Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1955, Page 6
98
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Selma Lagerlöf:
SEINASTI FIÐLULEIKURINN
ÖLLUM þeim mönnum, sem
ég hef þekkt, hefur enginn
haft iafnríka hæfileika til bess að
lesa hugsanir mínar or móðir mín
gamla. Síðustu tuttugu og þriú ár-
in, sem hún lifði og var hiá mér,
fyrst í Landskrónu, því næst í Fal-
un og síðast á Márbakka, kom hún
mér oft á óvart og lét uppi ýmis-
legt, er svndi, að hún vissi, hvað
ég var að hugsa. En bá leitaðist
ég iafnan við að finna einhveria
eðlilega skýringu á besf:um atvik-
um og lét mig þau ekki miklu
skinta.
Eini að síður get ég enn sant
smádæmi um huasanaflutning. sem
átti sér ptnð milli okkar mæðgn-
anna. í það skipti var ég víðs fjarri
móður minni, og þess vegna er
mér þessi reynsla minnisstæð enn
í dag.
Árið 1895 sagði ég upp stöðu
minni við kvennaskóla í Lands-
krónu og gat setzt að þar sem mér
léku landmunir til. Ég dvaldist
samt enn í tvö ár í bænum snotra
við sundið.
Vorið 1897 var móðir mín í heim-
sókn hjá systur minni í Falun, en
maður hennar hafði stöðu við kop-
arnámuna þar. Um þær mundir var
ég oft ein á gangi í Landskrónu,
og þá var það eitt sinn síðdegis að
mér flaug skyndilega í hug, að ég
ætti að flytjast til Falunar. Þar átti
ég systur mína, mág og börn þeirra
að. Það var vissulega ofur einfalt
og eðlilegt, að ég settist að í grennd
við ástvini mína. Það myndi vera
gaman, ekki aðeins fyrir mig, held-
ur fyrst og fremst fyrir móður
mína.
Ég' vó og mat af stökustu íhygli
öll hugsanleg rök með og móti, en
áður en dagur var að kvöldi kom-
inn, hafði ég tekið ákvörðun, og
þetta sama kvöld settist ég niður
og skrifaði móður minni fyrirætl-
un mína.
Þetta allt var að vísu ekki til-
takanlega merkilegt, en hið furðu-
lega var, að tveim dögum síðar
fékk ég bréf frá móður minni í
Falun. Henni hafði ekki enn bor-
izt bréf mitt.
Bréf móður minnar hófst á þess-
um orðum: „Við Gerða höfum ver-
ið að tala um það í dag, hve
skemmtilegt væri, ef þú flyttist
hingað til Falunar...
Á blaðsíðu eftir blaðsíðu reyndi
hún að sannfæra mig um, að snjall-
ræði væri að flytjast þangað.
Mér hafði flogið þetta í hug ein-
mitt sama dag, sem móðir mín og
systir höfðu setið 6g hugleitt það,
og bréf ökkar voru rituð sama
kvöldið.
Hér er annað dæmi:
Það var löngu seinna, haustið