Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1956, Qupperneq 1
18. tbl.
tm
Sunnudagur 20. maí 1956.
XXXI. árg.
Arni Olci:
Kollafirðir og Kollabúðir
J.JÉR Á LANDI eru um 100 nafn-
greindir firðir, og er fjórði
hluti þeirra kenndur við menn.
Vitum vér nokkur deili á flestum
þeim nafngiftum eftir frásögnum
Landnámabókar. Þessi nöfn skift-
ast þar þannig, að í 16 þeirra er
talið að sé eiginnafn manns, í 7
kenningarnöfn, en um tvö, Hafurs-
fjörð og Hrafnsfjörð, verður ekki
með vissu sagt hvort þar sé kennt
við menn. Samnefndir eru tveir
Bjamaríirðir í Strandasýslu, og
svo eru þrír Kollafirðir, einn í
Kjósarsýslu, annar í Strandasýslu
og inn þriðji í Barðastrandarsýslu.
Eigi er samnefndir fleiri firðir af
þeim, er draga nöfn sín af mönn-
um.
Nú má það merkilegt og gmn-
samlegt kallast, að þrír firðir skuli
kenndir við Koll (eða Kolla), því
að nöfnin Kollur og Kolli virðast
hafa verið alveg óþekkt í Noregi
á landnámstíð. Nafnið kemur
aldrei fyrir í Heimskringlu fyrr en
á dögum Inga konungs. Þá er getið
um Kolla prúða skáld, og var hann
íslenzkur. E. Lind (Norsk-islandske
dopnamn) telur að Kolla-nöfn komi
þar ekki fyrir fyrr en á 11. öld.
En það er eigi aðeins að firðir
hér á landi séu kenndir við Kolla,
heldur einnig bæir, svo sem Kolla-
vík í Þistilfirði, Kollslækur í
Hálsasveit í Borgarfirði, Kollsvík
hjá Patreksfirði, Kollabær í Fljóts-
hlíð, Kollabúðir í Þorskafirði,
Kollsá bæði í ísafjarðar og
Strandasýslu, og í Vallahreppi í
Suðurmúlasýslu voru Kollsstaðir
og þar er enn bær sem heitir Kolls-
staðagerði.
Vér skulum nú athuga hvað
Landnámabók segir um Kollafirð-
ina.
Kollafjörður í Strandasýslu:
Kolli hét maður er nam Kollafjörð
og Skriðinsenni, og bjó undir Felli
meðan hann lifði.
Kollaf jörður í Barðastrandasýslu:
Kolli Hróaldsson nam Kollafjörð og
Kvígandanes, en seldi ýmsum
mönnum landnám sitt, en hann fór
í Laxárdal á Höskuldsstaði er hann
kvongaðist. Hann var síðan kall-
aður Dala-Kollur.
Þessar upplýsingar em harla lít-
ils virði. Um fyrra nafnið er það
að segja, að engu er líkara en að
höfundar Landnámabóka hafi tal-
ið svo sem sjálfsagt, að Kollafjörð-
ur í Strandasýslu sé kenndur við
landnámsmanninn og hann hafi
því hlotið að heita Kolli (eða Koll-
ur), en hafi ekki vitað neitt meira
um hann né það landnám. Um
seinna nafnið er það að segja, að
þar er landnámsmanninum Kolla
Hróaldssyni blandað saman við
Dala-Koll, sem sagður er Veðrar-
Gríms son Ása sonar hersis. Þessi
ruglingur er svo rækilegur, að rak-
in er ætt frá Kolla Hróaldssyni eins
og frá Dala-Kolli: Höskuldur —
Þorleikur — Bolli, sem átti Guð-
rúnu Ósvífursdóttur. Gæti þetta
staðizt, ef gert væri ráð fyrir því,
að hér væri um sama mann að
ræða og að Dala-Kollur hefði num-
ið land norðan Breiðafjarðar, áður
en hann kvæntist. Guðbrandur
Vigfússon heldur að þeir hafi verið
frændur, ættaðir úr Haddingjadal,
og sömu ættar hyggur hann Kollá
á Felli í Kollafirði. En það virðast
ágizkanir einar. Um Dala-Koll seg-