið og reri lengra. Mér var sagt frá mörgum mönnum er fengið hefði vond högg af borðum sínum.------ Sá, sem vill læra að ferðast á bylgjunum, verður að vera vel syndur, og hann verður að vera vanur því að synda í kafi. Að öðru leyti dugið vit og afl. Menn vara sig yfirleitt ekki á því hvað bylgj- urnar eru sterkar. Það getur verið að þær slíti mann og borð sundur, og þá verður maðurinn að bjarga sér sjálfur. Þótt hann sé með mörg- um öðrum, getur hann ekki treyst því að neinn þeirra hjálpi sér. Ég var ósköp öruggur að hafa þá Ford og Freeth með mér, og ég gleymdi því alveg að þetta. var í fyrsta skipti, sem ég var úti á hafi á meðal hinna stóru holskefla. Ég var brátt minntur heldur óþægilega á þetta Stór holskefla kom og fé- lagar mínir settust á bak henni og þeystu til lands. Ég hefði getað drukknað tuttugu sinnum áður en þeir komu aftur. Komst á bak öldunni Maður verður að .gæta þess að vera á sem mestri ferð undan bylgj- unni. Þegar maður sér þá bylgju nálgast, er manni lízt vel á, snýr maður baki við henni og rær af öllum kröftum í áttina til lands. Það verður að vera skriður a borð- inu svo að bylgjan taki það og fleyti því áfram. Aldrei gleymi ég fyrstu stóru bylgjunni, sem ég náði úti á rúm- sjó. Ég sá hana koma, sneri baki við henni og reri af öllum kröft- um, eins og ég ætti lífið að leysa. Ég heyrði ölduna koma suðandi á eftir mér og svo lyftist borðið mitt og fleygðist áfram. í nokkrar sekúnd- ur vissi ég varla af mér. Ég hafði augun opin, en ég gat ekkert séð fyrir sælöðri. Mér stóð á sama. Ég var gagntekinn af óumræðilegri gleði út af því að ferðast með öld-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.