Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1957, Page 1
2. tbl. Sunnudagur 13. janúar 1957 XXXII. árg.
Gu&mundur G. Guðmundsson:
BÁRDÁSl VIÐ BJARNDÝR
Guðmundur
Guðbrandsson,
Ingibjörg kona
hans op barna-
barn þeirra.
CÍÐAN á landnámstíð hafa ís-
lendingar átt í höggi við hvíta-
birni, sem komið hafa hingað með
hafísnum. Segir Landnáma frá því,
að þá er Ingimundur gamli xom
norður, fann hann á vatni einu beru
og húna tvo hvíta með henni. Því
kallaði hann það Húnavatn. Eftir
það fór Ingimundur utan og gaf
Haraldi konungi hárfagra dýrin.
„Ekki höfðu menn í Noregi fyr séð
hvíta björnu“, og þótti þetta svo
virðuleg gjöf, að konungur laun-
aði með því að gefa honum skip,
hlaðið timbri. Sjálfsagt hafa þeir
Ingimundur fyrst orðið að leggja
birnuna að velli, áður en þeir næði
húnunum, og hefir hann sennilega
fært konungi feldinn af henni, en
húnana lifandi.
Á öðrum stað í Landnámu segir
frá því, að Arngeir hét maður, er
nam Sléttu alla milli Hávararlóns
og Sveinungsvíkur. Synir hans
voru þeir Þorgils og Oddur. Þeir
Arngeir og Þorgils gengu heiman
í fjúki að leita fjár og komu eigi
heim. Oddur fór að leita þeirra, og
fann þá báða örenda, og hafði
hvítabjörn drepið þá og lá þá á
pasti. Oddur drap bjöminn og
segja menn að hann æti allan, og
kallaðist þá hefna föður síns, er
hann drap björninn, en þá bróður
síns er hann át hann. Síðan var
talið að Oddur yrði ódæll og illur
við að eiga. Mun þetta elzta sagan
um að bjarndýr hafi orðið mönn-
um að bana hér á landi, en á niður-
lagi sögunnar má sjá, að því hefir
verið trúað að menn mögnuðust
mjög á því að eta bjarndýrakjöt.
Þegar íslendingar tóku að byggja
Grænland, komust þeir í nánarl
kynni'við hvítabirni og hafa eflaust
veitt þá sér til matar. En húnana
tóku þeir lifandi, því að þeir voru
dýrmæt verslunarvara, og ekki
þóttu þá veglegri gjafir að gefa
konungum, eins og sjá má á Auð-
unnar þætti vestfirzka. Og þegar
ísleifur biskup Gissurarson gekk
suður á fund páfa í Róm til þess
að fá samþykki hans til þess að
taka biskupsvígslu og verða fyrsti
biskup á íslandi, þá hafði hann með
sér hvítabjörn frá Grænlandi.
*