Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1956, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ' 283
skyldi nálgast utan af hafi. Með
því móti gæti menn í landi fengið
10 mínútna undirbúningstíma. Og
á slíkum stundum eru hverjar tíu
mínútumar dýrmætar. Það þarf
ekki annað en styðja á rauðan
hnapp úti í tuminum og á samri
stund er aðvörunin komin til flug-
varnarliðsins í landi. Þá leggja or-
ustuflugmenn þegar á stað frá
Brunswick, Falmouth og öðrum
flugvöllum á inum rennilegu
þrýstilofts orustuflugvélum, og eru
komnir á loft fimm mínútum eftir
að aðvörunin kom, reiðubúnir að
ráðast á flugvélar óvinanna.
— ★ —
Tuminn er radarstöð, ein í inu
margþætta radarstöðvakerfi, sem
komið hefir verið upp í Bandaríkj-
unum, Kanada, Grænlandi, Alaska
og í auðnum heimskautslandanna.
f ráði er að gera tvo aðra turna,
annan út að Nantucket og hinn út
af Long Island á 190 feta dýpi. Þá
er og í ráði að gera „flotstöðvar“,
sem eiga að liggja fyTir festum
mörg hundruð sjómílur undan
landi og úti á fjallahryggnum, sem
liggur neðansjávar eftir endilöngu
Atlantshafi. Ein slík stöð á að vera
á fjallstindi, sem þó er 170 fet und-
ir sjávarmáli, svo að segja mitt á
milli Newfoundlands og Brest í
Frakklandi. Atlantshafið hefir ver-
ið rækilega mælt, og menn vita
upp á hár hvar slíkir fjallatindar
eru.
Afleiðingin af þessu er sú, að um
mörg ár hér eftir, verða ungir
Bandaríkjamenn að hafast við tím-
unum saman einangraðir á smá-
hólmum úti 1 Atlantshafi. Sumir
þeirra hafast nú þegar við í snjó-
húsum á norðurslóðum. En þeim
sem verða í turnunum getur liðið
tiltölulega vel. Eg veit það vegna
þess að eg hefi deilt þar mat og
hnífi með þeim. Eg hefi einnig tek-
ið þátt í áhyggjum þeirra, þegar
stormar geisuðu og turninn riðaði.
En eg minnist þess að þá sagði
einn þeirra: „Empire State bygg-
ingin riðar líka í stormum, en hún
stendur þó enn“.
Eg hafði ætlað mér að vera fjóra
daga í turninum, en svo varð eg
tepptur þar í tíu daga til viðbótar.
Það er mesti ókostur turnsins að
ekki eru reglulegar samgöngur við
land. Það er ekki nema 13 klukku-
stunda sigling til Boston, en það
getur orðið erfitt að komast þar
á milli vegna storma. Koptar eru
sendir milli lands og turns, en geta
ekkert aðha^st ef vindhraðinn
kemst upn í ‘íO km á klukkustund.
Og litla skipið „E1 Sol“, sem flutti
mig og flugliðsmennina út í turn-
inn, fer ekki á milli nema gott sé
veður, en það er sjaldgæft.
— ★ —
Það er ekki gott að leggja að
turnin"m, og til þess að komast
upp í hann verður maður að fara
í körfu, sem dregin er upp af vél-
afli. En það er ekki hægt nema
í blíð'kaoar veðri. Á því fengu þeir
að kenna byggingarmeistarinn og
flotaforinginn, sem kom til að taka
við byggingunni. Þeir ætluðu að
fara niður í stormi, en lentu báðir
í sjónum, og það varð þeim til lífs
að þeir voru í flotvestum.
Einangrun er það sem fer verst
með piltana þarna. Þeim þarf ekki
að leiðast, því að í góðum félags-
skap leiðist manni ekki. En ein-
angrunin! Þetta er ekkert líkt því
að vera á skipi. Skip eru á ferð,
en það er turninn ekki. Hann get-
ur ekki hreyfst í neina átt.
Eg fann til þessarar einangrunar
þegar á þriðja degi. Eg vaknaði
þá snemma og leit niður á sjóinn.
Og þar var þá oh'uskipið „Noda-
way“ komið og ætlaði að freista
þess að birgja tuminn upp af olíu.
Eg glaðvaknaði þegar, því að það
var mikið undir því komið að þessi
tilraun tækist. í turninum voru þá
ekki nema tveggja daga birgðir af
brennsluolíu, en ekki hægt að koma
nýum birgðum þangað nema í
bezta veðri. Skyldi nú þessi tilraun
takast? hugsaði eg með sjálfum
mér.
Olíulaus er turninn ósjálfbjarga,
hann er þá eins og draugur þarna
úti í hafinu. Menn yrði að klæð-
ast skinnfötum til þess að halda á
sér hita, þeir yrði að nasla kaldan
mat, og jafnvel sitja í myrkri, því
að rafmagnið endist ekki lengi eft-
ir að vélarnar hafa stöðvast. Og
vatnslausir yrði þeir að vera, því
að allt sitt vatn fá þeir með því
að eima sjó. Allt er undir því komið
að olíubirgðirnar þrjóti eigi.
Daginn áður hafði „Nodaway"
komið og bundið sig við turninn.
Þá var mikill sjógangur, og áður
en langt leið, slitnaði festin og jafn-
framt slitnaði þá olíuleiðslan og
olían fossaði í sjóinn. Skipið varð
frá að hverfa. Nú vonaði eg að
betur mundi takast. Skipinu var
lagt við festar, en ein þeirra slitn-
aði þegar. Þá voru allir menn kall-
aðir á „þilfar“, og eftir mikið um-
stang tókst að laga þetta. Hvað
eftir annað slitnuðu festarnar um
daginn, en það var hægt að bæta
úr því jafnharðan. Og þúsundir
lítra af olíu streymdu upp í olíu-
geyma turnsins. Um nóttina rak
á storm — það var heppilegt að
þessi stund skyldi notuð.
----o----
Mennirnir í turninum finna til
þess að þeir eru þátttakendur í
nýu og áður óþekktu ævintýri. Það
er „spennandi", og þeir viður-
kenna það. Þeir verða látnir hafa
nóg fyrir stafni, svo að þeim leið-
ist ekki. Þeir taka þátt í bréfaskóla.
Þeir hafa kvikmyndir og brátt
kemur þar sjónvarp. Það er svo
rúmt þama, að þeir geta leikið
golf. Þeir hafa nógar bækur, og