Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1954, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
765
var lengstum innistaða upp frá því.
Syðra og vestra var minna um snjó.
Mesta stórviðrið var dagana 7.—8.
og olli það víða tjóni, vegna þess
að það skall skyndilega á og óvænt.
Þöku fuku af húsum í Reykjavík, ferð-
ir strætisvagna trufluðust, loftnet út-
varpsstöðvarinnar á Vatnsendahæð
slitnaði niður og miklar truflanir urðu
á rafmagni. Hafnarfjörður varð raf-
magnslaus, því að háspennulínan þang-
að bilaði.
Fé var víða úti sunnan og vest-
an lands og náðist ekki í hús. Fennti
kindur sumsstaðar og varð einkum
tjón af þessu í Grundarfirði.
Seinni hluta mánaðarins voru stöð-
ugar rigningar austan lands og var
orðið autt í lok mánaðarins.
ÚTGERÐIN
Afli var sæmilegur í flestum ver-
stöðvum, þegar á sjó gaf, og sums
staðar gekk fiskur á grunn, svo að
Keflavíkurbátar hlóðu t. d. rétt út
af höfninni. Er það þakkað friðun
Faxaflóa. — Togaraafli var yfirleitt
tregur. Margir togarar sigldu með ís-
fisk til Þýzkalands og var markaður nú
miklu hærri en í fyrra mánuði. Seyðis-
fjarðartogarinn ísólfur fékk rúm 146
þús. mörk fyrir afla sinn og er það
metsala. Þá var og sendur ísfiskur til
Austur-Þýzkalands (settur á land í
Hamborg) og er seldur fyrir ákveðið
verð.
Sú nýung skeði, að nýr bátafiskur
var sendur með flugvél til Hamborg-
ar og seldur matsöluhúsi þar. Er gert
ráð fyrir að senda nýan fisk þannig
með flugvélum í nokkur skifti tii þess
að fá úr því skorið hvort hér geti verið
um nýan markað að ræða (25.)
Heildarfiskafli á landinu nam 1. nóv.
354 þús. lestum. Er það 37,5 þús. lest-
um meira en á sama tíma í fyrra (20.)
MANNALÁT
3. Frú Margrét J. G. Jónsdóttir, Rvík.
3. Frú Valgerður Magnúsdóttir frá
Bakka í Ölfusi.
4. Sigurgeir Jónsson organleikari,
Akureyri.
4. Frú Ingunn Guðbrandsdóttir,
Reykjahvoli, Mosfellssveit.
5. Frú Guðrún H. Tulinius, Rvík.
5. Kristján Guðnason verkstjóri,
Reykjavík.
5 Frú Else Ellingsen Guðbjörnsson,
Reykjavík.
6. Guðjón Árnason, Neðri-Þverá,
Fljótshlíð.
6. Friðrik Hjartar, fyrrv. skólastjóri,
Akranesi.
7. Frú Þórdís Ág. Jóhannsdóttir,
Elliðaárstöð, Reykjavík.
8. Björn Guðmundsson hreppstjóri,
Lóni, Kelduhverfi.
9. Jón Davíðsson, fyrrv. verslunar-
stjóri, Fáskrúðsfirði.
9. Guðmundur Guðmundsson stór-
kaupmaður, Reykjavík.
11. Jónas K. Magnússon bókbindari,
Reykjavík.
11. Ólafur J. Hvanndal prentmynda-
meistari, Reykjavík.
12. Helga Illugadóttir, Reykjavík.
14. Brynjólfur Einarsson bílstjóri,
Reykjavík.
14. Frú Guðrún Sigurðardóttir, Rvík.
16. Benedikt Sveinsson fyrrv. Alþing-
isforseti, Reykjavík.
16. Bjarni Sigurðsson, Ranakoti,
Stokkseyri.
17. Frú Guðrún Bjarnadóttir, Strönd,
V estmanneyum.
17. Sigurgeir Jónsson verkamaður,
Reykjavík.
17. Frú Svanhildur Ólafsdóttir, Rvík.
18. Þorgeir Pálsson framkvæmdastj.,
Reykjavík.
19. Frú Þórdís Sigurlaug Benónýs-
dóttir, Reykjavík.
20. Frú Ragnhildur Benediktsdóttir,
Reykjavík.
21. Runólfur Þorláksson verkstjóri,
Reykjavík.
23. Frú Margrét Benjamínsdóttir,
Reykjavík.
26. Ölafur Magnússon Ijósmyndasmið-
ur, Reykjavík.
26. Hildimundur Björnsson vega\^rk-
stjóri, Stykkishólmi.
26. Brynjólfur Björnsson tannlæknir,
Reykjavík.
26. Daði Hjörvar útvarpsmaður, Rvík.
27. Haraldur Sigurðsson yfirvélstjóri,
Reykjavík.
27. Eyólfur Ó. Ásberg, Keflavík.
29. Jón Þorleifsson, kirkjugarðsvörð-
ur, Hafnarfirði.
SLYSFARIR
Maður, sem tekinn var vegna ölv-
unar og settur í fangageymslu lög-
reglunnar í Reykjavík, stytti sér þar
aldur (9.)
Ungur maður í Reykjavík gekk í
svefni út um glugga á þriðju hæð í
húsi, en sakaði lítið (16.)
Öldruð kona féll á hálku á Akra-
nesi, lærbrotnaði og handleggsbrotn-
aði 17.)
Sjómaður í Bolungavík lenti í ljósa-
vél um borð í vélbáti og fótbrotn-
aði (18.)
Flosi Einarsson, skipverji á ,,Selfossi“
hvarf í Gautaborg meðan skipið hafði
þar viðdvöl (18.)
Amerískt flutningaskip hrakti í inn-
siglingu á norðurgarð hafnarinnar í
Reykjavík, braut hausinn á honum, en
vitinn, sem þar var, féll í sjóinn (23.)
Tveir bændur í Vatnsdal voru að
reka hross yfir Alftardalsá. Brast ís-
inn undan einu hrossinu og er þeir
ruku til að bjarga því, brast isinn
einnig undir þeim. Þarna var beljandi